Fréttablaðið - 21.01.2012, Side 43

Fréttablaðið - 21.01.2012, Side 43
Framhald af forsíðu Íþróttahátíðin Reykjavik International Games eða Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir eru haldnir um helgina. Keppt er í sextán íþróttagreinum og 400 erlendir gestir taka þátt ásamt um 2.000 íslenskum íþróttamönnum. Heimasíða leikanna er www.rig.is Laugavegi 63 S: 551 4422 FISLÉTT DÚNÚLPA FLOTT FYRIR SKÍÐIN OG ALLA ÚTIVIST, 3 LITITR KYNNINGARTILBOÐ 29,900.- NÝTT Skoðið sýnishornin á laxdal.is LOKSINS KOMIN NÝ SENDING af vinsælu kuldaskónum með mannbroddunum Dömu og herraskór Verð kr. 24.000 alls konar mót læti í lífinu. Þær láta því ekki bjóða sér eins leitar glans myndir sem er hyglað fyrir að vera prúðar. Þetta eru vand- látar konur sem vilja krefjandi lesefni. Nýtt líf í núverandi mynd er ætlað þeim.“ Þóra segir ekki þar með sagt að umfjallanir um út lit, tísku og hönnun sem hafa fengið sinn skerf af at hygli í Nýju lífi muni hverfa úr tíma ritinu. Enda þyki konum alveg jafn gaman að lesa um þau og þjóð- félags málin. Eitt úti loki ekki endi- lega annað. „Framsetningin skiptir hins vegar höfuðmáli. Mér finnst alveg hægt að fjalla á vitrænan og gagnrýninn hátt til dæmis um tísku. Satt að segja getur verið krefjandi blaðamennska að fylgjast með henni. Hins vegar er alltof mikið af innantómu lesefni í boði fyrir konur.“ En bendir lestur ekki einmitt til að gríðarleg eftirspurn sé eftir slíku efni? „Þó að froðuefni sé mikið lesið á Netinu þar sem það er frítt er ekki endilega víst að fólk fari út í búð og kaupi sér tímarit um slíkt efni. Ef markmiðið er að miðla vandaðri blaðamennsku um tísku og þjóðmál sem skilur eitt- hvað eftir sig, þá er hæpið að stæla efni af erlendum heimasíðum.“ Með Nýju lífi tekst Þóra í fyrsta sinn á við ritstjórastarfið en hún hefur starfað við fjölmiðla í ein tíu ár, meðal annars á Fréttablaðinu og í Kastljósinu. Hún segist hafa haft brennandi áhuga á fjölmiðlum frá því að hún man eftir sér sem varð meðal annars til þess að hún menntaði sig seinna í heimildar- myndagerð við Nordisk Institutt for Scene og Studio í Noregi. „Þetta umhverfi á bara rosalega vel við mig. Og mér hefur þótt jafn gaman að starfa í sjónvarpi, útvarpi eða á prentmiðli. Allt gengur þetta jú út á að miðla sögum og gagnrýnni hugsun,“ útskýrir hún. Þóra er einmitt þekkt fyrir að hafa sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Hún fellst fúslega á það þegar það er borið upp á hana og hlær. „Ég hef alltaf verið svo- lítill pönkari í mér. Mér er eðlis- lægt að rýna í hlutina. Þannig að ég er ófeimin að fylgja eigin sann- færingu. Mér finnst líka gaman að hafa nóg fyrir stafni þótt ég sé kannski ekkert rosalega skipu- lögð.“ Óhætt er að segja að Þóra þurfi ekki að kvarta undan verkefna- skorti um þessar mundir. Utan vinnunnar fer mestur tími í nám í menningarstjórnun við Bifröst og barnauppeldi. Hún segist hlakka til að geta einbeitt sér betur að hvoru tveggja nú þegar nýjasta eintak af Nýju lífi fer í prentun í dag. „Ég ætla bara að læra og hafa það kósí með dóttur minni og horfa á fullt af spennandi myndum. Svo ætla ég að koma mér betur fyrir á nýja heimilinu, var nefnilega að flytja um áramótin.“ Hún hugsar sig um. „Heyrðu, láttu það fylgja með að ef einhver veit um gott stofuborð má hann endilega hafa samband.“ Hlær. „Nei, ekkert vera að skrifa það.“ roald@frettabladid.is „Mér er eðlislægt að rýna í hlutina...er ófeimin að fylgja eigin sannfæringu.” segir Þóra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16, www.topphusid.is Mörkinni 6 - Sími 588 5518 NÆG BÍLASTÆÐI Útsala - Útsala allt að 50% afsláttur Verð áður 34.900,- Verð nú 17.450,-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.