Fréttablaðið - 17.03.2012, Síða 44
FÓLK|HELGIN
er oft mikið stuð á árs hátíðum og við
leikum okkar lög í bland við önnur vin-
sæl lög,“ segir Jónsi þegar hann er spurð-
ur um lagavalið. Hann telur fullvíst að
beðið verði um Eurovision-lagið Mundu
eftir mér. Þannig hafi það verið undan-
farið. „Þá syng ég bara báðar raddirnar,“
bætir hann við en engin kvenrödd er í
hljóm sveitinni. Á milli þess sem Jónsi
syngur með Í svörtum fötum spilar hann
á gítar og treður upp sem trúbador. Þá er
hann oft fenginn sem veislustjóri og er
vinsæll til að gæsa verðandi brúðir.
VON TRAPP-FJÖLSKYLDAN
Jónsi er mikill fjölskyldumaður. Hann á
tvo syni, Trausta, 11 ára, og Ara, 6 ára.
Þeir eru báðir að læra á fiðlu en móðir
þeirra, Rósa Björgvinsdóttir, er fiðlu-
leikari þótt hún starfi ekki við það.
Trausti er auk þess í karate og Ari í
ballett svo það er nóg að gera hjá Jónsa
við að skutla strákunum í tóm stundir.
„Laugardagsmorgnar eru oft anna samir
við skutl. Við vöknum því alltaf
snemma, enda nóg að gera,“
segir Jónsi.
Rósa og Jónsi kynntust
í Tónlistarskóla Akur eyrar
þegar þau voru sextán ára.
Þá voru bæði að læra tón-
list. Þegar Jónsi er spurður
hvort fjöl skyldan spili og
syngi saman jánkar hann
því. „Við gerum það
undir vissum kringum-
stæðum, til dæmis í
fjölskyldu boðum.
Við búum oft til
skemmtidagskrá
fyrir fjölskyldu-
veislur og gerð-
um það síðast
um áramótin.
Við erum hægt og
sígandi að breyt-
ast í Von Trapp-
fjölskylduna. Það er
töluvert líf á þessu
heimili,“ segir Jónsi
sem er sálfræðinemi
í HR og útskrifast
þaðan eftir eitt ár.
„Vegna þess hve
mikill tími hefur
farið í undirbúning
Eurovision þá bíða
mín stór verkefni
fyrir skólann sem
ágætt verður að
klára um helgina.“
FRÆÐSLA UM ASERBAÍDSJAN
Jónsi tók áður þátt í Eurovision-
keppninni árið 2004. Hann komst
síðan áfram í undankeppninni hér
heima árið 2007. „Ég er mjög spenntur
yfir að fara í keppnina núna,
sérstaklega vegna þess að
við erum að fara til lands
sem ég myndi ekki annars
heimsækja. Rebekka A.
Ingimundardóttir, leikstjóri
og búninga hönnuður
hópsins, ætlar að
halda fyrir lestur um
Aserbaídsjan fyrir
okkur, segja frá
siðum og venjum
og kenna
okkur nokkur
orð í málinu.
Hún hefur
farið víða
um heiminn
og kynnt sér
meðal annars
menningu þessa
lands,“ segir Jónsi.
Á sumrin starfar
Jónsi sem flug-
þjónn hjá Icelandair
og svo verður aftur
í sumar. Hann fer því
beint í loftið aftur þegar
hópurinn kemur heim
frá Bakú. Hann segir að
námið í sálfræði henti
vel fyrir flugþjóna og
komi oft að góðum
notum í há loftunum.
„ Vinnusálfræði heillar mig
mikið,“ segir Jónsi.
■ elin
HRESSIR STRÁKAR
Ari og Trausti leika báðir
á fiðlu og spila oft með
foreldrum sínum í fjöl-
skylduveislum.
MYND/GVA
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
■ HÚMORSÞING VERÐUR
HALDIÐ Í FJÓRÐA SINN Í DAG
Á HÓLMAVÍK. Þjóðfræðistofa
og þjóðfræðideild Háskóla Ís-
lands, í samstarfi við Eddu-
öndvegissetur, standa fyrir
hinu árlega Húmorsþingi í dag.
Það er nú haldið í fjórða sinn á
Hólmavík á Ströndum. Á mál-
þinginu munu fræðimenn stíga
á stokk og varpa ljósi á nýjustu
rannsóknir og miðlun á húmor.
Í fyrirlestrum og umræðu-
hópum verður rætt um hinar
ýmsu birtingarmyndir húmors í
daglegu lífi og fjölmiðlum.
Á meðal þátttakenda verða
Þorsteinn Guðmundsson,
Ugla Egilsdóttir, Ari Eldjárn,
Örn Úlfar Sævarsson, Bryndís
Björgvinsdóttir, Íris Ellenber-
ger, Ármann Jakobsson, Sóley
Guðmundsdóttir, Kristinn
Schram og Kristín Einarsdóttir.
HÚMORSÞING
ALLTAF
FJÖR
„Við erum
hægt og
sígandi að
breytast í
Von-Trapp-
fjölskylduna.
Það er
töluvert
líf á þessu
heimili.“
Áttablaðarós rúmföt
Stærð 140x200
UM SÝNINGUNA:
Sýningargestum er boðið í ferðalag um Ísland. Ferðin tekur óvænta
stefnu þar sem náttúran og ýmis óræð öfl setja mark sitt á ferðalagið.
KYNNIR:
Borgarleikhúsinu 19. og 20. mars 2012
Ísland er land þitt
45 ára starfsafmæli JSB
1967 - 2012
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Laugavegi 63
s: 551 4422 • laxdal.is
VORFRAKKARNIR
KOMNIR
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16,
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Vattjakkar, 4 litir, kr. 19.900
alla sunnudaga klukkan 16.
Njótið vel
Hemmi Gunn
– og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur