Fréttablaðið - 21.01.2012, Side 42
Kynning
Kynning
Ýmiss konar ávinningur þykir vera af iðkun jóga og meðal annars hefur
það nýst kylfingum til að auka færni sína í íþróttinni. Hægt er að sækja
jóganámskeið sem leggja áherslu á golf þar sem kenndar eru æfingar
sem bæta sveifluna, auka úthald, minnka líkur á meiðslum og fleira.
Vissir þú …
● að sumir jógar æfa ekki á fullu eða nýju tungli? Ástæðan er sú að þeir
telja að tunglið hafi áhrif á vatnið í líkama okkar á svipaðan hátt og það
hefur áhrif á sjávarföll. Þannig hafi tunglið líka áhrif á tilfinningar
okkar.
● að sumir jógar æfa ekki á laugardögum? Ástæðuna er að leita til
þess að laugardagur, Saturday eða Saturn‘s day, er talinn vera dagur
plánetunnar Satúrnusar. Þessi pláneta á að vera þekkt fyrir að vera
sundrandi og villt.
● að margir jógar borða ekki kjöt? Það er rakið til þess að kjöt er dautt
og því enginn lífskraftur í því. Þar sem jóga er ætlað að auka Prana
(lífskraftinn) gerir kjöt lítið til þess og hefur jafnvel öfug áhrif.
● að Ujjayi-öndunin eða haföndun er mjög mikilvæg í jóga? Þegar hún
er gerð rétt kemur hún úr aftasta hluta hálsins og hljómar svipað og
Darth Vader úr Stjörnustríði.
● að árið 2008 stunduðu 16 milljónir Bandaríkjamanna jóga og eyddu
5,7 milljörðum dollara í dót sem tengist sportinu?
● að jóga er talið geta aukið fullnægingu þar sem jóga styrkir vel
grindarbotninn?
● að bær í Georgíu í Bandaríkjunum bannaði jóga árið 1990?
● að fjölmennasti jógatími heims samkvæmt heimsmetabók Guinnes var
haldinn á Indlandi árið 2005. 29.973 nemendur frá 362 skólum tóku þátt
í jógaæfingum í 18 mínútur.
● að lengsta jógamaraþon karlmanns varði í 29 klukkutíma og fjórar
mínútur? Það var Michael Schwab frá Austurríki sem setti metið í
Vín 2009.
● að lengsta jógamaraþon konu varði í 32 klukkutíma? Það var Yasmin
Fudakowska-Gow frá Kanada sem setti metið í Quebec í Kanada árið
2010.
Skondnar stað-
reyndir um jóga
Líkamsræktarstöðin Reebok fitness opnaði í Holta görðum 11. nóvember á síðasta ári.
Þar er boðið upp á mikið úrval
hóptíma og nutu hot jóga-tímarnir
strax mikilla vin sælda. Þeir eru
nú í boði níu sinnum í viku ásamt
þremur hefð bundnum jóga-
tímum. „Þá bjóðum við upp á hot
balance sem fer líka fram í heitum
sal. Þar eru gerðar hægar styrktar-
og jógaæfingar með lóðum og eru
tímarnir hugsaðir fyrir þá sem
vilja taka enn meira á því,“ segir
Guðríður Erla Torfadóttir, eða
Gurrý eins og hún er kölluð, sem
meðal annars kennir hot jóga á
stöðinni.
Rebook fitness er 3.700 fer-
metrar að stærð. Þar eru fimm
stórir hóp tíma salir, þar af einn
hjóla salur með yfir 100 hjólum,
stór hot jóga- salur og þrír þrek-
salir. „Hot jóga-salurinn er um
það bil 160 fermetrar og tekur allt
að 80 manns. Hann er frábrugðinn
öðrum sölum þar sem hot jóga
er kennt að því leyti að loftið
endurnýjast á tíu mínútna fresti.
Þar er því alltaf ferskt loft og
finnst fólki sem hefur prófað hot
jóga annars staðar þetta mikill
munur,“ segir Gurrý.
Hún segir al ls k y ns fólk
sækja tímana. „Þetta er allt frá
kyrrsetufólki, sem þarf að liðka
sig, til íþróttamanna sem þurfa
að teygja á móti hörðum æfingum.
Hvort heldur sem er segist fólk
fljótt finna mikinn mun. Hitinn
gerir það að verkum að það kemst
dýpra í stöðurnar og jafnvægið er
fljótt að koma.“ Gurrý segir marga
verða háða hot jóga. „Fólki líður
svo vel eftir svona heita tíma að
það kemur aftur og aftur.“
Allur tækja búnaður í Reebok
Fitness kemur frá GÁP, þar á
meðal allar jóga tengdar vörur.
„Þetta eru meðal annars jóga-
dýnur, teppi, belti, kubbar og jóga-
handklæði svo dæmi séu nefnd en
fáir sölu aðilar á Íslandi hafa jafn
breitt úrval af jóga vörum,“ segir
Gurrý. Hún segir kubbana góða til
stuðnings fyrir þá sem eru óvanir
jóga og beltin sömuleiðis en
þau eru notuð til að stytta vega-
lengdina sem þarf til að komast í
tilteknar stöður. Jógahandklæðin
eru svo sérstaklega hentug í hot
jóga en þar er farið fram á að
þátttakendur séu með handklæði
ofan á dýnunni. „Undir þeim
eru plastbólur sem heldur þeim
stöðugum á dýnunni og því
engin hætta á að fólk renni til í
æfingunum,“ segir Gurrý.
Hún segir stöðinni hafa
verið afar vel tekið og efast ekki
um að gott tíma úrval og ótrúl-
egt verð hafi þar mikið að segja.
„Mánaðaráskrift kostar 2.990
krónur og fyrir það fæst að-
gangur að full komnum
tækja sal og öllum
hóp t í mu m. Fól k
skráir sig í áskriftina
á netinu og bókar
sig fyrirfram í tíma.
Þannig getur það
gengið að sínu plássi
vísu og kemur ekki
að fullum sal. Það
er því hægt að panta
sér tíma í hot jóga
eða a n nað með
margra daga fyrir-
vara og skipu leggja
þannig vikuna. Þá
er enginn bindi tími
og er hægt að segja
upp áskriftinni hvenær sem er.“
Gurrý segir líka hægt að skrá sig í
mánaðar áskrift og bóka sig í tíma á
staðnum. „Við erum með tölvur og
iPad í and dyrinu og ef fólk lendir
í vand ræðum er alltaf einhver á
staðnum til að að stoða.“
Auðvelt að verða háður hot jóga
Líkamsræktarstöðinni Reebok fitness hefur verið vel tekið en þar fer saman lágt verð og mikið tímaúrval. Þar er meðal annars sérútbúinn hot
jóga-salur með fyrirtaks loftræstingu og góðum tækjabúnaði.
„Loftið í hot jóga salnum endurnýjast á tíu mínúna fresti. Þar er því alltaf ferskt loft og
finnst fólki sem hefur prófað hot jóga annars staðar þetta mikill munur,“ segir Gurrý.
Eins og jóga hefur verið og er kynnt getur það valdið gífurlegum mis skilningi.
Þannig snýst á stundun jóga
ekki um að verða liðugur eins og
stundum er haldið fram heldur
að ná and legu jafn vægi, koma
jafn vægi á öll kerfi manns-
líkamans og lifa lífinu í meiri sátt
við sjálfan sig og um hverfi sitt,“
útskýrir Guðmundur Pálmars-
son, jógakennari á Yogastöðinni
Heilsubót að Síðumúla 15.
Að ha ns á l it i er t i lvera
fullorðinna orðin svo f lókin og
marg breyti leg að þeir hafa ein-
hvers staðar á lífs leiðinni glatað
eðlis lægri gleði og jafn vægi. Á
Yoga stöðinni Heilsu bót sé lagt upp
úr því að endur heimta þessa mikil-
vægu þætti í lífi hvers og eins.
„Við kennum iðkendum ein-
beitingu, hreyfingu og öndun á
sér stakan hátt sem gerir þeim
kleift að færa jafn vægi milli
hugar, öndunar og líkama. Djúp
öndun án spennu eykur súrefnis-
flæði til allra líf færa líkamans,
þar á meðal til heila og mænu og
fyrir vikið er orka okkar jafnari í
dag legu lífi. Við vinnum mikið
með hrygginn, sem er ásamt
mænunni eitt af mikil vægustu
líf færum líkamans, með það
fyrir augum að binda enda á
hvers kyns verki sem tengjast
honum og fyrir þær sakir upp lifa
iðkendur meiri vellíðan.“
Guðmundur segir að í jóga
sé mikil vægt að leiða hugann
að hverri hreyfingu, hverri at-
höfn til að þjálfa ein beitinguna.
Þegar það náist upp lifi iðkendur
mikla innri ró. „Jóga ástundun af
þessu tagi gerir iðkandann með-
vitaðan um sjálfan sig og um-
hverfi sitt sem er grunn skrefið í
átt að hamingju ríku lífi, þar sem
vanda málin verða til út af hugl-
ægu ástandi okkar, ómeðvituðu
ástandi, í daglegu lífi.“
Hann getur þess að í Heilsu-
bót sé áhersla á að ná persónu-
legu sam bandi við nemendur
svo öl lum l íði sem best.
„Okkar mottó er að að laga jóga
að ein staklingnum en ekki
einstaklinginn að jóga.“
Grunnur að góðu lífi
Með ástundun jóga er hægt að öðlast hamingjuríkt líf sem byggir meðal annars á
innri ró og andlegu jafnvægi. Á Yogastöðinni Heilsubót er áhersla lögð á þá
aðferðafræði.
Talia Freeman og Guðmundur Pálmarsson taka vel á móti gestum í Heilsubót.
MYND/VALLI
Jógahandklæðin eru sett
ofan á jógadýnurnar til
að gæta fyllsta hrein-
lætis. Undir þeim er
gúmmí sem heldur þeim
stöðugum á dýnunni og
því engin hætta á að fólk
renni til í æfingunum.
Lengsta jógamaraþon konu varði í 32 klukkutíma.