Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 28
KYNNING − AUGLÝSINGKassakerfi & sjóðsvélar ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 20128 PINNIÐ Á MINNIÐ Reynd hefur tekið þátt í innleiðingu ör- gjörvaposa í nokkrar verslanir í tengslum við verkefnið „Pinnið á minnið“. Með verkefninu er notkun greiðslukorta með örgjörva innleidd á Íslandi en þannig upp- fylla íslensk fyrirtæki, korthafar, útgefendur greiðslukorta og færsluhirðar alþjóðlegar kröfur um öryggi í kortaviðskiptum. Verk- efnið snýst um að korthafar staðfesta kortagreiðslur með pinni í stað undir- ritunar, líkt og þekkist erlendis. Starfs- fólk verslana mun ekki lengur handleika greiðslukort og þarf ekki að bera saman undirskrift á korti og kvittun. Reynd hefur innleitt þessa lausn í öllum afgreiðslustöðvum Íslandspósts og einnig í sjálfsafgreiðslukerfi IKEA á Íslandi. Á þessum stöðum er LS Retail NAV í notkun. LS RETAIL.NET LS Retail.net er einföld lausn sem er hugsuð fyrir smærri aðila, minni verslanir og veitingahús sem leita að lausn sem er ódýr og einföld í uppsetningu. Hún inniheldur afgreiðslukerfi og bakenda fyrir verslanir og veitingahús með möguleika á því að tengjast viðskiptalausnum. „Þetta er góður kostur fyrir þá sem eru að hefja sinn rekstur og eru ekki tilbúnir í mikla fjárfestingu í upphafi,“ segir Guðjón Þór Mathiesen hjá Reynd og bendir á að LS Retail.NET hafi verið innleitt hjá KEX Hosteli. „Þá er lítið mál að uppfæra í lausn eins og LS retail NAV þegar viðskiptin aukast.“ LS RETAIL NAV LS Retail NAV er íslensk hugbúnaðarlausn sem byrjað var að þróa fyrir tuttugu árum og er margverðlaunuð lausn fyrir fyrirtæki í verslunarrekstri. Lausnin er byggð ofan á Microsoft Dynamics NAV. Starfsmenn Reyndar hafa verið viðriðnir þetta kerfi um langt árabil og hafa því mikla reynslu af öllu því sem tengist lausninni. „Það er ástæða þess að við erum jafn framarlega í þessum geira og raun ber vitni,“ segir Guðjón Þór Mathiesen hjá Reynd. Sérstaða LS Retail NAV liggur í því að bjóða upp á fulla virkni í einni lausn, þ.m.t. kassakerfi, bakendakerfi í verslun, birgðabókhald, aðfangakeðju og fjárhags- kerfi svo eitthvað sé nefnt. Það er því ekki þörf á því að viðhalda mörgum mismun- andi kerfum og dýrum samskiptum þeirra á milli. Í dag er LS Retail í notkun á yfir 85.000 kössum og í yfir 38.000 verslunum víðsvegar um heiminn. LS Retail NAV er ætlað fyrir fyrirtæki af öllum stærðargráðum. Fyrirtækið Reynd var stofnað um ára-mótin 2009/2010 og hefur á stutt-um tíma skapað sér orðspor sem eitt fremsta hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtæki landsins á sviði verslunarkerfa. Þegar betur er að gáð ætti það ekki að koma sérstaklega á óvart enda hafa starfsmenn fyrirtækis- ins áralanga reynslu af ráðgjöf, þróun, inn- leiðingu og þjónustu á hugbúnaðarlausn- um fyrir verslunarfyrirtæki. Tveir stofn- enda fyrirtækisins stofnuðu árið 2001, við þriðja mann, fyrirtæki í Hollandi með svip- aðar áherslur sem hét Landsteinar Neder- land. Það fyrirtæki heitir í dag K3 Retail Sol- utions og er það eitt fremsta fyrirtæki á sínu sviði þar í landi. Ráku þeir það með góðum árangri til ársins 2009 er þeir fluttu til Ís- lands. Í kjölfarið tóku þeir saman við gamla samstarfsfélaga og Reynd varð til. „Starfs- menn voru upphaflega fjórir en eru fjórtán í dag. Okkar áætlanir gera ráð fyrir áfram- haldandi stækkun og við gerum ráð fyrir að starfsmenn verði orðnir um 25 að tveimur árum liðnum. Við erum því alltaf að leita að hæfu starfsfólki til að bæta við þann frá- bæra hóp sem er hér fyrir.“ segir Guðjón Þór Mathiesen, sölu- og markaðsstjóri Reynd- ar. Hann tekur fram að fyrirtækið sé alfar- ið í eigu starfsmanna, þessi fyrstu tvö ár hefur reksturinn gengið mjög vel og er fyr- irtækið rekið á traustum fjárhagslegum grunni. „Starfsfólk Reyndar býr einnig yfir afar yfirgripsmikilli þekkingu. Flestir hafa unnið í þessum geira í að minnsta kosti tíu ár og margir lengur, bæði hér heima sem erlendis,“ segir hann. Margverðlaunuð lausn Reynd er sem áður sagði hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í heildarlausnum fyrir verslunarfyrirtæki. „Við erum samstarfsaðili Microsoft og LS Retail og byggja okkar lausnir á þeirra lausnum. LS Retail NAV er margverðlaun- uð lausn fyrir fyrirtæki í verslunarrekstri. Lausnin er byggð ofan á Microsoft Dyna- mics NAV viðskiptalausninni og notast við styrkleika þeirrar lausnar auk þess að bjóða upp á lausnir sem eru sérsniðnar fyrir versl- anir, stórar sem smáar. Sérstaða LS Reta- il liggur í því að bjóða upp á alla helstu virkni í einni lausn, þ.m.t. kassakerfi, vild- arkerfi, bakendakerfi í verslun, birgðabók- hald, aðfangakeðju og fjárhagskerfi svo eitt- hvað sé nefnt. LS Retail NAV er einnig þeim kosti gætt að auðvelt er að laga það að þörf- um þess sem notar það og er hentugt fyrir verslanafyrirtæki af öllum stærðargráðum,“ segir Bjarni Gaukur Sigurðsson, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Reynd. „Einnig bjóð- um við upp á einfalt afgreiðslukerfi frá LS Retail sem kallast LS Retail.NET. Sú lausn er mjög hentug fyrir lítil fyrirtæki sem vilja ódýra og einfalda afgreiðslulausn sem inni- heldur engu að síður alla nauðsynlegustu virkni sem þarf til afgreiðslu þ.m.t. fyrir veitingahús. Auk þessa höfum við þróað aðrar lausnir og má þar nefna OKeDoc og xAdd. OKeDoc er lausn fyrir rafræna reikn- inga sem við erum að hleypa af stokkunum. xAdd er lausn sem notar Excel sem viðmót fyrir dreifða gagnavinnslu sem gerir not- endum kleift að sækja og skrifa gögn í mið- lægan gagnagrunn. Þessi lausn er einkar hentug fyrir ýmiss konar áætlanagerð sem og ýmsa aðra dreifða vinnslu þar sem út- gáfustýring er nauðsynleg og hentugt er að nota Excel sem viðmót,“ bætir hann við. Starfa innanlands sem utan Reynd þjónustar viðskiptavini bæði inn- anlands og utan. Á meðal viðskiptavina fyrirtækisins á Íslandi má nefna Penn- ann, IKEA, ÁTVR, Íslandspóst, Cintamani, Norvik, Nova, Melabúðina, KEX Hostel og nýju matvöruverslunina Víði. Starfsmenn Reyndar hafa í gegnum tíðina unnið fyrir mörg þekkt verslunarfyrirtæki erlendis og má þar nefna IKEA, Footlocker, 7-Eleven, Bouwmaat og Bulgarian Telecom svo eitt- hvað sé nefnt. Reynd hefur frá upphafi haft þó nokkur umsvif í Svíþjóð. „Við höfum þar verið að vinna með einu stærsta fyrirtæki Evrópu á sviði upplýsingatækni og ráðgjaf- ar sem kallast Logica við þróun og innleið- ingu á heildarafgreiðslulausn fyrir sænskar apótekakeðjur í kjölfar einkavæðingar þar í landi. Við komum inn í það verkefni sem sérfræðingar í LS Retail sem er einmitt ein undirstaða kerfisins sem apótekin þar eru að nota,“ segir Bjarni. Það er því ljóst að það eru engir aukvisar þar á ferð. Hugsar með viðskiptavinum „Við bjóðum upp á mjög fjölbreyttar heild- arlausnir, allt frá fjárhagsbókhaldi og út í kassakerfi og allt þar á milli,“ segir Guðjón og heldur áfram. „Við förum í gegnum inn- leiðingaferli með fyrirtækjum, markmiðs- og þarfagreiningu á víðum grundvelli og síðan yfir í innleiðingu og séraðlaganir fyrir þessa aðila,“ segir hann og tekur fram að þó Reynd sé hugbúnaðarfyrirtæki hafi starfs- menn þess einnig mikla rekstrarþekkingu. „Við komum þannig að ýmsum hliðum í rekstri þessara fyrirtækja sem nær út fyrir hið hefðbundna svið upplýsingatækni.“ Guðjón segir meginmarkmið Reyndar að hugsa með viðskiptavinum sínum. „Við lítum á okkur sem samstarfsaðila. Okkar markmið er að aðstoða okkar metnaðar- gjörnu viðskiptavini við að ná markmiðum sínum og í samstarfi við þá að aðlaga ferli og lausnir að þeirra þörfum. Til þess að geta það er mikilvægt að skilja og þekkja þær áskoranir og vandamál sem hver og einn á við að etja,“ útskýrir hann. Reynd hugsar með þér Reynd er hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í afgreiðslukerfum fyrir verslunarfyrirtæki. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Reynd yfir að ráða starfsmönnum með áralanga og víðtæka reynslu. Viðskiptavinir Reyndar eru afar fjölbreyttir. „Starfsfólk Reyndar býr yfir afar yfirgripsmikilli þekkingu. Flestir hafa unnið í þessum geira í að minnsta kosti tíu ár og flestir lengur, bæði hér heima sem erlendis,” segir Guðjón Þór Mathiesen. MYND/GVA Reynd ehf Nótatún 17 sími: 512 4300 info@reynd.is www.reynd.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.