Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 8
21. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR8
Unnið hefur verið að
rammaáætlun síðan árið
1999. Þremur verkefnis-
stjórnum og nokkrum
skýrslum síðar er enn deilt
um útkomu hennar og það
sem meira er; sjálfar for-
sendurnar fyrir henni.
Stjórnarflokkunum geng-
ur illa að koma sér niður á
endanlega flokkun náttúru-
svæða og málið gæti reynst
þeim erfitt.
Framkvæmd rammaáætlunar
hófst með skipan verkefnis-
stjórnar vorið 1999. Verkefnið
hét þá reyndar rammaáætlun
um nýtingu vatnsorku og jarð-
varma og 1. áfanga lauk í árs-
byrjun 2003 með mati og sam-
anburði á 35 virkjunarkostum
vatnsafls og jarðvarma, en yfir-
skrift áfangans var nýting. Þeir
voru flokkaðir í fimm flokka
eftir umhverfisáhrifum, aðra
fimm eftir heildarhagnaði og
fimm eftir arðsemi.
Ný verkefnisstjórn var skipuð
til að vinna 2. áfanga, þar sem
yfirskriftin var vernd og nýting.
Hún skilaði af sér skýrslu vorið
2007 og þriðja verkefnastjórn-
in var þá skipuð. Eftir því sem
áherslan varð meiri á umhverfis-
þættina fékk áætlunin nýtt heiti;
rammaáætlun um vernd og nýt-
ingu náttúrusvæða.
Kostirnir flokkaðir
Verkefnastjórnin skilaði síðan af
sér skýrslu árið 2011 og var þar
að finna lista yfir virkjanakosti.
Iðnaðarráðherra skipaði síðan
nefnd sem fór yfir niðurstöðurn-
ar og skilaði drögum að þings-
ályktunartillögu til ráðherra. Þau
fóru í umsagnarferli og síðan átti
að leggja þingsályktunartillögu
fyrir Alþingi í janúar. Það hefur
hins vegar dregist.
Að einhverju leyti kann það
að skýrast af þeim mikla fjölda
umsagna sem bárust, en þær
voru alls 225. Hins vegar hljóta
stjórnvöld að hafa gert ráð
fyrir fjölda umsagna í öðru eins
hitamáli.
Það sem fyrst og fremst skýr-
ir töfina er hins vegar að illa
gengur að ná saman um tillög-
una. Hún flokkar kosti í nýting-
ar-, verndar- eða biðflokk og það
virðist vera að renna upp fyrir
ansi mörgum hvað sú flokkun
þýðir. Að sé svæði komið í nýting-
arflokk, eftir allt þetta ferli, þá
sé til lítils að ætla sér að berjast
gegn nýtingu þess.
Forsendurnar vefengdar
Ummæli Svandísar Svavarsdótt-
ur umhverfisráðherra á þingi í
síðustu viku vöktu einnig athygli.
Þar sagðist hún hugsi yfir því að
núverandi kynslóð ætti að ákveða
fyrir hönd komandi kynslóða
hvað yrði virkjað og hvað ekki.
„Ég hef velt upp þeirri spurn-
ingu í hvaða stöðu núlifandi kyn-
slóð er að setja sig gagnvart
framtíðinni með því að taka þess-
ar ákvarðanir í eitt skipti fyrir
öll, en fyrst og fremst er þetta
mjög mikilvægt ferli sem ég er
alveg handviss um að er nátt-
úruvernd til framdráttar,“ sagði
Svandís í samtali við Fréttablaðið
í síðustu viku.
Þessi ummæli ganga í raun
gegn grunnforsendu rammaáætl-
unar og þvert gegn ummælum
Katrínar Júlíusdóttur iðnaðar-
ráðherra. Hún hefur lagt áherslu
á að áætlunin lyfti þjóðinni upp
yfir þær deilur sem klofið hafa
hana í virkjanamálum. „Eitt af
stóru verkefnunum í orkumálum
Íslands er að ná sátt og samstöðu
meðal þjóðarinnar um hvar skuli
virkja og hvar skuli vernda,“
sagði hún í grein í Fréttablaðinu
12. október 2011.
Guðmundur Ingi Guðbrands-
son, framkvæmdastjóri Land-
verndar, segir hins vegar að
mikilvægt sé að málið nái fram
að ganga og komi inn í þingið. Í
umsögn þrettán náttúruvernd-
arsamtaka um frumvarpsdrög-
in var lýst yfir stuðningi við þá
aðferðafræði að skipta virkjana-
hugmyndum upp í verndar-, nýt-
ingar- og biðflokk.
„Sú afstaða okkar hefur ekk-
ert breyst. Við teljum að það sé
betra fyrir framtíðarstefnumót-
un og fyrir alla aðila. Hins vegar
lögðum við til viðamiklar breyt-
ingar á öllum flokkum og færðum
góð og gild rök fyrir því.“
Deilur um einstaka kosti
Ekki náðist í umhverfisráðherra
við vinnslu þessarar fréttar, en
13. febrúar sagði hún ramma-
áætlun vera forgangsverkefni hjá
sér og Oddnýju G. Harðardóttur,
starfandi iðnaðarráðherra. Ekki
náðist heldur í Oddnýju í gær.
Málið er á forræði ráðherranna
tveggja sem vinna upp úr tillögu
starfshópsins og þeim umsögnum
sem bárust. Verkefnið er að ná
sátt sem hægt er að kynna fyrir
ríkisstjórn og síðan þingflokkum
stjórnarflokkanna.
Fæðing þeirrar sáttar virðist
hins vegar vera erfið. Raunar
ætti það kannski ekki að koma
á óvart, það að segja í eitt skipti
fyrir öll að ákveðin svæði verði
virkjuð og önnur vernduð er ekki
auðvelt verkefni.
Fréttablaðið hefur heimild-
ir fyrir því að helst standi styr-
inn um tvö svæði á hálendinu,
Strokköldu og Hágöngur. Þá er
deilt um virkj-
anir í neðri
hluta Þjórsár
og einnig um
svæði á Reykja-
nesinu.
Þá má segja
að deilur snúi
einnig að því
hversu hratt
eigi að ganga
fram í jarð-
varmavirkjun almennt.
Tíminn líður
Rammaáætlun hefur verið lengi
í smíðum og virðist vera á loka-
metrunum. Hún hefur reyndar
verið nokkuð lengi á þeim metr-
um. Samkvæmt þingsköpum
verður að leggja fram frumvörp
fyrir 1. apríl til að þau verði tekin
á dagskrá, ella verður að leita
afbrigða.
Ætli stjórnin sér að ljúka þessu
máli verður hún hins vegar að
ná sátt um það innan eigin raða.
Það skyldi þó aldrei verða að það
verði umhverfismál sem sprengi
þessa stjórn sem farið hefur í
gegnum hvert stóra málið á fætur
öðru á líftíma sínum? Hver afdrif
rammaáætlunar yrðu hjá nýrri
ríkisstjórn, kæmi til þess, skal
hins vegar ósagt látið.
Milljarður í áætlun sem óvissa ríkir um
ÞJÓRSÁ Þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsá eru í nýtingarflokki samkvæmt tillögu starfshóps. Deilt er um þær virkjanir á milli stjórnarflokkanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
GUÐMUNDUR INGI
GUÐBRANDSSON
Kostnaður við ramma-
áætlun*
1. áfangi 555.362
2. áfangi 454.812
Alls 1.010.174
*í þúsundum króna
FRÉTTASKÝRING: Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða
Til hamingju með
framúrskarandi árangur
Við óskum Ágústu Ýri Sveinsdóttur til hamingju með
þær viðurkenningar sem hún hlaut á nýsveinahátíð
Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur, fyrir að hafa náð
bestum árangri allra nemenda á sveinsprófi í rafvirkjun
síðastliðið sumar.
Ágústa lauk starfsnámi sínu hjá álverinu í Straumsvík
undir handleiðslu meistara síns Rúnars Pálssonar en
hann hefur starfað hjá álverinu í ríflega 40 ár.
Metnaður Ágústu er okkur öllum hvatning.
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Pósthólf 244
222 Hafnarfjörður
Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
Ágústa ásamt meistara sínum Rúnari Pálssyni
Stjórnvöld hafa nú tækifæri til að leggja fram metnaðarfulla áætlun um
nýtingu landgæða með náttúruvernd að leiðarljósi. Undirrituð samtök leggja
hér til að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendi Íslands; þjóðgarður
sem myndi setja Ísland á heimskortið fyrir framsýni og áræðni í umhverf-
ismálum. Við styðjum þá aðferðafræði að skipta virkjanahugmyndum í
orkunýtingar-, bið- og verndarflokka og teljum að það auðveldi yfirsýn, upp-
lýsta ákvarðanatöku og langtíma stefnumörkun við vernd og orkunýtingu
landsvæða.
Úr umsögn þrettán náttúruverndarsamtaka um
drög að þingsályktunartillögu um rammaáætlun.
Þjóðgarð á miðhálendið
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is