Fréttablaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 88
17. mars 2012 LAUGARDAGUR52
Aldur: 8 ára. Verð 9 ára í maí.
Í hvaða skóla ertu: Háteigsskóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu: Nautinu.
Áttu happatölu? Já, 4.
Helstu áhugamál/hvað gerirðu í
frístundum þínum? Spila á píanó,
æfa handbolta og leika mér við vini
mína.
Eftirlætissjónvarpsþáttur: Teiknum
dýrin.
Besti matur? Pasta og tortillur.
Eftirlætisdrykkur? Vatn.
Hvaða námsgrein er í eftirlæti? Samfélags-
fræði, þar hef ég lært um bíla og himingeiminn.
Áttu gæludýr – ef svo er, hvernig dýr og
hvað heitir það? Nei.
Skemmtilegasti dagurinn og af
hverju? Öskudagur, þá má maður slá
köttinn úr tunnunni og fara í búninga.
Eftirlætistónlistarmaður/hljóm-
sveit? Páll Óskar.
Uppáhaldslitur? Blár og gulur.
Hvað gerðirðu í sumar? Ég keyrði
kringum allt landið. Í haust fór ég til
Parísar og Madagaskar og hitti fullt af
lemúrum.
Skemmtilegasta bók sem þú hefur lesið?
Fimm-bækurnar, Ævintýra-bækurnar og Harry
Potter.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðin/n
stór? Rithöfundur eða leikari.
krakkar@frettabladid.is
52
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Mamma: Af hverju setur þú
bangsann þinn inn í frysti?
Halli: Af því mig langar í
ísbjörn.
Mamma, litli bróðir er með
ofsalega viðkvæm eyru!
Af hverju segirðu það?
Hann fer að hágráta í hvert
sinn sem ég toga í þau.
Ari kallar til mömmu sinnar:
Mamma það er maður hérna
frammi að safna fyrir elli-
heimili. Á ég að gefa honum
ömmu?
Hvernig brenndi drekinn sig
á hendinni?
Hann hélt fyrir munninn
þegar hann geispaði.
Hvernig veistu að fíll hefur
verið í ísskápnum?
Það eru fótspor í smjörinu.
Ég heiti Katrín Gunnars dóttir,
ég er 25 ára, vinn sjálfstætt
sem samtímadansari og dans-
höfundur. Ég kenni dans í Dans-
listarskóla JSB og tek þátt í
að skipuleggja opnun Barna-
menningar hátíðar í Reykja-
vík sem verður haldin 17. til
22. apríl. Á opnun hátíðarinnar
sem haldin verður í Hörpu munu
allir nemendur í 4. bekk grunn-
skóla Reykjavíkur dansa saman.
Hvað varstu gömul þegar þú
byrjaðir að læra að dansa? Ég
byrjaði níu ára, fyrst aðeins í
ballett en fljótlega skipti ég yfir
í freestyle-dans og svo nútíma-
dans.
Varstu þá búin að ákveða að
verða dansari þegar þú yrðir
stór? Nei, alls ekki, þá ætlaði ég
að verða vísindamaður.
Þarf maður ekki að vera svaka-
lega duglegur að æfa sig? Jú,
svo sannarlega, æfingin skapar
meistarann.
Hvað er skemmtilegast við að
vera dansari? Að fá að vinna
með skemmtilegu og skapandi
fólki og njóta þess að dansa og
búa til list.
En leiðinlegast? Það er stundum
erfitt að vera þolinmóður þegar
eitthvað tekst ekki í fyrstu til-
raun.
Getur maður unnið bara við það
að dansa? Já, það er alveg hægt
en maður þarf að skapa sér
vinnu sjálfur og maður verður
ekki ríkur!
Hefurðu dansað í mörgum
sýningum? Já, bæði dans-
að og samið dans í alls konar
sýningar, ég er til dæmis að
semja atriði fyrir Nemenda-
sýningu JSB í Borgarleikhúsinu
19. og 20. mars.
Hvað leggurðu mesta áherslu
á við krakkana sem þú ert að
kenna? Það skiptir alltaf mestu
máli að lifa sig inn í dansinn og
hafa gaman af.
Hver er skemmtilegasta
sýningin sem þú hefur tekið
þátt í? Að fá að dansa hangandi
í 45 metra hæð yfir Austurvelli í
fyrra, það var ótrúleg tilfinning!
Ertu fræg? Það veit ég ekki. Ég
hef verið í sjónvarpinu og sýnt
í helstu leikhúsum borgarinnar,
er maður þá frægur? - fsb
SKIPTIR MESTU AÐ LIFA
SIG INN Í DANSINN
Mörg börn dreymir um að verða dansarar þegar þau verða stór. En er hægt að
vera bara dansari? Já, það er hægt. Katrín Gunnarsdóttir lifir af því að dansa og
kenna dans og sagði Krakkasíðunni frá sjálfri sér og vinnunni.
Katrín Gunnarsdóttir dansari segir stundum erfitt að vera þolinmóður í
dansæfingunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KRAKKSKAK.IS er ný heimasíða þar sem börn læra að tefla og þjálfa sig í skák-
listinni. Þar horfa þau á kennslumyndbönd og geta teflt við önnur börn á netinu. Auk
þessa er fjölbreytt efni á vefnum svo sem skákþrautir og litabækur með taflmönnum.
Elín Katla Henrysdóttir
Kjarrivaxnar útsýnislóðir í
Hvalfirði
Til sölu eða leigu stórar, fall-
egar lóðir með frábæru útsýni
yfir Hval örð. Lóðirnar eru í
skjólgóðri, kjarrivaxinni hlíð
sem snýr mót suðri í landi
Kalastaða, 55 km frá Reykjavík.
Tilbúnar l a endingar.
Fjölbrey afþreying í nágren-