Fréttablaðið - 16.02.2012, Síða 62

Fréttablaðið - 16.02.2012, Síða 62
16. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR46 MORGUNMATURINN Barði Jóhannsson hefur ásamt Daniel Hunt úr ensku hljómsveitinni Ladytron samið tónlistina við banda- rísku spennumyndina Would You Rather. „Við vorum búnir að gera músík saman sem hljóm- aði svolítið eins og tónlist við þriller. Síðan heyrðu menn þetta og vildu fá okkur í þetta,“ segir Barði. Hvernig mynd er þetta? „Hún er ágæt. Það eru allir pyntaðir og drepnir,“ segir Barði hreint út en þetta er í fyrsta sinn sem hann semur tónlist við bandaríska kvikmynd. „Þetta er það fyrsta sem ég geri fyrir Bandaríkin, fyrir utan að ég hef verið með músík í sjónvarpsþáttum, þannig að þetta er voða spennó og gaman,“ segir hann. „Það er verið að ræða framhaldið og ég á von á að það komi fleiri myndir í kjölfarið. Ég hef verið að ræða við leikstjóra næstu myndar en svona ferli tekur langan tíma og hún kemur kannski ekki út fyrr en eftir tvö ár.“ Leikstjóri Would You Rather heitir David Guy Levy og er ungur og upprennandi, bæði sem leik- stjóri og framleiðandi. Biblía bandaríska kvik- myndaiðnaðarins, Variety, valdi hann sem einn af eftirtektarverðustu framleiðendunum í Holly- wood. Barði á reyndar enn eftir að hitta hann, sem er kannski ekki skrítið því öll vinnan hans við tón- listina fór fram á Íslandi. Með aðalhlutverkin fara Brittany Snow, sem hefur leikið í sjónvarpsþáttunum American Dreams, Nip/ Tuck og Harry´s Law, og Jeffrey Combs, sem eitt sinn lék í vísindaskáldsögutryllinum Re-Animator sem er einmitt í miklu uppáhaldi hjá Barða. Einn- ig er John Heard, sem er þekktur úr Home Alone- myndunum, í leikaraliðinu. „Það er engin stjarna þarna en þetta er allt fólk sem er búið að vera að gera eitthvað spennandi.“ Inntur eftir því hvort hann fái ekki vel borgað fyrir verkefnið segir Barði það vera langt í frá. „Ekki fyrir svona amerískar indí-myndir. Það er rosalega lítill peningur.“ - fb Semur fyrir Hollywood-mynd TÓNLIST VIÐ ÞRILLER Barði Jóhannsson og Daniel Hunt hafa samið tónlist við bandarísku spennumyndina Would You Rather. Leikaraliðið úr sjónvarpsþáttunum Game of Thrones tjáir sig um veru sína á Íslandi í nýju kynningarmyndbandi um þættina sem var tekið upp meðan á tökum stóð hér á landi í fyrra. „Þetta hefur verið ein ótrúlegasta lífs- reynsla sem ég hef upplifað, algjörlega epísk,“ sagði Kit Harington, sem leikur Jon Snow. „Það hefur verið ótrúlega kalt en maður getur samt ekki verið annað en ánægður því við höfum fengið að njóta stórkostlegrar náttúru- fegurðar.“ John Bradley tekur í sama streng og er ánægður með íslenska tökustaðinn. „Það hjálpar leikurunum að vera í raunveru- legum kringumstæðum. Það hefði verið hægt að reyna að búa þetta umhverfi til með tölvubrellum en það er engin þörf fyrir það því hérna er allt til staðar,“ sagði Bradley og bætti við að kuldinn hafi verið svakalegur. „Ég hef ekki hugsað um annað síðan ég kom hingað.“ Leikstjórinn og meðframleiðandinn Alan Taylor segir að íslenska náttúran hafi veitt leikurunum mikinn innblástur. „Með því að koma hingað og láta sér verða kalt, falla næstum fram af klettahömrum og detta næstum ofan í sprungur hefur þessi þáttaröð orðið mun raunverulegri en ella.“ Game of Thrones 2 hefur göngu sína á HBO-sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum 1. apríl. Mikil eftirvænting ríkir yfir þáttunum og hafa yfir fimm milljónir manna séð eldra kynningarmyndbandið sem birtist í lok janúar. - fb Ótrúleg lífsreynsla á Íslandi EPÍSKT Kit Harington við tökurnar á Íslandi. Hann segir upplifunina hafa verið algjörlega epíska. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Mae-Ya Sukhothai var stofnað árið 2007. Við leggjum áherslu á bragðmikla og góða rétti á viðráðanlegu verði. Einnig getur þú skoðað okkur á www.thaimatur.is 3 réttir úr hitaborðið á aðeins 1.050 kr. „Ég reikna með að þetta taki svona tíu mánuði upp í ár,“ segir Símon Halldórsson, hjólreiðakappi, stál- smiður og vélstjóri, sem hyggst leggja í hjólreiðaferð frá Íslandi til Kína nú í lok mars. Símon hefur að eigin sögn gengið með þennan draum í maganum í mörg ár. Undirbúningurinn er búinn að taka hann um tvö ár í það heila og enn er fjöldi lausra enda sem á eftir að hnýta. En hvernig hjólar maður til Kína? „Þú stígur fyrst á annan pedalann og svo hinn,“ segir Gunnar og hlær. Hann segir það vera mjög mikinn misskilning að aðeins fólk í full- komnu formi geti lagt í svona ferðir. „Maður þarf að sjálfsögðu að vera í góðu formi, og vanur því að hjóla, en oft á tíðum er þetta bara venju- legt skrifstofufólk,“ segir Símon sem þekkir engin fordæmi fyrir svona langri ferð frá Íslandi. Símon mun hefja ferðina í Hafnar firði. Hann tekur svo Nor- rænu yfir til Danmerkur, fer þaðan til Þýskalands, svo Póllands og áfram. „Samkvæmt planinu kem ég til með að fara í gegnum 21 land, sem eru auðvitað misstór,“ segir Símon. Hann verður einn á ferð, sem hann segir vera bæði jákvætt og neikvætt. „Það gefur manni mikið frelsi að vera einn, en á sama tíma geta litlir hlutir eins og að fara inn í verslun eða á klósettið orðið flóknir þar sem enginn er til að passa búnaðinn á meðan. Það hafa samt margir farið í sams konar ferðir einir, og ég þekki engin dæmi þess að fólk hafi glatað búnaðnum sínum,“ segir Símon. Allur farangur verður í töskum á hjólinu, en hann verður með full- kominn útilegubúnað með í för og ætlar að spara pening með því að gista sem mest í tjaldi. Ferðina telur hann koma til með að kosta á milli tveggja og þriggja milljóna króna fyrir utan allan búnað. „Ég hef nú reyndar ekki tekið þetta allt saman, en ég ætla bara að láta mína peninga duga,“ segir Símon sem er enn ekki búinn að finna sér neina styrktaraðila. Hægt verður að fylgjast með ævintýrinu á heimasíðunni fjalla- kall.wordpress.com. tinnaros@frettabladid.is SÍMON HALLDÓRSSON: STÍGUR FYRST Á ANNAN PEDALANN OG SVO HINN Hjólar frá Íslandi til Kína HJÓLIÐ HLAÐIÐ Öllum farangri verður hlaðið á hjólið, sem Símon segir vera orðið frekar þungt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Ég fæ mér brauð með banana og strái hörfræjum og sólblóma- fræjum yfir. Svo fæ ég mér kakó- malt með.“ Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir, annar eigandi Minicards.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.