Fréttablaðið - 17.03.2012, Side 38
17. mars 2012 LAUGARDAGUR38
F
yrsta bókin í þríleik
Suzanne Collins sem
segir frá ævintýrum
Katniss Everdeen kom
út árið 2008. Bókin sló
í gegn og sama á við
um bækurnar tvær sem fylgdu í
kjölfarið en bækurnar hafa selst í
11 milljónum eintaka bara í Banda-
ríkjunum. Sem dæmi um slagkraft
bókanna þá útnefndi vikuritið Time
Collins sem eina af 100 áhrifamesta
fólki heims árið 2010. Collins tókst
sem sagt heldur betur að ná eyrum
fjöldans með bók sem sumum þykir
allt of hryllileg fyrir þau ungmenni
sem hún var skrifuð fyrir. En þess
ber að geta að líkt og bækurnar um
Harry Potter, hafa bækurnar um
Katniss Everdeen náð athygli full-
orðinna lesenda.
Rústir Norður-Ameríku
Sögusvið bókarinnar er ríkið Panem
sem reist er á rústum ríkis sem eitt
sinn hét Norður-Ameríka. Höfuð-
staðurinn Kapitól ræðum lögum og
lofum í ríkinu sem sett er saman úr
tólf umdæmum auk höfuðborgar-
innar. Þau höfðu áður verið þrett-
án en í uppreisn umdæmanna gegn
höfuðborginni, áratugum áður en
sagan hefst, var því þrettánda eytt.
Stjórnvöld kalla uppreisnartímann
Myrkra tíðina og það er tími sem
þau vilja alls ekki að endurtaki sig.
Til þess að tryggja hlýðni borgara
Panem hafa þau gripið til ýmissa
ráða, ekkert samband er til að mynda
milli umdæma og fjölmiðlar flytja
einungis fregnir sem stjórnvöldum
eru þóknanlegar. En eitt helsta kúg-
unartæki stjórnvalda eru Hungur-
leikarnir. Þeir fara fram ár hvert í
refsingarskyni fyrir uppreisnina og
í þeim felst að umdæmin tólf þurfa
að senda eina stelpu og einn strák
til að taka þátt í leikum upp á líf og
dauða, aðeins einn þátttakandi lifir
af grimmilegan bardaga sem fram
fer á risastórum útileikvangi. Öllu
sem á sér stað á leikvanginum, sem
hannaður er af leiksmiðum sem hafa
mikinn metnað til að gera umhverf-
ið sem ævintýralegast, er sjónvarp-
að og þurfa íbúar umdæmanna að
fylgjast með því hvernig hver þátt-
takandinn af öðrum fellur við þessar
grimmúðlegu aðstæður.
Í upphafi bókarinnar Hungurleik-
arnir er dagur sláttunnar einmitt
runninn upp, en svo nefnist dagur-
inn þegar nöfn þátttakenda leikanna
eru dregin – í pottinum eru nöfn
allra barna í umdæmunum sem eru
á aldrinum tólf til átján ára.
Sextán ára söguhetja
Aðalsöguhetja bókanna, hin sextán
ára Katniss Everdeen, óttast Hung-
urleikana eins og önnur börn í tólfta
umdæmi, þar sem hún býr. Á hverju
ári síðan hún varð tólf ára hefur
miði með nafni hennar verið settur í
nafnapottinn sem dregið er úr. En til
þess að afla fjölskyldu sinni matar
hefur hún einnig náð í auka matar-
skammt gegn því að setja nafn sitt
í pottinn og því eru tuttugu miðar
með nafninu hennar í pottinum, ekki
bara fimm eins og þeir ættu að vera.
En það er ekki nafn hennar sem
dregið er út í sláttunni, heldur nafn
litlu systur hennar, Primrose Ever-
deen. Katniss býður sig umsvifa-
laust fram í stað hennar og þannig
hefst þátttaka hennar í leikunum.
Katniss er eftirminnileg sögu-
hetja. Hún hefur séð fjölskyldu sinni
fyrir mat með ólöglegum veiðum en
færni hennar með bogann kemur
sér vitaskuld vel í Hungurleikun-
um. Hún kann að berjast upp á líf
og dauða, greina kringumstæður og
leysa vandamálin með því að hugsa
út fyrir kassann. Hún er hins vegar
heldur lélegri í því að skilja og átta
sig á tilfinningum annarra, hvort
sem það er veiðifélagi hennar, Gale,
aðdáandi hennar og hinn þátttak-
andi tólfta umdæmis í Hungurleik-
unum, Peeta. Sorgarviðbrögð móður
hennar þegar faðir hennar lést eru
henni einnig óskiljanleg. Í upphafi
bókarinnar kemur fram að hún er
ekki enn búin að fyrirgefa móður
sinni fyrir að hafa brotnað saman
þegar það gerðist, fimm árum fyrr.
Eina manneskjan sem hún elskar
skilyrðislaust er litla systir hennar,
Prim, og það skýrir hvers vegna hún
vill ekkert frekar en vernda hana.
Töffaraskapurinn, sjálfsbjargar-
viðleitni og lítið innsæi þegar kemur
að tilfinningum kallar fram hug-
renningatengsl við aðra kvensögu-
hetju í nýlegum þríleik, Lisbeth
Salander í Millennium-þríleiknum,
þó að ekki sé hægt að bera bækurn-
ar saman að öðru leyti. Þær eiga
það vissulega sameiginlegt að vera
söguhetjur sem ráða við óraunveru-
legt álag og taka ráðin í sínar hend-
ur þegar við á.
Blóði drifin saga
Hungurleikarnir eru æsispennandi
og hröð saga, óhugnanleg og blóði
drifin. Hún hentar sem sagt býsna
vel til kvikmyndagerðar og kapp-
hlaupið um réttinn til að mynda
bækurnar hófst um leið og sú fyrsta
var komin út. Reyndar var svo
keppst um ýmislegt fleira, nokkr-
ir leikstjórar komu til að mynda til
greina en það var Gary Ross, sem
meðal annars leikstýrði kvikmynd-
inni Seabiscuit, sem hreppti hnossið.
Þríleikur Collins á sér dygga aðdá-
endur og þeir fylgdust grannt með
því þegar verið var að velja í hlut-
verk í kvikmyndinni.
Einkum var fylgst grannt með því
hver yrði valinn í hlutverk Katniss.
Fjölmargar leikkonur voru kallaðar
til en sú sem hreppti hnossið heitir
Jennifer Lawrence, hingað til best
þekkt fyrir aðalhlutverk í mynd-
inni Winter’s Bone en hún hlaut
Óskarsútnefningu fyrir leik sinn í
þeirri mynd. Margir aðdáendur létu
í ljós áhyggjur sínar af þessu vali,
hún væri of gömul og of ljóshærð.
Lawrence sem er 21 árs litaði á sér
hárið fyrir töku myndarinnar og sór
að taka hlutverkið afar alvarlega.
Aðdáendur geta dæmt um hvernig
henni hefur tekist upp frá og með
næsta föstudegi en þá verður mynd-
in heimsfrumsýnd hér á landi.
Upp á líf og dauða
Kvikmyndin Hungurleikarnir verður frumsýnd í næstu viku. Myndin er
byggð á samnefndri bók eftir rithöfundinn Suzanne Collins, fyrstu bók í
þríleik sem hefur heltekið milljónir lesenda um heim allan. Sigríður Björg
Tómasdóttir kynnti sér um hvað æðið snýst.
SNJÖLL MEÐ BOGANN Katniss Everdeen bregst ekki bogalistin í Hungurleikunum.
Í AÐALHLUTVERKI Þau Jennifer Lawson og Josh Hutcherson sem leikur Peeta voru
glaðbeitt á galafrumsýningu Hunger Games.
Suzanne Collins höfundur
Hungurleikanna hefur sagt frá
því að hún fékk hugmyndina að
Hungurleikunum þegar hún var
að flakka á milli sjónvarpsstöðva
og fylgdist eina stundina með
raunveruleikaþætti og skipti svo
yfir á stöð þar sem verið var að
fjalla um Íraksstríðið.
Og Hungurleikana má vissulega
sjá sem ádeilu á bæði raunveru-
leikasjónvarp og stríð. Þegnum
Panem er haldið í skefjum með
því að neyða þá til þátttöku í
skelfilegum raunveruleikaþætti
þar sem ofbeldi og átök eru sjón-
varpsefni sem allir horfa á, hvort
sem þeim líkar betur eða verr.
Þríleikur Collins er dystópía,
þegnar Panem búa við ógnarstjórn
þar sem einungis íbúar höfuðborgarinnar hafa nóg að bíta og brenna.
Raunar þurfa þeir ekki að afla sér matar sjálfir og gangast aðallega upp í
því að hugsa um útlitið, breyta því, bæta og lagfæra.
Collins hefur væntanlega rakað inn fé á bókunum, en ef marka má
netráp býr hún enn í Connecticut með manni og börnum, rétt eins og
áður. Áður en hún setti þá á blað hafði hún getið sér gott orð fyrir fimm
bóka fantasíu-seríu, Undirheima-annálana (Underworld Chronicles). Og
áður en hún gerðist rithöfundur starfaði hún sem textahöfundur fyrir
barnasjónvarp. Vegurinn þaðan yfir í harðneskju Hungurleikanna er langur
en átök og orrustur í Undirheima-annálunum gefa fyrirheit um það sem
koma skyldi.
Faðir Collins, sem var liðsforingi í Bandaríkjaher, veitti henni ráð áður
en hún hóf að skrifa um Undirheimana, en efniviður þeirra bóka tengist
hernaði með margvíslegum hætti. Faðir
hennar sagði henni raunar margt um stríð
og orrustur fyrr og nú. Og Collins upplifði
það sem barn að sjá á eftir föður sínum
í Víetnamstríðið, en biðin eftir að hann
sneri aftur var erfið að hennar sögn.
Unglingarnir sem eru aðalsöguhetjur
Hungurleikanna eru settir í ómann-
eskjulegar aðstæður, og grimmilegt
ofbeldi sögunnar hefur reynst sumum
lesendum tilefni til þess að túlka þrí-
leikinn sem allegóríu um erfiðleika
unglingsáranna. Það líst höfundi ekki
á: „Ég skrifa um stríð. Fyrir unglinga,“
sagði hún í viðtali við The New York
Times.
STRÍÐSSÖGUR FYRIR UNGLINGA?
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu
starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu
og afgreiðslu.
3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
4. Kjöri stjórnar, trúnaðarráðs og samninganefndar,
kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga og uppstill-
inganefndar lýst.
5. Kosning endurskoðenda.
6. Tillögur um fulltrúa á þing Alþýðusambands Íslands
2012.
7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem
FIT er aðili að.
8. Önnur mál.
Veitingar í boði félagsins.
Stjórnin.
AÐAL
FUNDUR
Félagið veitir ferðastyrk til
þeirra félagsmanna sem búa
í meira en 40 km fjarlægð frá
fundarstað.
Félags iðn- og
tæknigreina
verður haldinn í Iðnaðarmanna-
salnum Skipholti 70, laugardaginn
24. mars 2012 kl. 11.00.