Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 8
21. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR8 Unnið hefur verið að rammaáætlun síðan árið 1999. Þremur verkefnis- stjórnum og nokkrum skýrslum síðar er enn deilt um útkomu hennar og það sem meira er; sjálfar for- sendurnar fyrir henni. Stjórnarflokkunum geng- ur illa að koma sér niður á endanlega flokkun náttúru- svæða og málið gæti reynst þeim erfitt. Framkvæmd rammaáætlunar hófst með skipan verkefnis- stjórnar vorið 1999. Verkefnið hét þá reyndar rammaáætlun um nýtingu vatnsorku og jarð- varma og 1. áfanga lauk í árs- byrjun 2003 með mati og sam- anburði á 35 virkjunarkostum vatnsafls og jarðvarma, en yfir- skrift áfangans var nýting. Þeir voru flokkaðir í fimm flokka eftir umhverfisáhrifum, aðra fimm eftir heildarhagnaði og fimm eftir arðsemi. Ný verkefnisstjórn var skipuð til að vinna 2. áfanga, þar sem yfirskriftin var vernd og nýting. Hún skilaði af sér skýrslu vorið 2007 og þriðja verkefnastjórn- in var þá skipuð. Eftir því sem áherslan varð meiri á umhverfis- þættina fékk áætlunin nýtt heiti; rammaáætlun um vernd og nýt- ingu náttúrusvæða. Kostirnir flokkaðir Verkefnastjórnin skilaði síðan af sér skýrslu árið 2011 og var þar að finna lista yfir virkjanakosti. Iðnaðarráðherra skipaði síðan nefnd sem fór yfir niðurstöðurn- ar og skilaði drögum að þings- ályktunartillögu til ráðherra. Þau fóru í umsagnarferli og síðan átti að leggja þingsályktunartillögu fyrir Alþingi í janúar. Það hefur hins vegar dregist. Að einhverju leyti kann það að skýrast af þeim mikla fjölda umsagna sem bárust, en þær voru alls 225. Hins vegar hljóta stjórnvöld að hafa gert ráð fyrir fjölda umsagna í öðru eins hitamáli. Það sem fyrst og fremst skýr- ir töfina er hins vegar að illa gengur að ná saman um tillög- una. Hún flokkar kosti í nýting- ar-, verndar- eða biðflokk og það virðist vera að renna upp fyrir ansi mörgum hvað sú flokkun þýðir. Að sé svæði komið í nýting- arflokk, eftir allt þetta ferli, þá sé til lítils að ætla sér að berjast gegn nýtingu þess. Forsendurnar vefengdar Ummæli Svandísar Svavarsdótt- ur umhverfisráðherra á þingi í síðustu viku vöktu einnig athygli. Þar sagðist hún hugsi yfir því að núverandi kynslóð ætti að ákveða fyrir hönd komandi kynslóða hvað yrði virkjað og hvað ekki. „Ég hef velt upp þeirri spurn- ingu í hvaða stöðu núlifandi kyn- slóð er að setja sig gagnvart framtíðinni með því að taka þess- ar ákvarðanir í eitt skipti fyrir öll, en fyrst og fremst er þetta mjög mikilvægt ferli sem ég er alveg handviss um að er nátt- úruvernd til framdráttar,“ sagði Svandís í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku. Þessi ummæli ganga í raun gegn grunnforsendu rammaáætl- unar og þvert gegn ummælum Katrínar Júlíusdóttur iðnaðar- ráðherra. Hún hefur lagt áherslu á að áætlunin lyfti þjóðinni upp yfir þær deilur sem klofið hafa hana í virkjanamálum. „Eitt af stóru verkefnunum í orkumálum Íslands er að ná sátt og samstöðu meðal þjóðarinnar um hvar skuli virkja og hvar skuli vernda,“ sagði hún í grein í Fréttablaðinu 12. október 2011. Guðmundur Ingi Guðbrands- son, framkvæmdastjóri Land- verndar, segir hins vegar að mikilvægt sé að málið nái fram að ganga og komi inn í þingið. Í umsögn þrettán náttúruvernd- arsamtaka um frumvarpsdrög- in var lýst yfir stuðningi við þá aðferðafræði að skipta virkjana- hugmyndum upp í verndar-, nýt- ingar- og biðflokk. „Sú afstaða okkar hefur ekk- ert breyst. Við teljum að það sé betra fyrir framtíðarstefnumót- un og fyrir alla aðila. Hins vegar lögðum við til viðamiklar breyt- ingar á öllum flokkum og færðum góð og gild rök fyrir því.“ Deilur um einstaka kosti Ekki náðist í umhverfisráðherra við vinnslu þessarar fréttar, en 13. febrúar sagði hún ramma- áætlun vera forgangsverkefni hjá sér og Oddnýju G. Harðardóttur, starfandi iðnaðarráðherra. Ekki náðist heldur í Oddnýju í gær. Málið er á forræði ráðherranna tveggja sem vinna upp úr tillögu starfshópsins og þeim umsögnum sem bárust. Verkefnið er að ná sátt sem hægt er að kynna fyrir ríkisstjórn og síðan þingflokkum stjórnarflokkanna. Fæðing þeirrar sáttar virðist hins vegar vera erfið. Raunar ætti það kannski ekki að koma á óvart, það að segja í eitt skipti fyrir öll að ákveðin svæði verði virkjuð og önnur vernduð er ekki auðvelt verkefni. Fréttablaðið hefur heimild- ir fyrir því að helst standi styr- inn um tvö svæði á hálendinu, Strokköldu og Hágöngur. Þá er deilt um virkj- anir í neðri hluta Þjórsár og einnig um svæði á Reykja- nesinu. Þá má segja að deilur snúi einnig að því hversu hratt eigi að ganga fram í jarð- varmavirkjun almennt. Tíminn líður Rammaáætlun hefur verið lengi í smíðum og virðist vera á loka- metrunum. Hún hefur reyndar verið nokkuð lengi á þeim metr- um. Samkvæmt þingsköpum verður að leggja fram frumvörp fyrir 1. apríl til að þau verði tekin á dagskrá, ella verður að leita afbrigða. Ætli stjórnin sér að ljúka þessu máli verður hún hins vegar að ná sátt um það innan eigin raða. Það skyldi þó aldrei verða að það verði umhverfismál sem sprengi þessa stjórn sem farið hefur í gegnum hvert stóra málið á fætur öðru á líftíma sínum? Hver afdrif rammaáætlunar yrðu hjá nýrri ríkisstjórn, kæmi til þess, skal hins vegar ósagt látið. Milljarður í áætlun sem óvissa ríkir um ÞJÓRSÁ Þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsá eru í nýtingarflokki samkvæmt tillögu starfshóps. Deilt er um þær virkjanir á milli stjórnarflokkanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR GUÐMUNDUR INGI GUÐBRANDSSON Kostnaður við ramma- áætlun* 1. áfangi 555.362 2. áfangi 454.812 Alls 1.010.174 *í þúsundum króna FRÉTTASKÝRING: Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða Til hamingju með framúrskarandi árangur Við óskum Ágústu Ýri Sveinsdóttur til hamingju með þær viðurkenningar sem hún hlaut á nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur, fyrir að hafa náð bestum árangri allra nemenda á sveinsprófi í rafvirkjun síðastliðið sumar. Ágústa lauk starfsnámi sínu hjá álverinu í Straumsvík undir handleiðslu meistara síns Rúnars Pálssonar en hann hefur starfað hjá álverinu í ríflega 40 ár. Metnaður Ágústu er okkur öllum hvatning. Rio Tinto Alcan Straumsvík Pósthólf 244 222 Hafnarfjörður Sími 560 7000 www.riotintoalcan.is Ágústa ásamt meistara sínum Rúnari Pálssyni Stjórnvöld hafa nú tækifæri til að leggja fram metnaðarfulla áætlun um nýtingu landgæða með náttúruvernd að leiðarljósi. Undirrituð samtök leggja hér til að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendi Íslands; þjóðgarður sem myndi setja Ísland á heimskortið fyrir framsýni og áræðni í umhverf- ismálum. Við styðjum þá aðferðafræði að skipta virkjanahugmyndum í orkunýtingar-, bið- og verndarflokka og teljum að það auðveldi yfirsýn, upp- lýsta ákvarðanatöku og langtíma stefnumörkun við vernd og orkunýtingu landsvæða. Úr umsögn þrettán náttúruverndarsamtaka um drög að þingsályktunartillögu um rammaáætlun. Þjóðgarð á miðhálendið Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.