Fréttablaðið - 21.01.2012, Síða 65
KYNNING − AUGLÝSING Ferðir21. JANÚAR 2012 LAUGARDAGUR 5
4
Flugfrelsi heitir ný og spennandi vara sem Flugfélag Íslands hefur hafið sölu á. „Um er að ræða nokkurs konar
klippikort sem hentar vel þeim sem eru
mikið á ferðinni innanlands,“ útskýrir Eva
Björk Guðjónsdóttir, deildarstjóri þjónustu-
vers Flugfélags Íslands.
Flugfrelsi er ætlað fólki sextán ára og
eldra. Þá eru keyptir sex flugleggir á sér-
stöku tilboðsverði en Flugfrelsi kost-
ar 64.500 krónur sem gera 10.750 krón-
ur fyrir hvern fluglegg. „Þá eru skilmálar
Flugfrelsisins einnig mjög góðir. Til dæmis
er enginn bókunarfyrirvari og farið er
endurgreitt að fullu ef afbókað er og látið
vita fyrir brottför,“ útskýrir Eva Björk.
Hún útskýrir að Flugfrelsiskortin virki
svipað og klippikort. „Þegar kortið er keypt
fær kaupandinn númer kortsins og það
númer er gefið upp þegar flug er bókað og
það flug svo dregið af inneign á kortinu,“
lýsir hún.
Eva Björk segir sölu Flugfrelsisins fara vel
af stað og því ljóst að þessi nýjung leggst vel í
viðskiptavini Flugfélags Íslands. „Við höfum
líka ákveðið að bjóða upp á Flugfrelsi á til-
boðsverði út janúar,“ segir Eva Björk en á til-
boðinu kostar Flugfrelsiskortið 59.850 krón-
ur, eða 9.975 krónur flugleggurinn.
Afsláttarkjör fyrir börn og unglinga
Flugfrelsi er byggt á eldri vöru sem hefur
verið í boði hjá Flugfélagi Íslands. Flugfélag
Íslands hefur til dæmis síðan 2005 boðið
afsláttarkjör fyrir börn sem fljúga reglulega
ein á milli landshluta. „Við köllum þessa
krakka Flugkappa,“ segir Eva Björk glaðlega.
Afslátturinn fæst með því að foreldrar eða
forráðamenn kaupa kort með tíu flugleggj-
um á afsláttarkjörum. „Þessi kort eru mjög
vinsæl og eru Flugkapparnir orðnir margir.“
Árið 2008 bætti Flugfélag Íslands síðan
við nýrri vöru, SMU (sem þýðir: súper
mikilvægur unglingur) sem er inneignar-
kort með sex flugleggjum. „SMU er ætlað
fyrir tólf til sextán ára unglinga. Börnin
verða unglingar og unglingarnir verða full-
orðnir og fljótlega fór Flugfélag Íslands að
fá fyrirspurnir um sambærileg afsláttarkjör
fyrir fullorðna fólkið og þá varð Flugfrelsi
til,“ segir Eva Björk og er ánægð með frábær-
ar viðtökur.
Hægt er að kaupa og fá allar upplýsing-
ar um Flugfrelsi á heimasíðu Flugfélags
Íslands www.flugfelag.is.
Skilmálar eru mjög
góðir. Til dæmis er
enginn bókunarfyrirvari.
Flugfrelsi fyrir sextán ára og eldri
Flugfélag Íslands býður upp á nýjan kost fyrir fólk sem er mikið á ferðinni innanlands. Flugfrelsi kallast þessi nýja vara en í því felst að keyptir eru
sex flugleggir en kortin virka svipað og klippikort. Nýjungin leggst vel í viðskiptavini sem margir hverjir hafa nýtt sér þetta nýja tækifæri.
„Um er að ræða nokkurs konar klippikort sem hentar vel þeim sem eru mikið á ferðinni innanlands,” segir Eva Björk Guðjónsdóttir hjá Flugfélagi Íslands. MYND/STEFÁN
1 Meiji-helgidómurinn og Sensoji-hofið í Tókýó.
30 milljónir gestir árlega
Meiji-helgidómurinn var byggður
fyrir hundrað árum til að heiðra
keisarahjónin japönsku, Meiji og
Shoken. Sensoji-hofið sem einn-
ig er í miðri Tókýó var tileinkað
Bodhisattva Kannon, samúðar-
fyllsta Búddanum, árið 628.
2 Kashi Vishwanath-hofið í Varanasi á Indlandi.
21,9 milljónir gesta
Hofið, með sínum tveimur gullnu
hvolfþökum, stendur við vest-
ari bakka Ganges-fljótsins og er
ásamt f ljótinu einn heilagasti
staður hindúa.
3 Basilíkan í Guadalupe í Mexíkó borg.
20 milljónir gesta
Bygging eldri basilíkunnar hófst
snemma á sextándu öld og lauk
árið 1709. Hin nýja basilíka var
byggð upp úr 1970 og lítur út eins
og íþróttaleikvangur. Þar eiga að
komast fyrir um 50 þúsund gestir.
4 Tirupati Tirumala Devastha-nams-hofið í Andhra
Pradesh á Indlandi.
18,25 milljónir gesta
Hópur fólks af hindúatrú sem
lagði áherslu á jöfnuð og ást byrj-
aði byggingu þessa hofs fyrir um
1200 árum.
5 Notre Dame-dómkirkjan í París. 13,65 milljónir gesta
Notre Dame er vinsælasti ferða-
mannastaður Frakklands. Kirkj-
an var reist á árunum 1163 til
1345.
6 Sacré Coeur-basilíkan í París. 10,5 milljónir gesta
Basilíka hins heilaga hjarta
stendur björt og fögur á toppi
hæðar þar sem gott útsýni er yfir
Parísarborg.
Mest sóttu must-
erin og hofin
Vefsíðan www.travelandleisure.com hefur tekið saman
lista yfir þá helgu staði í heiminum sem eru mest
heimsóttir af ferðamönnum.
2
1
3
5
6