Fréttablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2012 13 Í grein minni Hrunið 2016 sem birtist þann 11. febrúar hér í Fréttablaðinu fór ég yfir sviðs- mynd sem lýsir því hvernig gjaldeyrishöft, eignabóla og röng stefna ríkisstjórnar og Seðlabanka getur leitt til annars efnahagshruns. Mín skoðun er að hver dagur sem líður á meðan ekki er snúið frá rangri stefnu sé þjóðinni afar dýr. Nú eru meira en þrjú ár liðin frá hruni og atvinnuleysi er enn alltof mikið og fjárfesting í sögulegu lágmarki. Verðbólga er mikil, sem og skuldsetn- ing, vextir háir en það heggur enn mjög í ráðstöfunartekjur heimilanna og ekki bætir stöð- ugt aukin skattheimta ríkisins stöðuna. Gjaldeyrishöft lama atvinnulífið og brengla verð- myndun þannig að fjármagn leitar ekki í hagkvæmustu not heldur frekar í froðuna sem byggist upp í kringum eignaból- ur á fastafjármunum, ekki síst húsnæði. Það er nauðsynlegt að bregðast hratt við og rjúfa þenn- an vítahring. Það verður best gert með því að ráðast gegn höf- uðmeinsemdinni, það er gjald- eyrishöftunum. Margir kaflar hafa verið skrifaðir í hagfræði um hvernig sé best að afnema gjaldeyris- höft, eftir gengisfall og fjár- málakrísu. Seðlabankinn er með „áætlun“ sem því miður er mein- gölluð og gengur út á það helst að leysa úr snörunni óábyrga erlenda lánardrottna sem áttu stóran þátt í hruninu. Til þess ætlar Seðlabankinn, fyrir hönd okkar Íslendinga, að eyða mikl- um tíma og fjármunum þar sem þjóðin endar með reikninginn, skattpínd innan gjaldeyrishafta eins og lýst var í sviðsmyndinni í minni fyrri grein. Áætlun og framkvæmd afnáms gjaldeyrishafta er ein mikilvægasta efnahagsaðgerð Íslandssögunnar, þar verðum við að hafa hraðar hendur og hafa skynsemi og þor í að velja einföldustu og bestu leiðina. Hún er að afnema gjaldeyrishöft með því að taka upp alþjóðlega mynt, einhliða. Með því vinnst margt: ■ Afnám gjaldeyrishafta hefur alltaf leitt af sér inn- streymi fjármagns, ekki útstreymi þar sem þessi leið hefur verið farin ■ Hagvöxtur tekur strax við sér því fjárfesting í hagkerfinu eykst mjög hratt ■ Alþjóðleg fyrirtæki setja upp útibú eða kaupa innlenda starf- semi á sviði banka, trygginga, olíudreifingar, á matvörumark- aði og víðar, sem eykur sam- keppni og bætir hag neytenda ■ Verðtrygging fellur niður, því hennar er ekki þörf þegar alþjóðleg mynt er annars vegar ■ Vextir lækka mjög hratt, á nokkrum misserum, ekki árum, að því sem gerist í viðkomandi mynt á alþjóðlegum markaði ■ Afkoma ríkis batnar, bæði vegna lægri vaxta og aukinna tekna með hagvexti, og forsend- ur eru til þess að lækka skatta Allt þetta eykur strax ráðstöf- unartekjur heimilanna. Verð- trygging hverfur, vextir lækka, atvinna eykst, skattar lækka og samkeppni á markaði skilar lægra verði. En það sem mestu skiptir er að ónýtri peninga- stjórn er skipt út fyrir alþjóð- lega viðurkennda mynt. Það hefur í för með sér að Ísland er aftur opið land, þar sem ekki þarf að sækja um leyfi til þess að eiga alþjóðleg viðskipti eða t.d. fyrir farareyri erlendis. Með því er tryggt að íslenska krónan getur ekki vaxtapínt almenn- ing né búið til þær eignabólur og kreppur sem fylgt hafa henni um árabil. Í hagfræði er alkunna að ekk- ert fæst ókeypis. Kostnaður- inn við að afsala sér sjálfstæðri peningastjórn er sá að ekki er hægt að prenta peninga í eigin mynt og þar með verðfella þá t.d. til að bjarga bönkum. Miðað við nýafstaðna reynslu heimsins af slíku myndu líklega marg- ir segja að þetta væri kostur, en ekki galli á því að skipta út mynt. Bankar þurfa þá að standa undir sjálfum sér og geta ekki velt reikningnum yfir á almenn- ing. Eins er það svo að gengis- felling eða verðbólga getur á stundum létt undir hjá einhverj- um atvinnugreinum eða hópum, en skaðar yfirleitt meginþorra almennings. Ríkið þarf þá líka að sýna meiri ráðdeild og getur ekki rekið sig með fjárlagahalla. Fjárlagahalli í dag er skattar á morgun, þannig að slík ráðdeild ætti að auka hagsæld til lengri tíma, það er þá ekki verið að ganga á hag framtíðarkynslóða. Að skipta út myntinni tekur innan við 3 mánuði. Ísland getur þess vegna valið hvaða dagsetn- ingu sem er, t.d. 30. júní 2012. Hægt er að taka upp evru, dollar eða Kanadadollar en við vitum að Kanada er mjög vinsamlegt í garð þess að við tökum upp mynt þeirra. Sú mynt er talin einhver sú traustasta í heiminum í dag, því náttúruauðlindir landsins eru gríðarlegar og framleiðsla þess mjög svipuð því sem gerist á Íslandi. Áhætta af einhliða upptöku er lítil þar sem hægt er að hafa tímabundin höft á fjármagns- flutningum þar til bankar eru farnir að geta fjármagnað sig erlendis í sinni nýju heimamynt. Dæmin sýna að endurhverf við- skipti og sértryggð fjármögn- un íslenskra banka yrðu strax auðveldari ef eignir þeirra væru í viðurkenndri mynt í stað íslensku krónunnar undir gjald- eyrishöftum. Þetta, auk þess trúverðugleika sem ný mynt gefur landinu og atvinnulífinu, mun gera aðlögun að afnámi allra hafta skjótvirka. Andstæðingar einhliða upp- töku segja oft að sú leið sé of dýr og láta þar með að því liggja að aðrar leiðir séu ódýrari. Í því felst sú ranga forsenda að það sé til dæmis ókeypis að vera með gríðarlegan gjaldeyrisforða að láni til þess að styðja stefnu um afnám gjaldeyrishafta sem á endanum er dæmd til að mis- takast með miklum skaða fyrir íslenska atvinnuvegi og á endan- um allt hagkerfið. Einnig er það í besta falli óskhyggja að halda því fram að aflétting gjald- eyrishafta í gegnum þátttöku í Efnahags- og myntbandalaginu (EMU) verði ókeypis. Í fyrsta lagi munum við þurfa að bíða í yfir áratug eftir þeirri lausn með tilheyrandi skaða af óbreyttu ástandi og í öðru lagi munum við án efa þurfa að fórna umtalsverðum auðlindahags- munum þjóðarinnar í samn- ingum til þess að komast inn í Evrópusambandið, verði það samstarf og sú mynt ennþá til staðar þegar á hólminn verður komið. Það er hins vegar skiljan- legt að Seðlabankinn vilji ekki skoða einhliða upptöku þar sem sú leið felur í sér að Seðlabank- inn er lagður niður. Afnám gjaldeyrishafta með einhliða upptöku er hins vegar ódýr- asta leiðin fyrir aðra Íslendinga vegna þess hversu dýr gjaldeyr- ishöft eru íslenskum þegnum og atvinnulífi. Í fyrri grein minni, Hrunið 2016, færði ég fyrir því rök að ef ekkert er að gert í peningastjórn þjóðarinnar er líklega annað hrun í uppsiglingu. Ég rita þessar greinar vegna þess að ég lærði af reynslunni frá fyrra hruni að það verður að tala um svona hluti í almennri umræðu á Íslandi. Fyrir hrun byrjaði ég að vara við ójafnvægi og erfiðleik- um á Íslandi allt frá árinu 2003 og þá spáði ég því að haustið 2007 myndu eignamarkaðir og krónan gefa mikið eftir við lok stórframkvæmda fyrir austan og þegar alþjóðlegt áhættuálag myndi aukast. Þær viðvaranir mínar náðu þá því miður ein- ungis til bankastjóra, ráðherra, starfsmanna Seðlabankans og annarra innan fjármála- og embættismannakerfisins. Ég vil því skrifa þessar greinar núna opinberlega fyrir almenning til að auka meðvitund um hætturn- ar af rangri stefnu og benda á að hægt sé að bregðast við þeim. Við Íslendingar höfum ekki efni á öðru en að bregðast hratt við, afnema gjaldeyrishöft og skipta út ónýtri peningastjórn á þessu ári. Afstýrum öðru hruni Fjármál Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur Afnám gjaldeyrishafta með einhliða upp- töku er hins vegar ódýrasta leiðin fyrir aðra Íslendinga vegna þess hversu dýr gjaldeyrishöft eru íslenskum þegnum og atvinnulífi. Bless, Jakobína Jakobína Ingunn Ólafsdótt-ir, doktorsnemi í menntunar- fræðum, sendir mér kveðju sína í Fréttablaðinu þann 9. febrúar. Í greininni segir hún, að „þekking á málefnum uppeldis og menntun- ar sé lokuð inni í fílabeinsturnum menntaelítunnar“. Stöku sinnum „geysist hins vegar fram á völl- inn leikmenn eins og veðurfræð- ingar og gamlir stjórnmálamenn með illa ígrundaðar fullyrðing- ar“. Doktorsnemanum þykir sem sé ekki við hæfi að fólk eins og veðurfræðingar og gamlir stjórn- málamenn tjái sig um menntun- armál. Auk þess segir hún að ég sé hvergi nærri nógu menntaður til þess að geta haft á þeim mark- verða skoðun. Svona er víst talað úr fílabeinsturnunum. En hvers eiga veðurfræðingar að gjalda? Samt segir doktorsneminn: „Vissulega er það áhyggjuefni að 25% drengja geti ekki lesið sér til skilnings“. Hún nefnir hins vegar ekki með einu orði hvað beri að gera til þess að ráða bót á því. Þó hún vilji helst meina mér það get ég þó ekki látið hjá líða að nefna aftur hann pabba minn. Hefði Jakobína Ingunn Ólafs- dóttir verið kennari hjá honum og ekki náð meiri árangri með bekk- inn sinn eftir tíu ára starf en svo að fjórði hver drengur í bekkn- um hefði ekki getað lesið sér til skilnings hefði hann pabbi minn ekki endurráðið hana til kennslu barna vestur á Ísafirði. Það hefði svo sem verið í lagi. Hún hefði þá bara getað farið í doktorsnám í menntunarfræðum. Í lokin ræðir doktorsneminn um grunnskólann á síðustu öld. Hún segir: „Eflaust má gera því skóna að hversu vel heppnuð þöggunin var í fyrirhrunssam- félaginu megi rekja til afleits upp- eldis í grunnskólum á síðustu öld.“ Nú sé ég ekki betur af mynd- inni, sem greininni fylgdi, en að doktorsneminn hafi – rétt eins og ég – hlotið sitt uppeldi í grunn- skólum síðustu aldar. Ég er nú þokkalega ánægður með það grunnskólauppeldi sem ég hlaut. Doktorsneminn telur sig hins vegar hafa hlotið þar afleitt upp- eldi. Mikið er það nú leiðinlegt. En fólk ber víst uppeldisins merki. Svo er sagt. Við náum því örugglega ekki saman – enda sitt hvorum megin veggjar fílabeinsturnsins. Bless, Jakobína. Farnist þér vel í þínu námi. Menntamál Sighvatur Björgvinsson fv. ráðherra Við náum því örugglega ekki saman – enda sitt hvorum megin veggjar fílabeinsturnsins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.