Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2012, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 17.03.2012, Qupperneq 26
17. mars 2012 LAUGARDAGUR26 Þ ekkist þið tveir grín istarnir? Þorsteinn: „Já. Ég hef fylgst með Mið- Íslandshópnum úr fjarlægð og man að ég sá ykkur fyrst koma fram á skemmtistaðnum Karamba við Laugaveg. Ég sá strax að þarna voru liðtækir menn sem kunnu uppistandsfagið en voru líka með eitthvað nýtt. Dóri DNA er mér sérstaklega minnisstæður þetta kvöld. Hann æddi um með bjórglas og einhverja miða sem hann hafði skrifað á og öskraði í sífellu: „Hvað er körrent? Hvað er körrent?“ Svo bullaði hann bara um fréttir dagsins, sem mér fannst alveg frábært. Þetta sýndi frumlega h ugsun og mikinn kjark, því hann hefur varla haft mikinn tíma til að undirbúa sig. Manstu eftir þessu, Ari?“ Ari: „Já, mjög vel. Dóri talaði í fimmtíu mínútur.“ Þorsteinn: „Þetta var heilmikið stuð. Svo gerðum við saman aug- lýsingar fyrir Nova þar sem þú lékst Gary Duncan, knattspyrnu- manninn frá Scunthorpe United.“ Ari: „Einmitt. Sá karakter var nú fundinn upp og auglýsingar samdar hér við eldhúsborðið þitt. Þær voru í þessum kennslumynd- bandastíl sem þú hefur tileinkað þér. Menn sem segja fólki hvern- ig hlutirnir virka, hvort sem þeir vita það eða ekki.“ Þorsteinn: „Já, þetta YouTube- heilkenni sem er svo frábært. Þá var ég að læra á gítar á YouTube og þú sagðir mér að þú hefðir lært að spila fótbolta á YouTube, sem mér þótti hrikalega fyndið og ætlaði varla að trúa því. En svo sýndirðu mér einhvern tann- lausan Breta sem var rosalega harður við börnin sem hann var að kenna knattspyrnu.“ Ari: „Þessar auglýsingar blésu miklu lífi í vináttu okkar. En við kynntumst reyndar fyrst árið 2006 þegar við sömdum Áramóta- skaupið saman, ásamt fleirum.“ Þorsteinn: „Alveg rétt. Ég var búinn að gleyma því.“ Ari: „Og svo leyfðirðu mér að leika í bíómyndinni sem þú skrifaðir handritið að og lékst aðalhlutverkið í, Okkar eigin Osló.“ Þorsteinn: „Já. Ég var búinn að steingleyma því líka.“ Ari: „Það er mitt fyrsta og hingað til eina hlutverk í kvik- mynd. Það var stórkostlegt að eyða fjórum dögum í að bulla með þér og Ladda. Besta djobb í heimi.“ Gerðu hlé á bekkjarpartíinu Ari, varst þú aðdáandi Fóst- bræðra á yngri árum? Ari: „Já mjög mikill aðdáandi. Ég var sextán ára þegar Fóst- bræður hófu göngu sína og sautj- án þegar þú birtist mér fyrst í seríu númer tvö. Á fullkomnum aldri. Í 5. bekk í MR vorum við með bekkjar partí og allir voru vel hressir, en ég man að það var gert hlé á öllu til að horfa á Fóst- bræðraþátt sem var í sjónvarp- inu. Þá sá ég í fyrsta skipti skets- inn með sértrúarsöfnuðinum sem Benedikt Erlingsson leiðir. „Ég drap föður minn og ég nauðgaði móður minni en Guð MUN fyrir- gefa mér!“ Ég átti erfitt með að skilja allt því ég var orðinn svo drukkinn, en við hlógum og hlóg- um.“ Þorsteinn: „Það eru helst strákar á aldrinum 12 til 23 ára sem eru móttækilegir fyrir nýjum grínþáttum. Þeir eru grúppíurnar okkar, þessir bólugröfnu drengir sem vilja láta taka mynd af sér með okkur á iPhone-inn sinn. En þættirnir mættu mikilli and- stöðu hjá stórum hluta almenn- ings. Við í Fóstbræðrum vorum til dæmis hötuð af símastelpun- um á Stöð 2, því þær vissu að þær fengju tvö hundruð kvörtunarsím- töl í hvert skipti. En svo snerist þetta við á einhvern undarlegan hátt. Þættirnir hættu að verða költ og urðu dálítið vinsælir. En ég held að margar aðrar grínþátt- araðir hafi fengið meira áhorf, til dæmis Stelpurnar og Svínasúpan. Þannig er það oft með eitthvað svona nýtt.“ Ari: „Jón Gnarr sagði mér eitt sinn að einna mest hefði verið kvartað yfir atriðinu „Hvað á að gera við afa?“, sem fjallaði um mann sem vill ekki setja afa sinn á elliheimili og ákveður frekar að skjóta hann. Svo hættir maðurinn við á ögurstundu og setur afa á elliheimili, en kvartanirnar snerust allar um að það væri ljótt að sýna atriði þar sem gamall maður væri skotinn. En hann var ekkert skotinn. Það var eins og margir hefðu alveg misst af punktinum í atriðinu. Nú til dags eru auðvitað miklu fleiri leiðir til að tjá ónægju sína með allt, Facebook, vefsíður, spjallvefir og svo mætti lengi telja.“ Þorsteinn: „Þá var það bara Vel- vakandi.“ Ari: „Já, og Þjóðarsálin á Rás 2, fyrir utan að hringja beint í Stöð 2 og skammast. En Fóstbræðra- þættirnir höfðu mikil áhrif á mig. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á gríni en ætlaði samt alltaf að vera kvikmyndaleikstjóri og gera ein- hverjar skandinavískar og þung- lyndar bíómyndir. Líklega hef ég alltaf verið uppistandari í eðli mínu en var rosalega seinn að fatta að færa það upp á svið. Ég var 28 ára þegar ég tróð fyrst upp og þá var ég í raun ekki að hegða mér neitt öðruvísi en ég gerði í partíum.“ Þorsteinn: „Fyrir utan að þú fékkst borgað fyrir það.“ Ari: „Þetta var reyndar algjör sjálfboðavinna til að byrja með, en í dag er ég svo gæfusamur að geta lifað á því að skrifa og koma fram og vonandi endist það sem lengst. Ég vann áður á frábærri auglýsinga stofu sem heitir Jóns- son og Le‘Macks og þegar ég byrj- aði að skemmta á fullu fékk ég að vera áfram með aðstöðu þar. Allir þar hvöttu mig til dáða og hafa hjálpað mér margvíslega. Til að mynda fékk fékk ég ómet- anlegan stuðning frá eigendum og starfsmönnum stofunnar þegar ég gerði litla grín- plötu fyrir jólin 2009. Ég var alltaf hálfgerð- ur vinnustaðagrínisti þar. Varst þú ekki svo- leiðis líka?“ Þorsteinn: „Svona af og til, jú. Ég er með smá athyglisbrest og þegar ég finn að ég er að tapa athyglinni þá byrja ég stund- um með eitthvað rugl til að ná henni aftur. Þetta hófst þegar ég var í MR og leidd- ist stundum í tímum. Þá byrjaði ég að fela mig bak við gardínur og það endaði þannig að ég var heilan tíma bak við gardínur. Svo gerði ég samning við einn kennarann um að fá að glósa á töfl- una hjá honum því ég hefði sofnað yfir bók- unum. Ég skil þessa tilfinningu mjög vel.“ Fékk ógeð á sketsaþáttum Hver er helsti munurinn á að skrifa fyrir sketsaþætti annars vegar og uppistand hins vegar? Ari: „Það eru milljón sinnum fleiri ákvarðanatökur í sketsa- þáttum, meira um millibils- ástand, lengra ferli og þú sérð afraksturinn af því sem þú skrif- ar kannski ekki fyrr en mörg- um mánuðum síðar. Þetta er að minnsta kosti mín reynsla. Í uppi- standi ertu sífellt að prófa eitt- hvað nýtt og henda út gömlu. Og þú veist strax hvort eitthvað virk- ar eða ekki og getur þá lagað eða hent út. Ef eitthvað virkar ekki í sjónvarpi veistu það ekki nema af afspurn. Ég vildi óska þess að ég gæti setið heima hjá hverjum einasta manni sem horfir á Mið- Íslands þættina og horft á hann horfa.“ Þorsteinn: „Já, og útskýra hvers vegna atriðin eru fyndin. Ég hef ekki séð Fóstbræður síðan þætt- irnir voru sendir út á sínum tíma og hef engan áhuga á því. Við unnum mjög hratt og kannski voru vinnubrögðin okkar voðalega óvönd- uð.“ Ari: „En er það ekki kostur að geta tekið hraðar ákvarðanir?“ Þ orstein n : „ Jú , kannski. En ég fékk ógeð á því að skrifa sketsaþætti. Fékk ógeð á að vinna með þetta form. Þetta er dálítið eins og að yrkja ljóð og semja alltaf ferskeytl- ur aftur og aftur. Fyrr eða síðar vill maður gera eitthvað annað, smásögubók eða eitt- hvað slíkt.“ Ari: „Það er mikil hætta á að endurtaka sig ef maður er ekki duglegur að finna nýjar nálganir á hlut- ina. Sjálfur á ég til að vera dálítið takmark- aður. Ég er góður í að skrifa ákveðna tegund af sketsum en lakari í öðrum. Flestir skets- arnir mínir eru bíólegir. Ég er svona form-pervert. En svo er svo mikið af góðum sketsum sem ganga bara út á tvo menn að tala. Ég væri til í að gera meira af því.“ Þorsteinn: „Já, það er mikið til í því. Þannig sketsar eiga til að lifa lengi. Einn skets úr Fóstbræðr- um sem fór lágt á sínum tíma en hefur lifað er Maður í lyftu, þar sem Jón Gnarr var fastur í lyftu með Benedikt Erlingssyni og vill sýna honum gyllinæð, læknamis- tök og hár sem vex út úr vörtu. Þessi innilokunarkennd virkar vel.“ Ari: „Já, og svo er skítlétt að taka svona atriði. Bara redda lyftu og þá er það komið. Full- kominn skets.“ Sköpunargleðin situr eftir Þorsteinn, ertu spenntur fyrir nýju Mið-Íslands þáttunum? Þorsteinn: „Já, það er ég. Mín reynsla er sú að mínir uppáhalds- þættir eru þeir sem ég kveiki ekki á alveg strax, svo ég vona að fyrsti Mið-Íslands þátturinn veiti mér smá mótspyrnu. Ef mér finnst fyrsti þátturinn rosa góður er ekkert víst að ég nenni að horfa á þann næsta.“ Ari: „Þú hefur örugglega gaman af súrari hlutanum af þáttunum. Það er fullt af hefð- bundnu gríni í þeim en annað sem er mjög óhefðbundið og skrýt- ið. Ragnar Hansson, leikstjórinn sem skrifar þættina með okkur, er mjög metnaðar fullur og kemur með nýja vídd inn í efnið okkar. Það er ekkert uppistand, engar eftir hermur og alls ekki „kör- rent“ heldur frekar hliðstæður veruleiki.“ Þorsteinn: „Þættirnir eru aug- lýstir þannig að nú fái Mið-Ísland tækifæri lífs síns!“ Hvað meina þeir með þessu? Hefur ekkert merkilegra gerst í ykkar lífi en að fá að gera þætti á Stöð 2? Er verið að stilla ykkur upp við vegg og segja ykkur að gjöra svo vel að standa ykkur?“ Ari: „Það er verið að segja ákveðna sögu með þessu, ekki endilega úr okkar veruleika.“ Þorsteinn: „Já, þetta vekur athygli. En ef mér leyfist að tala eins og gamall karl í bransanum, þá vona ég að Mið-Ísland fylgi sinni sannfæringu eins og við gerðum í Fóstbræðrum. Það er vel hægt að skrifa fyrir aðra en það verður aldrei sannfærandi. Það er kikk að fá viðbrögð og nýjabrumið er skemmtilegt, en það hverfur og sköpunargleðin er það sem situr eftir þegar fram í sækir.“ Ari: „Algjörlega. Það er frá- bær tilfinning að fá hugmynd og búa eitthvað til. Pabbi minn á sér- staka bókahillu sem í eru allar bækurnar sem hann hefur skrifað og þýtt. Það er svo gaman að sjá hversu mikill tími liggur að baki þessarar litlu hillu. Það finnst mér fallegt.“ Þorsteinn: „En ég er viss um að pabbi þinn er að hugsa um næstu bók.“ Ari: „Já, hann er byrjaður að skrifa hana.“ Bólugrafnar drengjagrúppíur Ari Eldjárn og félagar í Mið-Íslandi byrja með nýjan þátt á Stöð 2 í næstu viku. Ari er mikill aðdáandi Fóstbræðraþáttanna sem skörtuðu Þorsteini Guðmundssyni og hófu göngu sína fyrir fimmtán árum. Kjartan Guðmundsson hlýddi á spjall spaugaranna. VINIR Ari Eldjárn og Þorsteinn Guðmundsson hafa starfað talvert saman í gegnum tíðina, meðal annars við kvikmynd, Áramótaskaup og auglýsingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ef mér finnst fyrsti þátturinn rosa góður er ekkert víst að ég nenni að horfa á þann næsta.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.