Fréttablaðið - 21.01.2012, Qupperneq 54
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR
Eðlifræðingur / Verkfræðingur
Geislavarnir ríkisins óska eftir að ráða sérfræðing til starfa við
stofnunina.
Starfið felur einkum í sér verkefni vegna læknis fræðilegrar
notkunar jónandi geislunar og viðbúnaðar.
Starfið býður upp á mikla möguleika til þróunar í starfi.
Menntunarkröfur: Háskólamenntun í eðlisfræði, verkfræði eða
tæknifræði. Framhaldsmenntun er æskileg.
Góð íslensku- og enskukunnátta auk Norðurlanda máls
nauðsynleg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður M. Magnússon,
forstjóri, sími 442 8200.
Umsóknir um starfið skulu sendar Geislavörnum ríkisins,
Rauðarárstíg 10, 150 Reykjavík eða á póstfangið starf@gr.is,
eigi síðar en 24. janúar 2012.
Geislavarnir ríkisins eru með vottað gæðakerfi samkvæmt ISO
9001:2008 staðlinum og bjóða upp á góða starfsaðstöðu og
hvetjandi starfsumhverfi.
Sjá nánari upplýsingar um Geislavarnir ríkisins á
www.geislavarnir.iS
Umsjónarmaður fasteigna
Háskóla Íslands
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
120188
Laust er til umsóknar starf umsjónarmanns fasteigna á háskólasvæðinu.
Ráðið er í starfið frá 1. mars 2012 og til hálfs árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Starfið felst í alhliða umsjón húsnæðis, þ.m.t. umsjón með hússtjórnarkerfum, öryggismálum
og ræstingu. Viðkomandi sinnir einnig mikilvægu þjónustu- og upplýsingahlutverki við notendur
húsanna.
Hæfni- og menntunarkröfur:
Krafist er iðnmenntunar, tölvukunnáttu, þjónustulipurðar og hæfni í mannlegum samskiptum.
Viðkomandi þarf að vera duglegur, skapgóður og tilbúinn til að takast á við margvísleg verkefni.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af notkun öryggis- og hússtjórnarkerfa og hafi vald
á ensku og einu Norðurlandamáli.
Umsóknarfrestur er til 6. febrúar nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Vilhjálmur Pálmason,
deildarstjóri hjá rekstri fasteigna í síma 525 4365
eða GSM 894 2114.
Sjá nánar á www.starfatorg.is
og www.hi.is/skolinn/laus_storf
Laus er til umsóknar staða verkefnastjóra fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur.
Kjör samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Um er að ræða fullt starf og nauðsyn-
legt er að viðkomandi geti hafið störf 12. mars.
Skrifleg umsókn með upplýsingum um menn tun, starfsferil og meðmæli sendist safnstjóra Listasafns
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík, en hann veitir jafnframt nánari upplýsingar
(hafthor.yngvason@reykjavik.is)
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2012.
Leiðarljós Listasafns Reykjavíkur er að vera framúrskarandi alþjóðlegur vettvangur myndlistar sem leggur
áherslu á markvissa þjónustu við ólíka hópa og er eftirsóknarverður viðkomustaður í daglegu lífi fólks.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli
það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Verkefnastjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur
Starfssvið:
Starfið felst í miðlun fræðslu og upplýsinga um sýn-
ingar og myndlist almennt til gesta í skipu lögðum
heimsóknum í safnið (skólahópa á öllum skóla-
stigum, frístundahópa og annarra hópa). Verkefna-
stjóri undirbýr og sér um gerð fræðslu efnis, skipu-
leggur og hefur umsjón með störfum leiðsögufólks
sem annast leiðsögn fyrir almenn ing. Tekur þátt í
hugmyndavinnu, rannsóknum og þróunarstarfi er
tengjast fræðslu um myndlist og miðlun safna.
Hæfniskröfur:
Krafist er háskólamenntunar af framhaldsstigi á sviði
myndlistar og/eða myndlistarsögu eða háskóla-
menntunar af fyrsta stigi auk mikillar reynslu á
starfssviðinu. Tölvukunnátta og færni í íslensku og
ensku er mikilvæg. Starfið krefst mikils frumkvæðis,
skapandi hugsunar, drifkrafts og góðra skipulags- og
samskiptahæfileika.
Næsti yfirmaður er safnstjóri Listasafns
Reykjavíkur.