Fréttablaðið - 18.02.2012, Síða 41
HANDVERKSBAKARÍ
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012 Kynningarblað Brauð, kökur, tertur, súkkulaðiskúlptúrar og uppskriftir fyrir börn
Bæjarbakarí að Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði er rótgróið hand-verksbakarí sem hefur verið í
eigu sömu fjölskyldunnar frá upp-
hafi. „Ég og konan mín, Maríanna
Haraldsdóttir, opnuðum í mars árið
1990 og höfum staðið vaktina síðan.
Logi sonur okkar er rekstrarstjóri en
auk þess hefur annar sonur okkar og
dóttir unnið í bakaríinu,“ segir eig-
andinn Júlíus Matthíasson.
Júlíus hefur starfað sem bak-
ari í að verða fimmtíu ár og þar af
verið 34 ár í rekstri. „Þegar ég opn-
aði hér töluðu menn um að ég væri
vitlausu megin við Reykjanesbraut-
ina en annað kom á daginn enda um
að ræða stórt iðnaðar- og verslunar-
hverfi og er mikið um að fólk sem
vinnur í nágrenninu líti við. Íbúar
hinum megin við Reykjanesbraut-
ina koma vitanlega líka og við erum
jafnvel með fastakúnna frá Keflavík,
enda alveg í leiðinni.“
Öll framleiðsla fer að sögn Júl-
íusar fram á staðnum. Þá erum við
með kaffisölu og sæti fyrir tuttugu
til þrjátíu manns og er jafnan þétt
setið. Viðskiptavinir okkar tala um
að kaffið sé einstaklega gott. Ég segi
að það sé vegna þess að það er stöð-
ugt rennsli enda alltaf verið að hella
upp á.“
En hver er ykkar sérstaða?
„Fyrir utan það að vera rótgróið
fjölskyldufyrirtæki með allt það
vöruúrval sem góð bakarí hafa að
bjóða þá gerum við ævintýraleg-
ar kökur og kökuskreytingar sem
tekið er eftir. Logi sonur minn
flytur inn fjöldann allan af vinsæl-
um fígúrum til að skapa skemmti-
legar þemakökur og má þar nefna
persónur úr Pirates of the Carib-
bean, Dóru landkönnuð, Batman
og Bangsímon. Þá er hægt að panta
fótboltakökur, golfkökur og ýmis-
legt fleira auk þess sem við bjóð-
um að sjálfsögðu brúkaups-, skírn-
ar- og fermingartertur í úrvali. Þá
tökum við á móti hvers kyns ljós-
myndum og prentum á kökur og
finnst til dæmis mjög gaman þegar
fólk sendir teikningar eftir börnin.“
Júlíus nefnir einnig nýtilkomið
samstarf við Póstinn. „Við sendum
kökur hvert á land sem er með að-
stoð Póstsins og auk þess er talsvert
um að fólk úr nærliggjandi bæjar-
félögum nýti sér þjónustuna.
Júlíus bendir áhugasömum á
heimasíður bakarísins www.bak-
ari.is og www.kaka.is en þar má
meðal annars skoða fjölskrúðugt
kökuúrvalið.
Fimmtíu ár í faginu
Júlíus Matthíasson opnaði Bæjarbakarí í Hafnarfirði fyrir 23 árum. Hann hefur staðið vaktina ásamt fjölskyldunni
síðan. Þar er allt bakað á staðnum en auk hefðbundins vöruúrvals státar bakaríið af ævintýralegum þemakökum.
Konudagurinn og bolludagurinn eru á næsta leiti og er undirbúningurinn kominn á fullt hjá starfsfólki Bæjarbakarís. MYND/GVA
Júlíus hefur starfað við fagið í tæp fimmtíu ár, þar af í 34 ár við rekstur.
ÆVINTÝRALEGAR KÖKUR
Bæjarbakarí flytur inn fjöldann
allan af vinsælum fígúrum til að
skreyta kökur fyrir alla aldurs-
hópa. Börnin geta valið upp-
áhaldsfígúruna sína auk þess
sem hægt er að velja um alls
kyns þemakökur sem tengjast til
að mynda golfi eða fótbolta. Þá
er hægt að láta prenta ljósmynd-
ir og persónulegar teikningar
á kökur sem nýtur ekki síður
vinsælda.
HEIM AÐ DYRUM
Bæjarbakarí sendir kökur og
kræsingar hvert á land sem er.
Bakaríið er í samstarfi við Póstinn
og auk þess er töluvert um
að íbúar í nærliggjandi bæjar-
félögum panti köku og fái hana
senda heim að dyrum.