Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 97
LAUGARDAGUR 21. janúar 2012 65
HANDBOLTI Íslenska landsliðið
komst áfram í milliriðla á EM í
handbolta í Serbíu þrátt fyrir tap á
móti Slóvenum í gær og spilar sinn
fyrsta leik í milliriðlinum á móti
Ungverjum á morgun.
Króatar og Slóvenar hjálpuðu
strákunum upp úr riðlinum,
Króatar með því að vinna
Norðmenn í lokaleik riðilsins og
Slóvenar með því að gefa íslenska
liðinu tvö mörk í lok leiksins í gær.
Fjögurra marka sigur Slóvena
hefði komið Norðmönnum áfram
en þá hefðu Slóvenar líka farið án
stiga inn í milliriðilinn. Frétta-
blaðið hitti á Robert Hedin, þjálf-
ara norska liðsins, í gær.
“Þeir fengu tækifæri til þess að
komast áfram með tvö stig og þeir
nýttu sér það. Þetta er kannski
ekki mjög heiðarlegt en um þetta
snýst leikurinn og ég skil það. Ég
tel að það hafi verið rétt hjá þeim
að gera þetta,” sagði Hedin.
Íslenska liðið fer ekki með
neitt stig með sér upp úr
riðlinum en Heims-, Evrópu- og
Ólympíumeistarar Frakka eru í
sömu stöðu eftir óvænt tap á móti
Ungverjum í gær. Danir eru líka
án stiga þegar keppni í milliriðli
eitt hefst í dag og það er óhætt
að segja að það hafi verið nóg af
óvæntum úrslitum í Serbíu.
Ungverjar hafa komið mjög
á óvart í keppninni en þeir hafa
ekki enn tapað leik. Ungverska
liðið hafi gert jafntefli við Rússa
og Spánverja áður en kom að leikn-
um við Frakka í gær.
Íslenska liðið spilar síðan við
Spánverja í öðrum leik sínum
á þriðjudaginn og mætir síðan
Frökkum á miðvikudag. - óój, - hbg
Íslenska handboltalandsliðið mætir sjóðheitu liði Ungverja á sunnudaginn:
Án stiga eins og Frakkar og Danir
ERFIÐIR LEIKIR FRAMUNDAN Róbert Gunnarsson og félagar í íslenska landsliðinu
mæta Ungverjum á morgun en ungverska liðið er taplaust á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EM 2012 Varnarjaxlinn Sverre
Andreas Jakobsson var með
böggum hildar eftir tapið gegn
Slóvenum í gær. Sverre og félagar
hans í vörninni hafa engan veginn
fundið taktinn það sem af er EM.
„Við erum vel undir búnir, erum
með áætlun en við erum ekki með
teng ingu á milli manna og ekki
með það traust sem þarf að vera
á milli manna. Það er engin sam-
vinna á milli varnar og mark-
vörslu. Við erum ekki að hjálpa
mark vörðunum. Það er mikið
óöryggi í varnar leiknum og vantar
15 til 20 prósent upp á það sem
við erum að reyna að gera,“ sagði
Sverre svekktur.
„Ég held að hausinn sé alveg
rétt skrúfaður á menn. Mótlætið
brýtur okkur, stemningin brýtur
okkur líka en við erum að reyna.
Þetta bara smellur ekki saman hjá
okkur. Það er stanslaust mótlæti
og við erum í vandræðum,“ segir
Sverre en hann er eðlilega fúll
með að fara stigalaus í milliriðil.
„Það verður ekkert auðvelt að
rífa sig upp eftir þetta. Nú taka
við gríðarlega erfiðir leikir. Þar
verður allt að vinna en engu að
tapa. Við þurfum líka að hafa
meira gaman af þessu og finna
okkar leik aftur. Við viljum ljúka
þessari keppni á jákvæðum nótum
og munum rífa okkur upp. Nú
reynir á að við verðum að axla
ábyrgð.“ - hbg
Hvað segir Sverre Jakobsson um varnarleikinn?
Það vantar traust
SVERRE JAKOBSSON Sést hér í vörninni á
móti Slóveníu i gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EM 2012 „Þetta er bara 5. flokks
frammistaða hjá okkur. Án þess
að ég muni það nákvæmlega þá
held ég að þessi leikur sé eitthvað
það lélegasta sem við höfum sýnt í
langan tíma,“ sagði hundsvekktur
Arnór Atlason eftir tapið gegn
Slóveníu í gær.
„Síðustu tveir leikir hafa verið
lélegir. Sóknin hikstaði aðeins í
dag en við skorum samt 32 mörk.
Við erum langt á eftir þeim í
varnar leiknum og ég veit ekki
hvað er að. Ég er nánast orðlaus
yfir þessu.“
Arnór segir að augljóslega sé
ýmislegt að hjá liðinu og þar á
meðal stemningin.
„Mér finnst vanta stemningu
í okkur. Við erum allt of rólegir.
Það er óþolandi. Við þurfum að
vera klikkaðir ef við ætlum að ná
árangri. Það vantar alla geðveiki
í okkur og þetta tap er alveg rosa-
lega sárt,“ segir Arnór en hann
hafi ekki áttað sig á því fyrr en
eftir leikinn að Slóvenar hefðu
gefið Íslandi mörk undir lokin.
Arnór segir að menn muni hafa
metnað til þess að mæta í milli-
riðil með ekkert stig.
„Ef menn hafa ekki metnað til
þess þá eiga þeir að fara heim. Þá
hafa þeir ekkert að gera hérna.
Við eigum eftir að spila í lands-
liðstreyjunni áfram á þessu móti
og þeir sem hafa ekki áhuga á því
eiga að fara heim.“ - hbg
Arnór Atlason vill sjá meiri stemningu hjá liðinu:
Það vantar geðveikina
BESTI MAÐUR ÍSLENSKA LIÐSINS Arnór Atlason var valinn besti leikmaður Íslands af
mótshöldurum en hann var með 5 mörk og 8 stoðsendingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Evrópustofa – upplýsingamiðstöð ESB
á Íslandi tekur til starfa í dag,
laugardaginn 21. janúar 2012.
Opið hús milli kl. 11 og 16 á
Suðurgötu 10 í Reykjavík.
Suðurgata 10 – 101 Reykjavík – Sími 527 5700 – evropustofa@evropustofa.is – evropustofa.is
Ráðhúsið
T
jö
rn
in
Alþingi
Landakotskirkja
Su
ðu
rg
at
a
Túngata
Vonarstræ
ti
Tj
ar
na
rg
at
a
P
OPIÐ HÚS Í DAG!
Hvað viltu vita?
Hlutverk Evrópustofu er að
auka skilning og þekkingu á
Evrópusambandinu. Til okkar
er fólk velkomið, óháð afstöðu
til ESB eða mögulegrar aðildar
Íslands að sambandinu.
Allir velkomnir!
Í opna húsinu geta gestir fræðst
um Evrópusambandið og prófað
þekkingu sína í Evrópumálum,
lagt fram spurningar og tjáð
skoðanir sínar á „kassanum“ þar
sem hægt er að kveða sér hljóðs
yfir daginn með örstutt erindi.
Léttar veitingar, kaffi og kakó í
boði fyrir börnin.
Kl. 11:00: Opnunarathöfn. Birna Þórarinsdóttir,
framkvæmdastýra Evrópustofu, Oddný G. Harðardóttir
fjármálaráðherra og Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi.
Ljósmyndasamkeppni kynnt.
Kl. 11:30: „Kassinn“. Fulltrúar Heimssýnar og Sterkara
Íslands stíga á stokk og viðra skoðanir sínar.
Kl. 12:00: Sigríður Thorlacius tekur lagið við gítarundirleik
Guðmundar Óskars Guðmundssonar.
Kl. 12:30: Belgískar vöfflur, kaffi og heitt kakó.
Kl. 13:00: „Kassinn“. Umræður á kassanum
um kosti og galla krónu og evru.
Kl. 14:00: Sigríður Thorlacius tekur lagið við gítarundirleik
Guðmundar Óskars Guðmundssonar.
Kl. 14:30: ESB kakan skorin. Stór súkkulaðikaka í boði fyrir
gesti og gangandi. Komið og fáið sneið af „Evrópukökunni“.
Dagskrá: