Fréttablaðið - 18.02.2012, Síða 95
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2012 63
➜ Kvikmyndir
22.00 Vikulegt þynnkubíó á skemmti-
staðnum Prikinu. Aðgangur ókeypis og
popp í boði.
MÍR sýnir rússnesku kvikmyndina Brest-
virkið (Brestskaja krepost). Myndin er með
enskum texta og er aðgangur ókeypis.
➜ Uppákomur
14.00 Fjölskyldusmiðja í gerð ösku-
poka og bolluvanda verður haldin í
Gerðubergi. Krakkar á öllum aldri, og
fjölskyldur þeirra, eru velkomnir. Allt
efni á staðnum og aðgangur ókeypis.
Allir velkomnir. Smiðjan er í boði
Heimilis iðnaðarfélags Íslands.
➜ Dansleikir
20.00 Danshljómsveitin Klassík leikur
létta danstónlist á dansleik Félags
eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4.
Aðgangseyrir er kr. 1.500 en kr. 1.300
fyrir félagsmenn FEB.
➜ Leiðsögn
14.00 Ágústa Kristófersdóttir, sýninga-
stjóri við Þjóðminjasafn Íslands, leiðir
gesti um sýninguna TÍZKA - kjólar og
korselett. Leiðsögnin er áhugasömum
að kostnaðarlausu.
14.00 Dagný Heiðdal listfræðingur
mun fjalla um sýningarnar Í afbyggingi
og ÞÁ OG NÚ í Listasafni Íslands.
Mun Dagný skoða sérstaklega verk
sem endurspegla þjóðfélagsumrót og
kvennabaráttu.
➜ Myndlist
09.00 Ingi Hrafn Stefánsson opnar
sýningu í Hallgrímskirkju á málverkum
og teikningum af kirkjunni og fjöllum.
Sýningarstjóri er Kristinn G. Harðarson.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Konudagurinn verður hátíð-
legur í Vídalínskirkju í Garða-
bæ eins og undanfarin ár. Þaðan
verður útvarpað guðsþjónustu
klukkan 11, í henni flytur Gull-
veig Sæmundsdóttir ritstjóri hug-
vekju og séra Jóna Hrönn Bolla-
dóttir þjónar fyrir altari ásamt
Kolbrúnu Sigmundsdóttur og
Guðrúnu Björt Yngvadóttur sókn-
arnefndarmönnum. Kvennakór
Garðabæjar syngur undir stjórn
Ingibjargar Guðjónsdóttur og
undirleikarar eru Sólveig Anna
Jónsdóttir á píanó og orgel og
Bryndís Björgvinsdóttir á selló.
Eftir guðsþjónustuna bera
Lionsmenn í Garðabæ fram
ilmandi súpu og brauð í safnaðar-
heimilinu og að máltíð lokinni
verður vorlínan frá versluninni
Ilse Jacobsen á Garðatorgi sýnd
af fyrirsætum úr bæjarfélaginu.
Örmálþing verður í Vídalíns-
kirkju klukkan 13 þar sem
Jóhanna Vilhjálmsdóttir flytur
erindi um heilsueflingu og mikil-
væg vítamín fyrir líkamann.
„Maðurinn er líkami, sál og andi
og dagskráin er byggð á þeim
mikilvægu sannindum,“ segir
Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknar-
prestur í Vídalínskirkju og segir
alla innilega velkomna. -gun
Líkami, sál, andi
KVENNAKÓR GARÐABÆJAR Kórinn syngur undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur
við guðsþjónustuna.
LEIKHÚSUPPLIFUN
FYRIR BÖRN FRÁ 4 ÁRA ALDRI
Miðapantanir: midi.is og
Norræna húsið s: 551 7030
Nánari upplýsingar á tiufingur.is
LEIKHÚSIÐ
Sýnt í Norræna húsinu í febrúar
Lau. 18. feb. kl. 12.00 uppselt
Lau. 18. feb. kl. 15.00 uppselt
Sun. 19. feb. kl. 12:00 aukas.
Sun. 19. feb. kl. 14.00 uppselt
Lau. 25. feb. kl. 12.00 aukas.
Lau. 25. feb. kl. 15.00
Sun. 26. feb. kl. 12.00 aukas.
Sun. 26. feb. kl. 15.00
E.B. Fréttablaðið
KONUNNI Á KONUDAGINN!
Ekki gleyma
Dekraðu við frúna með 100% náttúrulegum
hágæða snyrtivörum frá Purity Herbs
20%
AFSLÁTTUR
Íslensk framleiðsla
Afsláttur gildir
18.-19. febrúar
ANDLITS SERUM
Verð áður 4.408
Verð nú 3.527
Andlits-serum
djúpnærir húðina
og gefur henni
hraustlegt útlit.
BAÐSALT SLAKANDI
Verð áður 1.372
Verð nú 1.098
Kjarnaolíu sjávarsalt
sem afstressar og
mýkir húðina. Sefar
og endurnærir.
UNDUR RÓSARINNAR
Verð áður 4.721
Verð nú 3.777
Sérvalin jurtablanda sem
styrkir háræðarnar og jafnar
húðlit. Olíurnar í kreminu
viðhalda réttu fitumagni.