Fréttablaðið - 21.01.2012, Síða 102
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR70
PERSÓNAN
Bæjarlind 16 - 201 Kópavogur - Sími 553 7100 -www.linan.is
Opið mán - fös 12:00 - 18:00 I laugardaga 11:00 - !6:00
25%afsláttur
25%afsláttur
20%afsláttur
25%afsláttur
44%afsláttur
30%afsláttur
Bordeaux - eikarskápar
Bombai
Warmland Verdi
Fama
Edge
áður kr. 206.800 / nú kr. 166.400
áður kr. 327.600 / nú kr. 245.700
áður kr. 136.900 / nú kr. 95.800
áður kr. 248.800 / nú kr. 186.600
áður kr. 8.750
nú kr. 4.900
Stærð: 200x280 áður kr. 506.800 / nú kr. 379.000
útsalanenn í gangi
kúruteppi 170x130
Takmarkað magn af hverri vöru
Þórunn Erna Clausen, ekkja tónlistar-
mannsins Sjonna Brink, ætlar að gefa
út lag síðar á þessu ári sem Sjonni var
að vinna að þegar hann lést fyrir ári,
langt fyrir aldur fram.
Lagið verður unnið í samvinnu við
Vigni Snæ Vigfússon úr hljómsveitinni
Vinum Sjonna. „Ég mun reyna að gera
allt sem ég get til að leyfa sem flestum
að njóta tónlistarinnar hans,“ segir
Þórunn Erna.
Hún er þessa dagana að æfa fyrir
leikritið Gulleyjuna á Akureyri. Þar
gerðist skrítið atvik þegar hún kom
að tölvunni sinni, sem var í eigu
Sjonna, með opnu upptökuforriti þar
sem prufuútgáfu af lagi hans var að
finna. „Ég hafði hugsað mér að klára
þetta lag en það eru svo mörg verkefni
búin að vera í gangi, þannig að ég var
búin að gleyma þessu. Þetta var mjög
skrítið því ég hef ekki opnað þetta
forrit sjálf. Hann hefur kannski verið
að minna á lagið,“ segir hún og á við
Sjonna.
Síðasta þriðjudag var ár liðið síðan
Sjonni dó og af því tilefni ákvað
Þórunn Erna að bjóða aðdáendum
hans að sækja tónlist hans frítt á
heimasíðu hans. „Ég fékk hugmyndina
á þriðjudagsmorgni. Hann gaf alltaf
svo mikið af sér sem manneskja og ég
hugsaði með mér að það væri alveg í
hans anda að gefa tónlistina hans.“ - fb
Gefur út nýtt lag með Sjonna
LAG MEÐ SJONNA Þórunn Erna Clausen ætlar að gefa út nýtt lag með Sjonna
Brink síðar á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta eru mjög amerískar upp-
skriftir. Ég held að þær henti
íslenskum bragðlaukum vel,“ segir
Bandaríkjamaðurinn Ben Chomp-
ers.
Hann hefur stofnað bakaríið
Hveiti og smjör sem sérhæfir sig
í kökum og alls kyns eftirréttum.
Hið óvenjulega er að Chompers
sendist með vörurnar sjálfur um
Reykjavík á sérhönnuðu reiðhjóli og
bankar upp á bæði hjá fyrirtækjum
og í heimahúsum.
Hægt er að gerast áskrifandi á
heimasíðunni hans og borga átta
þúsund króna mánaðargjald gegn
því að Chompers sendist einu sinni
í viku með mismunandi tegundir
gómsætra eftirrétta, átta skammta,
sem áskrifendurnir geta skoðað
fyrirfram á heimasíðu hans og
pantað. Chompers er í samstarfi
við kaffihúsið Litla bóndabæinn við
Laugaveg 41 og notar eldhúsið þar
við baksturinn. Í staðinn er hægt að
kaupa bakkelsið hans á kaffihúsinu.
Chompers bakar hnetus mjörs-
bökur, jarðar berja kökur, súkkulaði-
smá kökur, döðlu kökur með
karamellu kremi og margt fleira.
Hann starf rækir einnig veislu-
þjónustu sem hægt er að panta
hvenær sem er og Björk Guðmunds-
dóttir er einn þeirra viðskiptavina
sem hafa hrifist af kökunum hans.
Bakaríið er umhverfisvænt að því
leytinu að Chompers notast við hjól
en ekki bíl, kökunum er pakkað
inn í umhverfisvænan pappír og
þær eru geymdar í sérhönnuðum
neongrænum reiðhjólakössum.
Hinn þrítugi Chompers starfaði
hjá tölvu leikja fyrir tækinu CCP
ásamt íslenskum eigin manni
sínum. Eftir að hafa flutt til Þýska-
lands í eitt ár sneru þeir aftur til
Íslands. Chompers fékk vinnu við
þrívíddarmyndina Hetjur Valhallar
– Þór en að verkinu loknu var
honum sagt upp ásamt sjö öðrum
starfsmönnum. Þá fékk hann
hugmyndina að bakaríinu. „Ég
fékk innblástur frá konu sem gerir
svipaða hluti í New York, nema með
ís, og fyrirtækið heitir Milk Made.
Eitt af því sem rak mig af stað var
einnig hversu íslensku bakaríin eru
lík.“
Chompers stundar víkinga þrek
af miklum krafti hjá Mjölni og
segir það fara vel saman með öllu
bakkelsinu. „Ég bjó til aug lýsingu
með einum kennaranum sem er með
rosa lega maga vöðva. Hann heldur á
einni kökunni og þar stendur: „Einu
sinni í viku getur ekki skaðað“.
Hug myndin er að jafnvel hann með
nánast enga líkams fitu getur borðað
kökur og smá kökur.“
Nánari upplýsingar um bakaríið
má finna á síðunni Hveitiogsmjör.
com. freyr@frettabladid.is
BEN CHOMPERS: ÞETTA ERU MJÖG AMERÍSKAR UPPSKRIFTIR
Bakar kökur og hjólar með
þær til viðskiptavina sinna
„Við hittum hann og toguðum hann í létta mynda-
töku,“ segir Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþrótta-
fréttamaður Sjónvarpsins.
Hann og kollegar hans, Einar Örn Jónsson og
Henry Birgir Gunnarsson, hittu knattspyrnustjórann
heimsþekkta, Avram Grant, í Serbíu þar sem þeir eru
staddir vegna EM í handbolta.
„Við spjölluðum aðeins við hann og Avram hlóð í
nokkrar sögur af Hemma Hreiðars en hann þjálfaði
hann í Portsmouth,“ segir Þorkell Gunnar.
Grant, sem hefur einnig stýrt Chelsea og West
Ham, var nýlega ráðinn knattspyrnustjóri Partizan
Belgrad í Serbíu og rákust þeir félagar á hann þegar
þeir fengu sér mat um borð í fljótabát við ána Sava.
Aðspurður segir Þorkell Gunnar að tíminn í
Belgrad hafi verið skemmti legur. „Þetta er búið að
vera voða fínt fyrir utan úrslitin í fyrsta leik. Þótt það
sé smá kuldi er hann ekkert svo mikill. Hann bítur
aðallega í kinnarnar.“
Helst kvartar hann yfir matnum í handbolta-
höllinni þar sem Ísland hefur spilað. „Það er alltaf
boðið upp á einhverjar brimsaltar kryddpylsur.
Það borðar þær ekki nokkur maður nema helst
Einar Örn, hann er mikið fyrir saltaðan mat,“ segir
Þorkell Gunnar léttur. „Ég er eiginlega farinn að sjá
eftir að hafa ekki tekið með fullt af bollasúpum eins
og tengdamamma lagði til.“ - fb
Sagði sögur af Hemma Hreiðars
MEÐ AVRAM GRANT Vel fór á með Þorkatli Gunnari, Henry
Birgi og knattspyrnustjóranum Avram Grant í Serbíu.
MYND/EINAR ÖRN JÓNSSON
HJÁ KÖKUKÖSSUM Ben
Chompers sendist með
vörur sínar í þar til gerðum
kössum sem eru festir á
reiðhjól hans. Verið er að
leggja lokahönd á kassana.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Svala
Hjörleifsdóttir
Aldur: 28 ára.
Starf: Framkvæmda-
stýra og hönnuður í
Undralandinu.
Foreldrar: Sigur-
björg Guðmundsdóttir og Hjörleifur
Pétursson atvinnubílstjóri.
Fjölskylda: Gift Herði Ágústssyni,
framkvæmdastjóra og einum af
eigendum Macland. Þau eiga tvær
dætur, Matthildi Evu 3ja ára og
Hrafnhildi Lilju 19 mánaða.
Búseta: Álfheimar, Reykjavík.
Stjörnumerki: Fiskur.
Svala Hjörleifsdóttir er ein af fjórum
bekkjarsystrum úr LHÍ sem stofnuðu
auglýsingaskrifstofuna Undralandið nú
nýlega.