Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 21
Kynningarblað Bókhaldskerfi, birgðakerfi, vefverslunarkerfi, hugbúnaður, fjarvöktun á sölukerfum. KASSAKERFI ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 2012 & SJÓÐSVÉLAR MerkurPOS afgreiðslukerfi og rekstrar-hugbúnaður samanstendur af af-greiðsluhugbúnaði fyrir verslanir, ferðaþjónustu, sundlaugar og líkamsræktar- stöðvar, snyrti- og hárgreiðslustofur, verkstæði, veitingahús ásamt fleiri hugbúnaðarlausnum. MerkurPOS afgreiðsluhugbúnað á má finna í mörgum sveitarfélögum og fyrirtækjum. Íslenskt kassakerfi MerkurPOS MerkurPOS er íslenskur hugbúnaður sem byggir á þörfum íslenskra notenda. „Hugbún- aðurinn hefur verið á markaði í yfir áratug og því kominn með góða reynslu og stöðugleika í notkun,“ útskýrir Guðmundur G. Kristinsson sölu- og markaðsstjóri Merkurpoint. „Í fyrstu var boðið upp á staðlað og einfalt afgreiðslu- kerfi sem sameinar notendavænt viðmót, hrað- virkt sölukerfi og stútfullan pakka af ýmsum stjórnunartólum.” Auðvelt að læra á MerkurPOS Að sögn Guðmundar er MerkurPOS-afgreiðslu- kerfið auðvelt í notkun það tekur enga stund að læra á það. „Við erum hvað stoltust af því hversu notendavænt kerfið okkar er, það tekur örskamma stund að stofna vörur og viðskipta- menn og öll vinnsla er gerð eins einföld og hægt er. Áherslan hjá okkur hefur alltaf verið á að gera frábært kassakerfi og helsti kosturinn við að vera með sjálfstætt kassakerfi frekar en bókhaldhaldskerfi með ábyggðu kassakerfi er sá að maður sleppur við að eiga við allar flóknu stillingarnar sem oft tilheyra bókhaldskerfum. Kerfið er þannig straumlínulagað til að vinna flókin verkefni á sem einfaldastan hátt. „Öll nauðsynleg rafræn viðskipti eru fyrir hendi, sem og tenging við þjónustuaðila POSA. Kerfið er einnig hægt að tengja við flest bók- haldskerfi, eins og Tok, Tok+, Axapta, Navision, Fjölni og fleiri,“ útskýrir Guðmundur.“ Fullkomin sölugreining „Okkar kerfi er hannað með nýjustu tækni í huga þannig má alltaf hafa yfirsýn og aðgang að þínum gögnum í gegnum fartölvu, spjald- tölvuna, snjallsímann eða hvar sem þú ert nettengdur. Þannig höfum við vissa sérstöðu því að aðgangur að gögnum og mjög fullkom- in sölugreining fæst í gegnum heimasíðu. Á henni má sjá tekjuflæði, fjölda viðskiptavina, meðalsölu á viðskiptavin, meðalfjölda vöru- eininga á viðskiptavin, heildarsölu á sölu- aðila, skiptingu á greiðsluformi og hvaða vara selst mest, hvaða vara skilar mestri framlegð og hvaða vara er ekki að hreyfast. Það hjálpar þeim sem reka fyrirtæki að skipuleggja birgða- hald, sjá vöru og viðskiptaflæði og þannig auka hagnað í rekstri.“ Með þessari tækni tryggjum við líka afritatöku af gögnum viðskiptavina. Rekstrarbúnaðarlausnir fyrir flestar atvinnugreinar Á liðnum árum hefur MerkurPOS þróað fjöl- mörg viðbótarkerfi fyrir daglegan rekstur. „Þar má nefna reikninga-, innheimtu-, tilboðs- og verkefnastjórnunarkerfi, sérhæfðan hugbúnað fyrir ferðaþjónustu og aðgangskerfi fyrir sund- laugar,“ segir Guðmundur. „Með árunum hefur þróast gott samstarf við fyrirtækið Maritech sem er með NAV-bók- haldskerfi og fjölda sérlausna fyrir stærri fyr- irtæki og sveitarfélög. Merkurpoint og Mari- tech hafa í mörg ár starfað saman með sam- tengdan bókhalds- og afgreiðsluhugbúnað í fyrirtækjum og sveitarfélögum.“ Reikningar gerðir og sendir í heimabanka Um mánaðarmót er hægt að taka saman sölu í reikning hjá viðskiptavinum, prenta út reikn- inga og búa til innheimtuskrá til að senda í innheimtuumhverfi hjá viðskiptabanka. Síðan er hægt að bóka innborganir á viðskipamenn og þannig hægt að fylgjast með greiðslustöðu viðskiptamanna frá mánuði til mánaðar og senda þeim viðskiptayfirlit. MerkurPOS á IBM-tölvum er fullkomin lausn Guðmundur upplýsir að undanfarin ár hafi Merkurpoint selt mest af IBM-afgreiðslu- tölvum frá Nýherja. „Í veitingarekstri er oft álag og krafa um vandaðan tölvubúnað sem þolir mikið álag og endist lengi. Merkurpoint hefur lengi mælt með IBM-tölvum í það rekstrarumhverfi og byggir á áralangri reynslu af notkun af- greiðslutölva í kröfuhörðu umhverfi. Mörg sveitarfélög horfa einnig fram í tímann og fjárfesta í tölvubúnaði með endingu og gæði í huga. Því kaupa þeir IBM-afgreiðslutölvur og jaðarbúnað fyrir hugbúnað frá Merkurpoint og Maritech. Mest hefur selst af IBM Surepose E26 afgreiðslutölvu og er meirihluti viðskipta- vina Merkurpoint síðustu árin að kaupa þessa frábæru tölvu,“ segir Guðmundur. Traustar lausnir fyrir fyrirtæki og sveitarfélög Merkurpoint hefur á undanförnum árum boðið MerkurPOS afgreiðslukerfi- og rekstrarhugbúnað fyrir fyrirtæki og sveitarfélög. MerkurPOS er einfalt í notkun og tryggir mikla hagræðingu og þægindi í hvers kyns rekstri. Guðmundur Kristinsson er sölu- og markaðsstjóri Merkurpoint sem undanfarinn áratug hefur boðið MerkurPOS og IBM–afgreiðslulausnir og rekstrarhugbúnað fyrir fyrirtæki og sveitarfélög. MYND/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.