Fréttablaðið - 09.05.2012, Síða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Markaðurinn
9. maí 2012
108. tölublað 12. árgangur
GISTINÓTTUM FJÖLGAR Samkvæmt Hagstofu Íslands fjölgaði gistinóttum
í mars milli ára um 38%. Þær voru um 134.000 í
ár en voru 97.300 í fyrra. Mestu munar um mikla
fjölgun erlendra ferðamanna en gistinóttum
þeirra fjölgar um 45% milli ára.
HÉR ER ALLT STÓRT Magnús Ingi með girnilegan disk með stórum hamborgara fylltan með cheddar osti ásamt heimagerðum
frönskum og laukhringjum.
MYND/VILHELM
H amborgarastað-urinn Texasborg-arar opnaði nýver-ið að Grandagarði 11. Þema hans líkir eftir klass-ískri Amerískri matstofumenn-ingu þar sem flest er heimagert úr 100% gæðahráefni. „Talið er að hamborgarinn eins og við þekkjum hann í dag hafi fyrst sést á matseðli á kaffihúsi í Texas á síðari hluta 19. aldar svo þaðan kemur nafnið á staðnum og ham-borgurunum,“ segir Magnús Ingi Magnússon eigandi Texasborg-ara. Á matseðli er meðal annars hægt að panta girnilega nýjungsem eru ostafyllti
arinn hjá okkur er fylltur með cheddar. Dallas-borgarinn er fylltur með gráðosti og El Paso-borgarinn með camembert.“ Heimagerðar franskar, bæði venjulegar og sætar fylgja með öllum réttum ásamt laukhringj-um og leggur Magnús mikið upp úr því að hafa skammtana vel úti-látna. „Þetta er eins og í Texas, þar sem allt er stórt. Kjötið fær að njóta sín og bragðið af því kemst vel í gegn. Hamborgar-arnir er stórir eða 140 grömm og grillaðir á alvöru grilli. Sósurnar tókum við okkur góðan tím íþró
Ostafylltir Hamborgarar
TEXASBORGARAR KYNNA Veitingastaðurinn Texasborgarar við Grandagarð
býður upp á stóra ostafyllta borgara með heimagerðum frönskum. „Hér er allt
stórt eins og í Texas,“ segir eigandi staðarins.
GIRNILEGT OG HEIMAGERTFRÖNSKURNAR, HAMBORGARARNIR OG SÓSURNAR ERU UNNAR FRÁ GRUNNI HJÁ TEXASBORGURUM.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerískgæðavara
Amerískgæðavara
Vertu vinurGóð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is
Hugsaðu vel um fæturna Í hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig?Teg: „BOSTON“ Fótlaga skór úr leðri og 100% innleggi úr náttúru-korki. Stærðir: 36 - 48. Verð: 18.500.-
Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.Laugardag 10-14.
www.visir.is Sími: 512 5000 |
Miðvikudagur 9. maí 2012 | 9. tölublað | 8. árgangur
Vodafone á markað
➜ Stefnt er að skráningu
Vodafone í september
eða október
➜ Kemur til greina að fá
kjölfestufjárfesti til að
kaupa stóran hlut
➜ Fyrsta nýskráning á
vegum Framtakssjóðsins
frá stofnun hans
Tíu óskuldbindandi tilboð bárust
í Tryggingamiðstöðina
Tíu óskuldbindandi tilboð bárust í 99,94 prósenta eign-arhlut Stoða, áður FL Group, í Tryggingamiðstöðinni (TM) áður en tilboðsfrestur rann út síðastliðinn föstu-dag, að sögn Júlíusar Þorfinnssonar, framkvæmda-stjóra Stoða. Hann segir að verið sé að fara yfir tilboð-in og að nokkrir dagar verði teknir í það. „Næsti gluggi er 8. júní og þá á að skila inn skuldbindandi tilboðum.“ Á meðal þeirra sem sýnt hafa áhuga á að kaupa TM eru erlendir fagaðilar í tryggingarekstri, en talið er að verðmiðinn sé á bilinu 13-15 milljarðar króna. Auk þess herma heimildir Markaðarins að fyrirtækjaráðgjöf ís-lenskra banka hafi leitt vinnu um myndun hópa sem lögðu fram tilboð. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast söluna auk þess sem bankinn hefur þegar sölu-tryggt ferlið.
TM á stóra hluti í félögum í óskyldum rekstri. Þar á meðal 5,4 prósenta hlut í HB Granda og MP banka, tæplega tíu prósenta hlut í Samherja og 2,7 prósenta beinan eignarhlut í Högum.
- ÞSJ
…við
prentum!
Æðstu stjórnendur Roskilde bank
ekki sloppnir enn
Þrátt fyrir að saksóknari efnahagsbrota í Danmörku muni ekki sækja stjórnendur og endurskoðendur Roskilde Bank til saka, geta þeir hluthafar sem telja sig hlunnfarna sótt einkamál gegn þeim.
Paratabs® SÁÁ BLAÐIÐ
FYLGIR Í DAG
Greta flýgur út
20 manna Eurovision-hópur-
inn heldur utan á laugar-
daginn og verður í Aserbaíd-
sjan fram yfir keppni.
popp 30
Er íslenskan lykillinn?
Aðlögun innflytjenda að
íslensku samfélagi tekin til
skoðunar.
tímamót 18
Er að deyja úr tilhlökkun
Sigrún Eðvaldsdóttir er einleikari
á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í hinum fræga fiðlukonsert
númer 1 eftir Sjostakovitsj.
menning 22
VIÐSKIPTI Starfsmenn Lands-
banka Íslands munu eignast allt
að tveggja prósenta hlut í honum
þegar lokauppgjör fer fram á milli
bankans og þrotabús gamla Lands-
bankans í lok þessa árs. Hluturinn
á að mynda stofn fyrir nýtt kaup-
aukakerfi innan bankans. Miðað
við að eigið fé Landsbankans var
rúmlega 200 milljarðar króna um
síðustu áramót er tveggja prósenta
hlutur í honum um fjögurra millj-
arða króna virði.
Þegar uppgjör fór fram milli
gamla og nýja Landsbankans í
desember 2009 hélt þrotabú þess
gamla eftir 18,7 prósenta hlut í
nýja bankanum. Í staðinn gaf sá
nýi út skilyrt skuldabréf sem á
að gera upp í árslok 2012. Virði
þess getur mest orðið 92 millj-
arðar króna, en það ákvarðast
af frammistöðu ákveðinna eigna
sem færðar voru inn í nýja bank-
ann á mjög lágu verði. Verði það
raunin mun nýi Landsbankinn
greiða þrotabúi þess gamla þá
upphæð sem í staðinn lætur frá
sér eignarhlut sinn í nýja bankan-
um. 16,7 prósent hans myndi fara
til íslenska ríkisins en tvö prósent
eiga að renna í að mynda stofn
nýs kaupaukakerfis starfsmanna
bankans. Í svari Landsbankans við
fyrirspurn Markaðarins um málið
kom fram að það væri „umbunin
fyrir árangurinn til starfsmanna“.
Þar sagði enn fremur: „það hefur
engin ákvörðun verið tekin um
eitt né neitt í þessum efnum, eng-
inn samningur verið kláraður og
ekkert skipulag fastsett. Þetta var
upphaflega hugsað til langs tíma
og þá þannig að starfsmenn fengju
hlutabréf sem þeir gætu ekki selt
fyrr en eftir einhver ár. Það er
bankans að útfæra þetta fyrir-
komulag og það er í vinnslu.“
Í árslok 2010 var virði skilyrta
skuldabréfsins bókfært á 26,5
milljarða króna í bókum Lands-
bankans. Um síðustu áramót
hafði virði þess stóraukist og var
nú bókfært á 60,8 milljarða króna.
Miðað við þá stöðu er sá hlutur
sem fer í að mynda stofn kaup-
aukakerfis starfsmanna Lands-
bankans þegar orðinn 1,32 pró-
sent, og um 2,6 milljarða króna
virði, miðað við eiginfjárstöðu
bankans um síðustu áramót. For-
svarsmenn þrotabús gamla bank-
ans telja virði þess þegar vera 92
milljarða króna og hafa leitað eftir
því að gera skuldabréfið upp fyrr
en upphaflega stóð til.
- þsj / sjá Markaðinn
Tvö prósent í bankanum
fara í nýtt kaupaukakerfi
Allt að tveggja prósenta hlutur í Landsbankanum mun fara í að mynda stofn að nýju kaupaukakerfi fyrir
starfsmenn hans. Miðað við eiginfjárstöðu bankans er hluturinn um fjögurra milljarða króna virði.
HÆGVIÐRI Í dag verður hæg
breytileg átt um allt land. Víða
nokkuð bjart einkum um N-vert
landið. Skúrir V- og S- til síðdegis.
Hiti 0 til 8 stig yfir daginn.
VEÐUR 4
4
6
3
2
5
prósenta
hlutur í
Landsbank-
anum rennur til ríkisins, en
tvö prósent fara í kaupauka-
kerfi starfsmanna.
16,7%
VIÐSKIPTI Ákveðið hefur verið
að hefja undirbúning að skrán-
ingu Vodafone á markað í sept-
ember eða október næstkomandi.
Þetta staðfestir
Þór Hauksson,
stjórnarformaður
Vodafone, í viðtali
við Markaðinn,
sem fylgir Frétta-
blaðinu í dag.
Óskað verður
eftir því að hlutir
í félaginu verði
teknir til við-
skipta að undan-
gengnu útboði sem beina á að
fagfjárfestum og almennum fjár-
festum. Þór segir að ákvörðun um
skráningu hafi verið tekin á síð-
asta stjórnarfundi Vodafone. Hann
segir vel koma til greina að selja
fyrst hlut í félaginu til kjölfestu-
fjárfestis. - þsj / sjá miðju Markaðarins
Selja kannski kjölfestuhlut:
Vodafone fer á
markað í haust
ÞÓR HAUKSSON
FÓLK „Geðshræringin var svo mikil að sjá allt
þetta fólk að ég brast bara í grát,“ segir Þórdís
Hreggviðsdóttir sem í gær hlaut viðurkenningu
fyrir störf sín á Hrafnistu síðustu 45 árin.
Þórdís hóf störf á Hrafnistu þegar hún átján
ára gömul missti vinnuna í mjólkurbúð sem lögð
var niður. „Mér var bent á að sækja um á Hrafn-
istu og ég gerði það, var ráðin á staðnum og mætti
daginn eftir,“ segir Þórdís sem ekki leist nema í
meðallagi vel á blikuna til að byrja með. „Fyrsta
daginn var ég sett inn á stofu með fjórum köllum
sem ég átti að þrífa og raka. Þá féllust mér dálítið
hendur.“
Fyrsti þrjú árin starfaði Þórdís við ummönnun
en síðan við framreiðslu í borðsal. Hún var alger-
lega grunlaus þegar hún var við störf í gær og var
veitt viðurkenning fyrir ævistarfið.
„Enginn kjaftaði af sér allan daginn svo ég
hafði ekki hugmynd um þetta,“ segir Þórdís sem
auk þess að fá fallegan blómvönd fékk gjafabréf
upp á þriggja vikna sólarlandaferð til Benidorm.
Þótt Þórdís hafi starfað á Hrafnistu í 45 ár er
hún aðeins 63 ára. „Maður heldur áfram á meðan
heilsan leyfir og á meðan þeir vilja hafa mig,“
segir hún.
Aðspurð kveðst Þórdís ekki viss um hvort hún
sjálf flytji inn á Hrafnistu í fyllingu tímans.
„Kannski, ef ég fæ svítu þegar ég hætti!“ - gar
Táraðist við óvænta viðurkenningarathöfn eftir 45 ára óslitið starf á Hrafnistu:
Flytur á Hrafnistu ef hún fær svítu
GLEÐI Á HRAFNISTU Þórdís Hreggviðsdóttir var algerlega grunlaus um hátíðlega athöfn henni til heiðurs í gær eftir 45 ára starf
hjá Hrafnistu. Þórdísi voru færð blóm og þriggja vikna ferð til Benidorm. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fótboltinn númer eitt
Ingó Veðurguð er búinn
að setja fótboltann í fyrsta
sæti en tónlistina í annað.
sport 26