Fréttablaðið - 17.03.2012, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGFermingargjafir LAUGARDAGUR 17. MARS 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen, ivarorn@365.is s. 512 5429
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur hefur búið ung-
linga undir fermingu í 35 ár. Hann segist ekki finna
neinn mun á unglingum dagsins í dag og fyrir þrjá-
tíu og fimm árum. Það sé 4000 ára gömul hefð fyrir
því að hafa áhyggjur af óhlýðni unglinga en þeir séu
alltaf jafn skemmtilegir.
„Eini munurinn sem ég finn fyrir er sá að þegar
ég var að byrja minn prestskap var ég prestur
á Sauðárkróki og hafði þá kynnst krökkunum
í barnastarfinu áður en kom að fermingar-
fræðslunni,“ segir Hjálmar spurður hvort honum
finnist fermingarbörn dagsins í dag frábrugðin
fermingarbörnunum þegar hann var að byrja, fyrir
35 árum. „Þá þekkti maður líka fjölskyldur þeirra
og aðstæður. Hér er svæðið stærra og kynnin eru
minni og stopulli þangað til kemur að fermingar-
vetrinum. En krakkar á þessum aldri eru ekkert
öðruvísi en þá. Þau eru alveg jafn hugmyndarík og
skemmtileg.“
Hjálmar segist ekki hafa nokkrar áhyggjur af því
að unglingar í dag séu verr staddir en í gamla daga.
„Alls ekki. Ég vitna stundum í fjögur þúsund ára
gamalt skrif á leirtöflum þar sem því er lýst að aug-
ljóst sé að nú líði að lokum heimsins þar sem börn
séu hætt að hlýða foreldrum sínum og allt virðist
ganga á afturfótunum. Það eru nú ekki alveg fjögur
þúsund ár síðan ég byrjaði en það var líka talað um
þetta þá svo ég hef engar áhyggjur af því. Auðvitað
er margt að varast en krakkar í dag læra það. Þar eru
heimilin, skólarnir og kirkjan gífurlega mikilvæg.“
Stundum er því haldið fram að börn fermist
vegna gjafanna, en Hjálmar blæs á þá umræðu.
„Það hefur alltaf verið talað um þetta sama. Að
börn séu að fermast vegna gjafanna, það er aldrei
minnst á slíkt þegar menn eiga afmæli eða fólk gift-
ir sig. Ég er sannfærður um að svo er ekki. Ungling-
arnir ákveða sjálfir hvort þeir fermast og njóta til
þess tilstyrks fjölskyldu sinnar. Það fyrsta sem við
prestar segjum börnunum í fermingarfræðslunni er
að þau séu að taka sjálfstæða ákvörðun en svo eru
ýmsir aðrir sem eru andsnúnir fermingu og liggja
ekki á þeirri skoðun sinni. Þannig að það fermist
enginn án þess að vilja það sjálfur, það þarf jafn-
vel að ganga gegn ákveðnum fordómum til að ferm-
ast. Þess vegna er raunin sú, ekki síður nú en áður,
að krakkarnir taka upplýsta ákvörðun um að ferm-
ast, byggða á trú sinni og viðhorfum og krakkar í
dag eru síður en svo verr í stakk búnir til þess held-
ur en áður var.“
Krakkarnir taka upplýsta ákvörðun
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur segir unglinga ekki hafa
breyst neitt á þeim þrjátíu og fimm árum sem hann hefur starfað
sem prestur. MYND: STEFÁN
Tískan í hárklippingu eða –greiðslu er mjög í anda fata-tískunnar. Einfaldleikinn fær
að njóta sín. Léttir liðir, eðlilegir
litir og hárið er enn sítt. Mikilvægt
er að halda því vel hirtu og fallegu,“
segir Ágústa.
„Vafningar ýmiss konar í hárinu
eru vinsælir, líkt og sjá mátti á
stjörnunum á Óskarsverðlaunahá-
tíðinni. Þá eru f léttur í marg-
víslegum útfærslum enn mjög
vinsælar og verða líklega aðal-
fermingargreiðslan þetta vorið.
Fléttugreiðslurnar þykja látlausar
og fallegar,“ greinir hún frá.
Látlaus tíska
Ágústa segir að hárskrautið eigi að
vera látlaust eins og greiðslan og
þess vegna komi blóm sterk inn í
tískuheiminum. Ég sá í New York
að blómamyndir eru á bolum og
kjólum fyrir sumarið og þar með
verða blómin einnig vinsæl í hárið.
Þetta fylgist allt að í tískusveiflum,“
segir hún.
„Ég hef legið yfir vörulistum með
fallegu blómaskrauti fyrir hárið
undanfarið. Þetta eru til dæmis stór
blóm sem hægt er að setja aftan á
hnakkann eða mörg lítil. Það má
vel nota lifandi blóm ef ferming-
arbörnin vilja það frekar. Einnig
er mikið úrval af hárböndum með
litlum blómum. Litirnir eru svipað-
ir og í fatatískunni, laxableikt, föl-
bleikt og drapplitað. Einnig er hægt
að fá þessi blóm í hvítu en ljós litur
er alltaf vinsælastur hjá fermingar-
stúlkum,“ segir Ágústa.
Léttir liðir
Hún segir að mömmurnar fari ekki
lengur í greiðslu á fermingardegi
dótturinnar. „Konur á öllum aldri
eru með sítt hár í dag og gæta þess
í flestum tilfellum að hirða það vel
með litun og klippingu. Síðan er
alltaf fallegt að setja létta liði í hárið
og það hentar vel síðu hári.“
Þegar Ágústa er spurð um nýj-
ustu straumana í klippingu segir
hún að skálínur séu fyrirferðamikl-
ar í vortískunni. Sítt hár er áfram
vinsælt en það er mikið tjásað og er
það gert með nýrri aðferð.“
Fléttur og blóm í hárið
Ágústa Hreinsdóttir, hársnyrtimeistari hjá Hár Expo, er nýkomin frá New York þar sem hún
sat námskeið fyrir fagfólk. Hún segir að blóm í öllum gerðum séu vinsæl um þessar mundir.
Blómaskrautið er í ýmsum útfærslum. Einnig er hægt að fá hárbönd með litlum blómum. Ágústa Hreinsdóttir, hársnyrtimeistari Hár
Expo, segir að blóm í alls kyns útfærslum séu það nýjasta í hárskrauti. Á myndinni til hægri er Ágústa á stofunni.
Þórhildur Kristinsdóttir fermist í Víkurkirkju þann 9. apríl, annan í
páskum. Fermingarbörnin þann daginn verða þrjú í heildina en tvær
skólasystur Þórhildar fermast með henni. „Hinir tveir krakkarnir í ár-
ganginum fermast svo á hvítasunnudag,“
segir Þórhildur sem hefur haft gaman af
öllum undirbúningnum í vetur. „Ferm-
ingarfræðslan hjá séra Haraldi M. Krist-
jánssyni var mjög skemmtileg og við lærð-
um mjög margt,“ upplýsir Þórhildur en
fermingarbörnin fimm hittust einu sinni
í viku á heimili prestsins. „Við höfum lært
öll boðorðin, trúarjátninguna og ýmis-
legt fleira utanbókar. Svo er séra Harald-
ur mjög skemmtilegur og fékk okkur til að
spjalla um ýmislegt sem tengist trúnni,“
segir Þórhildur sem þótti bara skemmti-
legt að mæta í messur í vetur og þykir allt
eins líklegt að hún haldi því áfram.
Fermingarveisla Þórhildar verður í Vík-
urskóla og boðið verður upp á kökuveislu.
Þórhildur segir að fjölmörgum hafi verið
boðið og vonast hún til þess að sem flestir
mæti þó um nokkuð langan veg sé að fara.
Innt eftir því hvers hún óskar sér í fermingargjöf nefnir hún tvennt.
„Ég vonast eftir að fá ferðatösku og ef það er ekki allt of dýrt þá lang-
ar mig svolítið í rafmagnspíanó,“ segir Þórhildur sem hefur sjálf lært
á píanó. Tónlistariðkun er enda rík á heimilinu enda faðir Þórhildar,
Kristinn Níelsson, deildarstjóri tónlistarskólans í bænum. Þórhildur
er einnig mikill söngfugl og nýtur þar leiðsagnar móður sinnar, Hörpu
Jónsdóttur, sem menntuð er í söng. Þórhildur og vinkona hennar
stóðu sig enda með prýði á dögunum þegar þær unnu söngvakeppni
Samsuðs og tóku þátt í söngvakeppni Samfés.
En ætlar hún að taka lagið í veislunni sinni? „Já, það getur vel verið
að ég syngi eitt eða tvö lög í veislunni,“ segir hún glaðlega.
Syngur sjálf í veislunni
Þórhildur Kristinsdóttir fermist
ásamt tveimur skólasystrum
sínum í Víkurkirkju á annan í
páskum. MYND/HARPA JÓNSDÓTTIR
Erna
Skipholti 3
Sími: 552 0775
www.erna.is
Fyrir orrustuna um Milvian brú yfir Tíberfljót, 28. október
312 fyrir réttum 1700 árum, sá
Konstantín mikli teikn krossins
á himni og orðin “in hoc signo
vinces” “Undir þessu tákni muntu
sigra”. Árið 313 er Konstantín var
orðinn keisari veitti hann kristnum
mönnum trúfrelsi eftir langvarandi
ofsóknir.
Menin eru smíðuð á Íslandi eftir hugmynd
Dr Gunnars Jónssonar og fást silfurhúðuð á 3.500,-
úr silfri: 5.900,- (með demanti: 11.500,-) og
úr 14k gulli á 49.500,- (með demanti: 55.000,-).
IN HOC SIGNO VINCES
(Undir þessu tákni muntu sigra)