Fréttablaðið - 21.01.2012, Page 54

Fréttablaðið - 21.01.2012, Page 54
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR Eðlifræðingur / Verkfræðingur Geislavarnir ríkisins óska eftir að ráða sérfræðing til starfa við stofnunina. Starfið felur einkum í sér verkefni vegna læknis fræðilegrar notkunar jónandi geislunar og viðbúnaðar. Starfið býður upp á mikla möguleika til þróunar í starfi. Menntunarkröfur: Háskólamenntun í eðlisfræði, verkfræði eða tæknifræði. Framhaldsmenntun er æskileg. Góð íslensku- og enskukunnátta auk Norðurlanda máls nauðsynleg. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður M. Magnússon, forstjóri, sími 442 8200. Umsóknir um starfið skulu sendar Geislavörnum ríkisins, Rauðarárstíg 10, 150 Reykjavík eða á póstfangið starf@gr.is, eigi síðar en 24. janúar 2012. Geislavarnir ríkisins eru með vottað gæðakerfi samkvæmt ISO 9001:2008 staðlinum og bjóða upp á góða starfsaðstöðu og hvetjandi starfsumhverfi. Sjá nánari upplýsingar um Geislavarnir ríkisins á www.geislavarnir.iS Umsjónarmaður fasteigna Háskóla Íslands PIPA R \ TBW A SÍA 120188 Laust er til umsóknar starf umsjónarmanns fasteigna á háskólasvæðinu. Ráðið er í starfið frá 1. mars 2012 og til hálfs árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfið felst í alhliða umsjón húsnæðis, þ.m.t. umsjón með hússtjórnarkerfum, öryggismálum og ræstingu. Viðkomandi sinnir einnig mikilvægu þjónustu- og upplýsingahlutverki við notendur húsanna. Hæfni- og menntunarkröfur: Krafist er iðnmenntunar, tölvukunnáttu, þjónustulipurðar og hæfni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að vera duglegur, skapgóður og tilbúinn til að takast á við margvísleg verkefni. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af notkun öryggis- og hússtjórnarkerfa og hafi vald á ensku og einu Norðurlandamáli. Umsóknarfrestur er til 6. febrúar nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Vilhjálmur Pálmason, deildarstjóri hjá rekstri fasteigna í síma 525 4365 eða GSM 894 2114. Sjá nánar á www.starfatorg.is og www.hi.is/skolinn/laus_storf Laus er til umsóknar staða verkefnastjóra fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur. Kjör samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Um er að ræða fullt starf og nauðsyn- legt er að viðkomandi geti hafið störf 12. mars. Skrifleg umsókn með upplýsingum um menn tun, starfsferil og meðmæli sendist safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík, en hann veitir jafnframt nánari upplýsingar (hafthor.yngvason@reykjavik.is) Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2012. Leiðarljós Listasafns Reykjavíkur er að vera framúrskarandi alþjóðlegur vettvangur myndlistar sem leggur áherslu á markvissa þjónustu við ólíka hópa og er eftirsóknarverður viðkomustaður í daglegu lífi fólks. Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Verkefnastjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur Starfssvið: Starfið felst í miðlun fræðslu og upplýsinga um sýn- ingar og myndlist almennt til gesta í skipu lögðum heimsóknum í safnið (skólahópa á öllum skóla- stigum, frístundahópa og annarra hópa). Verkefna- stjóri undirbýr og sér um gerð fræðslu efnis, skipu- leggur og hefur umsjón með störfum leiðsögufólks sem annast leiðsögn fyrir almenn ing. Tekur þátt í hugmyndavinnu, rannsóknum og þróunarstarfi er tengjast fræðslu um myndlist og miðlun safna. Hæfniskröfur: Krafist er háskólamenntunar af framhaldsstigi á sviði myndlistar og/eða myndlistarsögu eða háskóla- menntunar af fyrsta stigi auk mikillar reynslu á starfssviðinu. Tölvukunnátta og færni í íslensku og ensku er mikilvæg. Starfið krefst mikils frumkvæðis, skapandi hugsunar, drifkrafts og góðra skipulags- og samskiptahæfileika. Næsti yfirmaður er safnstjóri Listasafns Reykjavíkur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.