Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 76

Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 76
17. mars 2012 LAUGARDAGUR40 F lestir knattspyrnu- menn verða fyrir meiðslum inni á vell- inum, í leikjum eða á æfingum, en það er ekki algilt. Reglulega verða þeir fyrir hnjaski við hvers- dagslegri og gjarnan neyðarlegri aðstæður og þurfa að taka sér frí frá spilamennsku meðan þeir jafna sig, leka slíkar fréttir óhjá- kvæmilega út til fjölmiðla. Einn þeirra er Darren Fletcher, leikmaður Manchester United, sem er einkar óheppinn þegar kemur að salernismálum eins og sýndi sig þegar hann hugðist nota eitt slíkt í búningsherberginu eftir leik gegn Lyon í Meistaradeildinni árið 2008. Klósetthurðin losnaði af hjörunum og féll á hausinn á Fletc- her, sem steinrotaðist og þurfti að láta sauma nokkur spor í ennið. Leroy Lita, leikmaður Swan- sea, tognaði í læri þegar hann vaknaði og teygði úr sér í rúminu einn morguninn og gat ekki leik- ið knattspyrnu í nokkrar vikur á eftir. Þá tókst landsliðsmannin- um Rio Ferdinand að skaða hásin heima í stofu hjá sér, þar sem hann hafði fótinn í sömu stöðu meðan yfir stóð nokkurra klukku- stunda löng seta við PlayStation. Það getur líka reynst hættulegt að fagna um of, eins og Arsenal- maðurinn Steve Morrow komst að þegar hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleik Deildabikarsins árið 1993. Eftir leikinn lyfti fyrirliðinn Tony Adams félaga sínum upp á herðar sér í fögnuði en missti hann á jörðina. Morrow braut við- bein, var ófær um að veita med- alíunni viðtöku og spilaði ekki það sem eftir lifði tímabilsins. Ein allra furðulegustu fót- boltameiðslin hljóta þó að til- heyra Darius Vassell, fyrrum leikmanni Aston Villa, sem fékk blæðingu undir nöglina á ann- arri stórutánni. Vassell náði sér í rafmagnsbor, boraði gat á nöglina til þess að létta á þrýst- ingnum, fékk blóðeitrun og þurfti að láta fjarlægja nöglina. Furðulegustu fótboltameiðslin Ever Banega, leikmaður Valencia á Spáni, meiddist þegar bíllinn hans rann yfir fótinn á honum á bensínstöð í síðasta mánuði. Skringileg íþróttameiðsl eru býsna algeng og þá sérstaklega hjá markvörðum, eins og Kjartan Guðmundsson komst að. SKAMMVINNUR FÖGNUÐUR Steve Morrow skoraði sigurmark Arsenal í úrslitum deildarbikarsins árið 1993. Í fagnaðarlátunum að leik loknum missti fyrirliðinn Tony Adams hann og Morrow braut viðbein. NORDICPHOTOS/GETTY Argentínumaðurinn Ever Banega, leikmaður Valencia, leikur ekki knatt- spyrnu næstu fimm mánuðina hið minnsta eftir ökklameiðsli sem hann varð fyrir í lok febrúar. Banega var að dæla bensíni á bílinn sinn en gleymdi að setja í handbremsu svo bíllinn rann aftur á bak og yfir fót leikmannsins. Kólumbíumaðurinn Faustino Asprilla, sem var kallaður Kolkrabbinn og lék meðal annars með Newcastle, missti af úrslitaleiknum í Evrópukeppni bikarhafa árið 1993, þegar hann lék með Parma á Ítalíu, vegna meiðsla. Þá lenti leikmaðurinn í árekstri við strætisvagn, fór út úr bílnum, sparkaði í gegnum hurðina á strætisvagninum og skarst illa. Alls lenti Asprilla sex sinnum í árekstri fyrsta mánuðinn sem hann lék á Ítalíu. HÖFÐU EKKI HEMIL Á SÉR Börn eru yndisleg, en geta líka reynst atvinnuknattspyrnumönn- um skeinuhætt. Það ætti enski harðhausinn David Batty að vita, en bata hans eftir ökklameiðsli var seinkað um nokkra mánuði þegar þriggja ára dóttir hans hjólaði yfir fótinn á pabba sínum á þríhjólinu sínu. Þá hafa bæði Fabio Aurelio hjá Liverpool og fyrrum Chelsea- maðurinn Mario Melchiot, sem leikur nú með liðinu Umm Salal í Quatar, meiðst alvarlega og misst út nokkra mánuði af spila- mennsku eftir að hafa leikið sér í fótbolta við börnin sín úti í garði. BLESSAÐ BARNAÓLÁN Norðmaðurinn Svein Gröndalen (til vinstri á mynd) komst á spjöld sögunnar þegar hann bjó sig undir leik í undankeppni HM með því að hlaupa úti í skógi á áttunda áratugnum. Gröndalen hljóp á elg og slasaðist svo alvarlega að hann var ófær um að spila leikinn. Enn verr fór fyrir Chic Broadie, markverði Brentford, árið 1970 þegar hundur hljóp inn á völlinn í leik gegn Colchester og felldi markmanninn sem braut hnéskelina. Meiðslin bundu enda á feril Broadies. Þá reyndist hundur írska landsliðsmannsins Liam Lawrence honum óþægur ljár í þúfu árið 2008. Lawrence ætlaði á salernið um miðja nótt, hrasaði um hundinn og niður stiga og var lengi frá keppni. HUNDAÓHEPPNI Knattspyrnustjórinn Roy Hodgson sagði Finnann Jari Litmanen óheppn- asta knattspyrnumann sem hann hefði kynnst þegar þeir störfuðu saman hjá Fulham, en á löngum ferli glímdi sá síðarnefndi við endalaus meiðsli, hjartavandamál og sýkingar í eyrum meðal annars. Þegar Litmanen var einu sinni sem oftar á góðum batavegi, og átti að leika varaliðsleik með Fulham daginn eftir, þrumaði varamarkmaður liðsins boltanum í hnakka Finn- ans af þvílíkum krafti að Litmanen steinrotaðist, fékk heilahristing og náði því aldrei að spila leik með félaginu. Finn- inn fljúgandi hafði áður meðal annars dottið niður stiga og slasað sig. Þegar hann lék með Malmö í Svíþjóð opnaði þjálfari liðsins gosdós með neftóbaksdós, en tappinn flaug í augað á Litmanen, sem missti af landsleik með Finnum í kjölfarið. FINNINN ÓHEPPNI Markmenn eru sérkapítuli út af fyrir sig hvað skringileg meiðsli varðar. Líklega tilheyra hin merkilegustu sjálfum Alex Stepney, fyrrum leik- manni Manchester United og enska landsliðsins, sem öskraði svo mikið á liðsfélaga sína í leik árið 1975 að hann fór úr kjálkalið og var borinn af velli. Dave Beasant, sem lék með Wimbledon og fleiri liðum, missti krukku af salatsósu í eldhúsinu hjá sér og reyndi að grípa hana með fætinum með þeim afleiðingum að hann missti úr nokkra leiki. Af svipuðum toga voru meiðsli Santiago Canizares, markmanns Spánar, sem missti af HM 2002 eftir að hann missti rakspíraglas á löppina á sér og sleit í sundur sin. Þeir David James og David Seaman eiga fleira sameiginlegt en fornafnið og feril með enska landsliðinu því þeir meiddust báðir við að teygja sig eftir fjarstýringunni fyrir framan sjónvarpið. Kollegi þeirra hjá enska landsliðinu, Richard Wright, var að hita upp í víta- teignum fyrir leik með Everton þegar hann datt um skilti sem á stóð „Ekki hita upp í víta- teignum“. Hann sneri sig á ökkla, en þremur árum áður hafði Wright meiðst illa þegar hann datt niður af háa- loftinu heima hjá sér. Þá er ótalinn Daninn Michael Stensgaard hjá Liverpool, sem þurfti að leggja skóna á hilluna eftir að hann meiddist á öxl við að brjóta saman straubretti. MARKVERÐIR MARKVERÐIR Þegar Darren Bent lék með Charlton skar hann sig svo illa í fingur við samlokugerð að hann gat ekki leikið með liði sínu næstu sex vikurnar á eftir. Skotinn Kirk Broadfoot, sem skoraði gegn Íslandi á Laugardals- vellinum árið 2008, hefur líka átt í vandræðum með matargerð. Árið 2009 sauð Glasgow Rangers- maðurinn tvö egg í örbylgjuofni á heimili sínu og þegar hann bjóst til að snæða herlegheitin sprakk annað eggið og brennandi heitur vökvinn sprautaðist framan í leik- manninn. Breska pressan hefur sjaldan átt jafnauðvelt með að búa til hnyttnar fyrirsagnir. MATUR ER KNATTSPYRNUMANNSINS MEGIN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.