Fréttablaðið - 21.01.2012, Síða 43
Framhald af forsíðu
Íþróttahátíðin Reykjavik International Games eða Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir
eru haldnir um helgina. Keppt er í sextán íþróttagreinum og 400 erlendir gestir taka
þátt ásamt um 2.000 íslenskum íþróttamönnum. Heimasíða leikanna er www.rig.is
Laugavegi 63 S: 551 4422
FISLÉTT DÚNÚLPA
FLOTT FYRIR SKÍÐIN
OG ALLA ÚTIVIST,
3 LITITR
KYNNINGARTILBOÐ
29,900.-
NÝTT
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
LOKSINS KOMIN
NÝ SENDING
af vinsælu kuldaskónum
með mannbroddunum
Dömu og herraskór
Verð kr. 24.000
alls konar mót læti í lífinu. Þær
láta því ekki bjóða sér eins leitar
glans myndir sem er hyglað fyrir
að vera prúðar. Þetta eru vand-
látar konur sem vilja krefjandi
lesefni. Nýtt líf í núverandi mynd
er ætlað þeim.“
Þóra segir ekki þar með sagt
að umfjallanir um út lit, tísku og
hönnun sem hafa fengið sinn skerf
af at hygli í Nýju lífi muni hverfa úr
tíma ritinu. Enda þyki konum alveg
jafn gaman að lesa um þau og þjóð-
félags málin. Eitt úti loki ekki endi-
lega annað. „Framsetningin skiptir
hins vegar höfuðmáli. Mér finnst
alveg hægt að fjalla á vitrænan
og gagnrýninn hátt til dæmis
um tísku. Satt að segja getur
verið krefjandi blaðamennska að
fylgjast með henni. Hins vegar er
alltof mikið af innantómu lesefni í
boði fyrir konur.“
En bendir lestur ekki einmitt
til að gríðarleg eftirspurn sé eftir
slíku efni? „Þó að froðuefni sé
mikið lesið á Netinu þar sem það
er frítt er ekki endilega víst að fólk
fari út í búð og kaupi sér tímarit
um slíkt efni. Ef markmiðið er að
miðla vandaðri blaðamennsku um
tísku og þjóðmál sem skilur eitt-
hvað eftir sig, þá er hæpið að stæla
efni af erlendum heimasíðum.“
Með Nýju lífi tekst Þóra í fyrsta
sinn á við ritstjórastarfið en hún
hefur starfað við fjölmiðla í ein tíu
ár, meðal annars á Fréttablaðinu
og í Kastljósinu. Hún segist hafa
haft brennandi áhuga á fjölmiðlum
frá því að hún man eftir sér sem
varð meðal annars til þess að hún
menntaði sig seinna í heimildar-
myndagerð við Nordisk Institutt
for Scene og Studio í Noregi. „Þetta
umhverfi á bara rosalega vel við
mig. Og mér hefur þótt jafn gaman
að starfa í sjónvarpi, útvarpi eða
á prentmiðli. Allt gengur þetta jú
út á að miðla sögum og gagnrýnni
hugsun,“ útskýrir hún.
Þóra er einmitt þekkt fyrir að
hafa sterkar skoðanir á mönnum
og málefnum. Hún fellst fúslega á
það þegar það er borið upp á hana
og hlær. „Ég hef alltaf verið svo-
lítill pönkari í mér. Mér er eðlis-
lægt að rýna í hlutina. Þannig að
ég er ófeimin að fylgja eigin sann-
færingu. Mér finnst líka gaman
að hafa nóg fyrir stafni þótt ég
sé kannski ekkert rosalega skipu-
lögð.“
Óhætt er að segja að Þóra þurfi
ekki að kvarta undan verkefna-
skorti um þessar mundir. Utan
vinnunnar fer mestur tími í nám í
menningarstjórnun við Bifröst og
barnauppeldi. Hún segist hlakka til
að geta einbeitt sér betur að hvoru
tveggja nú þegar nýjasta eintak af
Nýju lífi fer í prentun í dag.
„Ég ætla bara að læra og hafa
það kósí með dóttur minni og horfa
á fullt af spennandi myndum. Svo
ætla ég að koma mér betur fyrir
á nýja heimilinu, var nefnilega að
flytja um áramótin.“ Hún hugsar
sig um. „Heyrðu, láttu það fylgja
með að ef einhver veit um gott
stofuborð má hann endilega hafa
samband.“ Hlær. „Nei, ekkert vera
að skrifa það.“
roald@frettabladid.is
„Mér er eðlislægt að rýna í hlutina...er ófeimin að fylgja eigin sannfæringu.” segir Þóra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16,
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
NÆG BÍLASTÆÐI
Útsala - Útsala
allt að
50% afsláttur
Verð áður
34.900,-
Verð nú
17.450,-