Fréttablaðið - 17.03.2012, Síða 36

Fréttablaðið - 17.03.2012, Síða 36
17. mars 2012 LAUGARDAGUR36 Þ egar Michael Schu- macher var upp á sitt besta í byrjun aldar- innar voru yfi rburðir hans slíkir að talið var að hann myndi aldrei eiga sér jafnoka, hvorki í framtíð né fortíð. Hægt er að hafa skoðanir á því eins og hverju öðru, hvort Schumacher sé allra bestur eða ekki, en eitt er víst að landi hans, Sebastian Vettel, hefur sýnt hversu hæfileikaríkur hann er rétt eins og Schumacher gerði forðum. Sebastian Vettel fæddist í Heppen heim í Þýskalandi árið 1987, um það leyti sem Schumacher var að skapa sér gott orð í mótorsporti í heimalandinu. Seinna varð Schu- macher fyrirmynd Vettels, sem enn lítur upp til gamla meistarans. Þó ferill Vettels í Formúlu 1 hafi verið stuttur hefur hann verið ævintýralegur. 24 ára gamall er Vettel nú þegar orðinn tvö faldur heimsmeistari eftir ekki nema fjögur heil tímabil í heimsmeistara- keppninni. Það er afrek sem hæst skrifuðu ökumenn allra tíma náðu aldrei, nema Michael Schumacher. Schumacher keppir enn og hefur nú þriðja ár endurkomu sinnar í Formúlu 1. Þeir Ross Brawn, liðs- stjóri Mercedes-liðsins, hafa átt mjög farsælt samband í Formúlu 1. Brawn var hjá Benetton og Ferrari öll heimsmeistaraár Schumachers og hefur sagt það vera draum sinn að gera Schumacher að sigur- vegara aftur. Ef Mercedes- bíllinn lofar getur Schumacher bætt sigur met sitt sem nú er 91 móts- sigur. Það gera 32% af öllum þeim mótum sem hann hefur ræst. Hingað til hefur ferill Vettels í Formúlu 1 verið ótrúlega áþekkur upphafi ferils Schumachers. Báðir byrjuðu á miðju tímabili (1991 og 2007), báðir sóttu sinn fyrsta sigur ári síðar og báðir urðu tvö- faldir heimsmeistarar með besta liðinu á ráslínunni eftir fjögur ár í deildinni. Það er því ekki úr vegi að spyrja hvort Vettel sé hinn nýi Schumacher? Í vænni stöðu Það má færa góð rök fyrir því að Vettel verði sigursælli en Schumacher. Schumacher færði sig um set í lok árs 1995, þegar hann var á svipuðum stað og Vettel er nú, og fór yfir til Ferrari. Það átti eftir að reynast góð ákvörðun en það tók hann samt fimm ár að ná titlinum aftur. Vettel er í þeirri stöðu nú að vera enn í heimsmeist- arabílnum og eiga bestu mögu- leikana á heimsmeistaratitlinum. Mótið á morgun mun samt sem áður segja okkur mikið um hversu góður Sebastian Vettel virkilega er. Formúla 1 snýst nefnilega ekki bara um hversu hratt ökuþór kemst hringinn, heldur líka hversu góðan skilning hann hefur á öku- tækinu og keppnisáætluninni sem liðið leggur upp fyrir hann. Sagt er að það sem á endanum gerði Schumacher að sigur sælasta ökuþór allra tíma sé ótrúleg þekking hans á bílnum, keppnis- áætlunum og stærðfræðinni á bak við velgengni. Þannig náði hann að byggja upp Ferrari-liðið og full- komna bílinn ár eftir ár. Það sem ástralski kappakstur- inn mun segja okkur um Vettel er hversu áreiðanlegur hann er sem ökuþór til langs tíma. Hér treystir Red Bull-liðið á tækniþekkingu hans og þroska til að takast á við verkefni sem uppskera ekki fyrr en eftir langan tíma. Þótt óþjálfuðu auga geti sýnst Formúla 1 vera einstaklingsíþrótt er það fjarri lagi. Liðsheild skiptir miklu máli og góður andi er mikil- vægur svo samstarfið gangi betur en hjá andstæðingunum. Christian Horner, liðsstjóri Red Bull, skaut því að fjölmiðlamönnum sem fylgd- ust með æfingum keppnisliðanna í Barcelona í byrjun mánaðarins, að Vettel ætti enn eftir að sýna hvað í honum býr í raun. Við höfum séð hversu fáránlega vel hann getur ekið einn stakan hring í tíma tökum en eigum enn eftir að sjá hann þroskast frekar í keppninni sjálfri. Þrátt fyrir það er Vettel nú þegar tvöfaldur heimsmeistari og sigurstranglegastur fyrir tíma- bilið í ár. Michael Schumacher þarf að fara að spýta í lófana ætli hann að halda meti sínu til eilífðar. Er Vettel hinn nýi Schumacher? Keppnistímabilið í Formúlu 1 hefst á morgun þegar ástralski kappaksturinn verður ræstur á götubrautinni í Melbourne. Sebasti- an Vettel hafði gríðarlega yfirburði í fyrra og var öruggur heimsmeistari þegar fjögur mót voru eftir af tímabilinu. Birgir Þór Harðarson kannaði hvort Vettel gæti reynst jafn sigursæll og Michael Schumacher, sigursælasti ökuþór allra tíma. ARFTAKINN Michael Schumacher er sigursælasti ökuþór allra tíma í Formúlu 1. Sebastian Vettel hefur nú sitt fimmta heila tímabil í mótaröðinni og ætlar að sækja sinn þriðja titil í röð. Vettel hefur bæði hæfileika og tækifæri til að verða jafn sigursæll og lærifaðir hans, ef ekki betri. NORDICPHOTOS/AFP 1. Hausinn á Hamilton Lewis Hamilton átti mjög erfitt uppdráttar í fyrra einfaldlega vegna þess að hugarfarið var ekki í lagi. Hann virkaði oft og tíðum pirraður og lenti í óþarfa óhöppum. Nú segist hann vera búinn að taka til í sínu lífi. Það verður áhugavert að sjá hvernig það er í raun. 2. Liðsfélagaslagir Tvö spennandi einvígi munu eiga sér stað í öllum 20 mótum ársins. Fyrst ber að nefna Force India- slaginn þar sem Paul di Resta og Nico Hülkenberg takast á. Báðir eru jafn reyndir í Formúlunni, hafa keppt í 19 mótum. Annars vegar verður háð barátta innan Toro Rosso þar sem nýliðarnir Daniel Ricciardo og Jean-Eric Vergne munu berjast um að hafa yfirhöndina. Orðrómur þess efnis að sigurvegari einvígisins muni erfa sæti Marks Webber hjá systurliðinu Red Bull hefur flogið hátt undanfarið. 3. Ferrari og Alonso Ferrari átti ömurlegt undirbúningstímabil og lítur út fyrir að fyrri hluti tímabilsins verði liðinu erfiður ljár í þúfu. Ekki má því gleyma að Fernando Alonso hefur oft reynst göldróttur og gæti allt eins galdrað fram sigur eða tvo í rauða Ferrari-brakinu. 4. Tæknistríð og nýjungar Í Formúlu 1 er gríðarleg áhersla lögð á einföldustu smáatriði við smíði bílanna. Búið er að banna tvöfalda loftdreifa, pústblásna loftdreifa og fyrir- framforrituð vélkerfi vegna þeirra yfirburða sem nýjungarnar veittu þeim sem notuðu slíkt. Ekkert lið virðist hafa fundið sérstaka glufu í reglum ársins en bílarnir eru í stöðugri þróun yfir allt tímabilið og því spennandi að sjá með hvaða tæki liðin mæta í mót ársins. 5. Kimi Räikkönen Finninn fljúgandi er mættur aftur, enn jafn hreinskilinn og ekkert að flækja hlutina óþarflega mikið. Kimi hefur alltaf verið eldfljótur og sannaði á undir- búningstímabilinu að hann er það enn. Hann mun vonandi geta strítt stóru strákunum aðeins nái hann taktinum aftur. ■ FIMM ATRIÐI SEM VERT ER AÐ FYLGJAST MEÐ Á RÉTTRI BRAUT Lewis Hamilton segist vera kominn á beinu brautina aftur eftir að hafa þjáðst af einbeitingarskorti í fyrra. NORDICPHOTOS/AFP Á morgun keppa sex heimsmeistarar í Formúlu 1 og hafa aldrei fleiri heimsmeistarar keppt samtímis. Útlit er fyrir að titilbaráttan verði gríðarlega jöfn, þá sérstaklega á milli Red Bull og McLaren. Þeir Sebastian Vettel, Jenson Button og Lewis Hamilton eru taldir líklegastir til að sigra. Kimi Räikkönen snýr aftur eftir að hafa keppt í rallýi undanfarin tvö ár. Hann er orðinn leiður á því og ekur fyrir Lotus sem sýnt hefur fína takta á undirbúnings- tímabilinu. Kimi benti á það í viðtali nýverið að það væru mikil mistök að afskrifa hann í baráttunni um titilinn. Þá mæta þeir Fernando Alonso og Michael Schumacher til leiks, yfirvegaðir en grimmir. ■ SEX HEIMSMEISTARAR Á RÁSLÍNUNNI Fjórðungur allra þeirra sem ræsa kappaksturinn í Melbourne hafa einhvern tíma orðið heimsmeistarar. LÍTUR VEL ÚT McLaren liðið hefur framleitt góðan bíl í vetur. Liðið verður þó að framleiða stöðugar upp- færslur á bílinn til að missa ekki af lestinni. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 15 14 16 17 18 19 20 1 2 3 4 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 6 7 5 20 FORMÚLU 1 TÍMABILIÐ 2012 Ástralía Melbourne 18. mars Malasía Kúala Lúmpúr 25. mars Kína Sjanghæ 15. apríl Barein Sakhir 22. apríl Spánn Barcelona 13. maí Mónakó Monte Carlo 27. maí Kanada Montreal 10. júní Evrópa Valencia 24. júní Bretland Silverstone 8. júlí Þýskaland Hockenheim 22. júlí Ungverjal. Budapest 29. júlí Belgía Spa 2. sept. Ítalía Monza 9. sept. Singapúr Marina Bay 23. sept. Japan Suzuka 7. október Kórea Yeongam 14. október Indland Nýja Delhi 28. október Abu Dhabi Yas Marina 4. nóv. BNA Austin 18. nóv. Brasilía Sao Paulo 25. nóv. Heimild: FIA © GRAPHIC NEWS Evrópa heldur aðeins 40% móta í ár, sem er lægsta hlutfall frá upphafi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.