Fréttablaðið - 18.02.2012, Qupperneq 28
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR28
Þ
að er bara engin
ástæða til að vera
með tvo bíla. Ég er
enginn extremisti,“
segir Ólafur Árna-
son, sviðsstjóri hjá
verkfræðistofunni EFLU. Hann
hjólar til og frá vinnu á hverjum
degi, sumar, vetur, vor og haust,
og notar fjölskyldubílinn bara
þegar nauðsyn krefur. Hann
býr ásamt konu sinni og þremur
börnum í Laugar dalnum en
vinnur á Höfða bakka. Því tekur
ferðin til vinnu hálftíma á hjólinu,
fimm mínútum skemur eða betur,
eftir því hvernig viðrar.
Ólafur segir fyrirkomulagið
einfalda líf fjölskyldunnar, frá
því þau voru saman um einn bíl.
„Þetta hefur gert það að verkum
að við höfum skorið verulega
niður í kostnaði og þetta eykur
svigrúmið hjá okkur báðum,“
segir hann.
Borgin stendur sig vel
Ólafi þykir Reykjavíkurborg
standa sig vel í að halda stígakerf-
inu opnu. „Mér finnst þau sýna
metnað í að gera það. Höfðabakka-
hverfið er ekki vel staðsett með
tilliti til aðahjólreiðastíga, en þau
ná samt að halda þessu í horfinu.
Ég lendi í mesta lagi í vandræðum
á leið upp Bíldshöfðann, ef færð-
in er slæm. Þá lauma ég mér með
umferðinni, þó mér sé illa við það,
eða ber hjólið yfir verstu skaflana.
Svo held ég bara áfram.“
Stuðningur skiptir máli
Þónokkrir af vinnufélögum Ólafs
hjóla líka til vinnu nær daglega.
Ólafur telur að samgöngustefna
EFLU spili þar inn í. „Við getum
geymt hjólin okkar inni og erum
með frábæra snyrtiaðstöðu, svo
ég get tekið vel á því á leiðinni
og komist svo í sturtu og mætt
ferskur í vinnuna. Mér finnst það
skipta mjög miklu máli.“ Þá eru
reglulega haldin námskeið um
hjólamál. Þar að auki eru þrjú
reiðhjól á staðnum sem starfs-
menn geta nýtt sér, auk vist-
hæfra bíla til að komast á fundi á
vinnutíma. Allt virkar þetta mjög
hvetjandi á starfsmenn.
Vitundarvakning að verða
En hvað skyldi helst drífa Ólaf
áfram í þessu líferni? „Það er
þrennt: Góð og holl hreyfing,
sparnaður og umhverfisvernd.“
Hann telur að það sé að verða
vitundarvakning hjá almenningi
þegar kemur að umhverfisvernd
og vistvænum samgöngum. „Ef
borgin heldur áfram að bera
virðingu fyrir þessu samgöngu-
kerfi er ég sannfærður um að hjól-
reiðar muni skipta verulegu máli
í að draga úr mengun frá umferð
hér í borginni.“
Einfaldara líf með því að hjóla
Umhverfisverkfræðingurinn Ólafur Árnason hjólar til og frá vinnu, sama hvernig viðrar. Hann sagði Hólmfríði Helgu Sigurðar-
dóttur frá því hvað rekur hann áfram í því líferni: Að vera umhverfisvænn, stunda holla hreyfingu og spara. Hann notar bílinn
bara þegar nauðsyn krefur og segir fyrirkomulagið hafa einfaldað líf fjölskyldunnar allrar. Hann segir Reykjavíkurborg standa
sig vel í að halda stígakerfinu opnu og telur að hjólreiðar geti skipt verulegu máli í að draga úr mengun frá umferð í Reykjavík.
LÍF Í SÁTT OG SAMLYNDI VIÐ UMHVERFIÐ
1.
Þrjú ár í röð hefur Sigurrós Péturs-
dóttir borið sigur úr býtum í árlegri
sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu,
sem flest bifreiðaumboð taka þátt í.
Þátttakendur fá ákveðinn tíma-
ramma til að keyra upp Mosfellsdal,
niður Grafning, í gegnum Selfoss
og Þrengslin til Reykjavíkur. Snýst
keppnin um að eyða sem minnstu
eldsneyti á leiðinni. Meðaleyðsla
Sigurrósar, sem keyrði á Yaris sem
gengur fyrir dísil-olíu, var 3,8 lítrar
á hundraðið að meðaltali. Hvernig
fór hún að því? „Þetta snýst um að
fylgjast með umhverfinu og hugsa
fyrir fram hvernig þú ætlar að láta
bílinn vinna fyrir þig. Láta hann til
dæmis vinna vel þegar hann er á
leið upp brekkur og leyfa honum að
renna á leiðinni niður. Svo er ég ekki
með útvarpið í gangi og heldur ekki
miðstöðina, því allt rafmagn sem
bíllinn notar tekur eldsneyti,“ útskýrir
Sigurrós.
Sjálf leyfir hún sér lúxus á borð við
að vera með kveikt á miðstöðinni
dagsdaglega, og gleymir stundum
sparakstrinum þegar hún er á hrað-
ferð, en er samt oftast með hann á
bak við eyrað. „Um leið og maður
fer að spá í þessa hluti nær maður
eyðslunni niður. Ég passa sérstaklega
að bíllinn sé alltaf vel smurður og að
loftþrýstingurinn í dekkjunum sé í
lagi, sem er mjög mikilvægt.“
Sigurrós starfar sem vörustjóri hjá
Toyota og fylgist því náið með því
nýjasta í bílamálum. Hún segir marga
velta fyrir sér umhverfisvænum
kostum í dag. „Það sést greinilega á
sölunni hjá okkur að nú er fólk að
hugsa um hvað snertir budduna.
Margir sem hafa átt eyðslufreka bíla
eru farnir að velja sér minni bíla. Þeir
eru ekki endilega að hugsa um hvað
þeir menga mikið, en þetta helst í
hendur við sparnaðinn.“
Sigurrós segir að langflestir
framleiðendur séu að bregðast við
þessum kröfum neytenda. Hún telur
að bílar sem ganga fyrir bensíni
og umhverfisvænni orkugjöfum
í bland, svo sem metani eða
rafmagni, verði vinsælir á komandi
árum. „Þetta er efst á lista hjá
öllum bílaframleiðendum núna. Á
nýjustu módelunum, sem ganga
fyrir rafmagni og bensíni í bland, er
hægt að keyra allt að 80 kílómetra
bara á rafmagninu. Fyrstu bílarnir af
þessu tagi eru í dýrari kantinum, en
tækninni fleygir hratt fram og sam-
hliða því fer verðið að lækka,“ segir
hún að lokum.
ÞRISVAR SINNUM MEISTARI Í SPARAKSTRI
KANN AÐ KEYRA Sigurrós Pétursdóttir er með það á hreinu hvernig maður lætur
bílinn spara fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
UMHVERFISVÆNIR LÍFSHÆTTIR:
Bíllinn
Þessi tíu ráð voru fengin að láni úr
bæklingnum Gerum bílana græna sem
FÍB, FiA, Olís og Bridgestone gefu út.
Skipuleggðu þig
Skipulagðar ferðir
hjálpa þér að komast
á skjótari hátt á
áfangastað og
koma því í veg fyrir
óþarfa losun efna
frá eldsneytisbruna.
Svo er í lagi að hafa í
huga að þú mengar voða lítið í strætó og ekki neitt ef þú
gengur eða hjólar.
2.
5.
10.
6.
3.
4.
Aðgættu loftþrýstinginn
Réttur loftþrýstingur í hjólbörðum
dregur úr núningsmótstöðu og eykur
þannig sparneytni. Akstur á hjól-
börðum með loftþrýstingi sem er 50
kPA (0,5 kg/cm2) lægri en hann á
að vera eykur eldsneytiseyðslu um
2 prósent í þéttbýli og 4 prósent í
dreifbýli.
Ekki nota loftkælingu
Ýmis aukabúnaður í bíla, svo sem öflug hljóðkerfi, auka
eldsneytiseyðslu. Loftkælingu (AC) þarf ekki oft að nota
á Íslandi, sem er gott því hún er mjög orkufrek. Þegar
útihitastig er 25°C eykur loftkælingin eldsneytiseyðsluna
um 12 prósent.
Spáðu í gerð bílsins
Nýir bílar eyða meira en gamlir og stórir bílar eyða
meira en smáir. Sparneytnir bílar eru umhverfis-
vænni og því til mikils að vinna að keyra ekki bíl sem
er stærri en þú þarft á að halda. Skoðaðu bíla sem
ganga fyrir metani eða rafmagni, næst þegar þú þarft
að endurnýja bílinn.
Mýktu aksturslagið
Það krefst minna eldsneytis og er öruggara. Aktu
mjúklega af stað og forðastu að vera sífellt að stansa og
rífa bílinn af stað þegar þú ekur. Aktu í sem hæstum gír
eftir því sem mögulegt er miðað við aðstæður.
9. 7. 8. Kolefnisjafnaðu þigEf þú á annað borð keyrir losar þú óhjákvæmilega
koldíóxíð (CO2) sem er mikilvirkasta gróðurhúsaloft-
tegundin. Það má bregðast við því með því að kolefnis-
jafna eigin útblástur, en það
næst þegar bundið er jafn
mikið kolefni í gróðri
og losað er út í
andrúmsloftið.
Láttu vélina hemla
Með því að nýta sér hemlunarafl vélarinnar sparast
eldsneyti. Með því að sleppa eldsneytisgjöfinni þegar
fyrirsjáanlegt er að hægja þurfi ferðina hættir vélin að
draga eldsneyti. Með þessu má spara allt að 2 prósent
eldsneyti.
Engan lausagang
Vél sem er í lausagangi en ekki í notkun eyðir eldsneyti
og lausagangur í eina mínútu er eldsneytisfrekari en
gangsetning vélar. Tíu mínútna lausagangur vélar brennir
130 rúmsentimetrum af eldsneyti til einskis.
Engan aukafarangur
Öll viðbótarþyngd eykur
eldsneytis eyðslu og sama má
segja um alla loftmótstöðu. Því
ættir þú að forðast að geyma
hluti, sem þú gætir geymt annars
staðar, í skottinu á bílnum þínum.
Farangursgrind á toppi bíls eykur
loftmótstöðu og getur aukið eldsneytiseyðslu um 20
prósent.
Aktu strax af stað
Í nútímabílum þarf ekki lengur að láta vélar hitna áður en
ekið er af stað, nema þar sem fimbulkuldar ríkja. Best er
að aka strax af stað en gott að láta vélina snúast rólega
fyrst eftir að hún er komin í gang. Slíkt ökulag dregur líka
úr eldsneytiseyðslu.
ENGINN EXTREMISTI Ólafur Árnason, sviðsstjóri hjá verkfræðistofunni EFLU, hjólar
til og frá vinnu á hverjum degi. Hann notar samt fjölskyldubílinn þegar þörf krefur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON