Fréttablaðið - 09.05.2012, Qupperneq 17
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 9. maí 2012 | 9. tölublað | 8. árgangur
Vodafone á markað
➜ Stefnt er að skráningu
Vodafone í september
eða október
➜ Kemur til greina að fá
kjölfestufjárfesti til að
kaupa stóran hlut
➜ Fyrsta nýskráning á
vegum Framtakssjóðsins
frá stofnun hans
Tíu óskuldbindandi tilboð bárust
í Tryggingamiðstöðina
Tíu óskuldbindandi tilboð bárust í 99,94 prósenta eign-
arhlut Stoða, áður FL Group, í Tryggingamiðstöðinni
(TM) áður en tilboðsfrestur rann út síðastliðinn föstu-
dag, að sögn Júlíusar Þorfinnssonar, framkvæmda-
stjóra Stoða. Hann segir að verið sé að fara yfir tilboð-
in og að nokkrir dagar verði teknir í það. „Næsti gluggi
er 8. júní og þá á að skila inn skuldbindandi tilboðum.“
Á meðal þeirra sem sýnt hafa áhuga á að kaupa TM
eru erlendir fagaðilar í tryggingarekstri, en talið er að
verðmiðinn sé á bilinu 13-15 milljarðar króna. Auk þess
herma heimildir Markaðarins að fyrirtækjaráðgjöf ís-
lenskra banka hafi leitt vinnu um myndun hópa sem
lögðu fram tilboð. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans
annast söluna auk þess sem bankinn hefur þegar sölu-
tryggt ferlið.
TM á stóra hluti í félögum í óskyldum rekstri. Þar
á meðal 5,4 prósenta hlut í HB Granda og MP banka,
tæplega tíu prósenta hlut í Samherja og 2,7 prósenta
beinan eignarhlut í Högum.
- ÞSJ
…við
prentum!
Æðstu stjórnendur Roskilde bank
ekki sloppnir enn
Þrátt fyrir að saksóknari efnahagsbrota í Danmörku muni
ekki sækja stjórnendur og endurskoðendur Roskilde Bank
til saka, geta þeir hluthafar sem telja sig hlunnfarna sótt
einkamál gegn þeim.
Niðurstaða úttektar saksóknara á gjaldþroti bankans
árið 2008, sem skilað var í síðustu viku, var að þrátt fyrir
að ýmislegt megi athuga við gjörninga sem tengjast bank-
anum sé ekki ástæða til saksókna.
Hluthafar voru margir reiðir vegna niðurstöðunnar,
en stjórnendur voru taldir hafa fegrað stöðu bankans og
breitt yfir erfiðleika í aðdraganda hrunsins.
„Það er langur vegur milli þess annars vegar að gagn-
rýna Roskilde Bank fyrir afleitan rekstur og mögulegar
skaðabótakröfur í einkarétti og hins vegar þess að sanna
að stjórnendur og endurskoðendur hafi gerst sekir um
lögbrot,“ sagði Jens Madsen ríkissaksóknari í fréttatil-
kynningu.
Danski seðlabankinn tók yfir Roskilde Bank sumarið
2008, eftir að ljóst varð að bankinn uppfyllti ekki kröfur
um eiginfjárhlutfall.
Úttekt yfirvalda hefur staðið frá nóvember 2009.
- ÞSJ