Fréttablaðið - 09.05.2012, Qupperneq 35
07maí 2012
10
Á
ST
Æ
ÐU
R F
YR
IR Þ
VÍ AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ KAUPA ÁLFIN
N5
„Ég þekki
marga sem
eiga við
alkóhólisma
að stríða og
þar á meðal
er ég sjálfur.
Ég geri mér
í hugarlund
að það sé rík
þörf á þeim
stuðningi sem fæst í gegnum
söluna á álfinum því að ég veit
að það skortir peninga inn í
starfsemi SÁÁ. Við verðum því
að treysta á almenning enda
örugglega allir sem þekkja ein-
hvern sem þarf á þessari hjálp
að halda. Þetta fjármagn er til
styrktar góðu málefni.“
Óli Stefán Flóventsson,
knattspyrnuþjálfari og ne-
tagerðarmaður á Hornafirði
„Ég tel að
það sem
SÁÁ er að
gera sé mjög
mikilvægt.
Þettaeru
samtök
sem hjálpa
mörgum til
betra lífs.
Þau hjálpa
mörgum að
takast á við líf sitt og bresti
þannig að mér finnst það skipta
miklu máli. Full þörf er á því að
samtökin lifi góðu lífi og geti
unnið að þeim góðu málum sem
þau gera. Með því að kaupa
álfinn vil ég stuðla að þessu.“
Séra Agnes M. Sigurðardóttir,
verðandi biskup Íslands
„SÁÁ vinnur
gott starf í
þágu þess
fólks sem
glímir við
áfengis-
vandann og
því kaupi ég
álfinn.Ég tel
að með fag-
legri með-
ferð á vegum
SÁÁ aukist líkur á að þau okkar
sem glíma við áfengisvandann
geti lifað sem heilbrigðustu og
innihaldsríkustu lífi sem hefur
jákvæð áhrif á nánasta umhverfi
okkar, fjölskyldu og vini.“
Jóhanna Magnúsdóttir,
starfsmaður AD Travel
„Af því ég
vil styðja
við þessa
starfsemi
sem er í þágu
þjóðarinnar
allrar. Þetta
er afar mikil-
vægt starf
til að koma
fólki aftur
á fæturna
og hjálpa því að takast á við sín
vandamál. Flestar stofnanir eru
fjársvelta og þurfa að reiða sig á
aukafjármagn frá almenningi.
Sóley Kristjánsdóttir,
vörumerkjastjóri
hjá Ölgerðinni
AF HVERJU
KAUPIR ÞÚ
ÁLFINN?
Álfurinn er til sölu í öllum bílum Hreyfils:
Hreyfill kemur Álfinum til þín
Í ár munu flestir leigubílstjórar
Hreyfils bjóða farþegum sínum Álf-
inn til kaups. Með þessu styðja bíl-
stjórarnir við uppbyggingu barna-
og fjölskyldudeildar SÁÁ.
„Dygg aðstoð Hreyfils og bíl-
stjóranna er okkur mjög mikilvæg
og við erum þeim þakklát fyrir
dugnaðinn og hlýjan hug,” segir
Gunnar Smári Egilsson, formað-
ur SÁÁ.
Að sögn Gunnars er aðalvand-
inn við álfasöluna að ná til fólks.
„Vandinn er ekki að það skorti upp á
vilja fólks til að styðja SÁÁ. Vandinn
er að ná til fólks svo það geti sýnt
þennan vilja sinn í verki. Þátttaka
bílstjóranna á Hreyfli við söluna er
því mikilvæg og mikilsverð,” segir
Gunnar.
„Glæsilegt starf SÁÁ á undan-
förnum áratugum hefur ekki farið
framhjá neinum. Það hefur verið
dregið áfram af öflugum stuðningi
almennings og það er ánægjulegt
að við hjá Hreyfli getum orðið til
þess að þessi samvinna almenn-
ings og SÁÁ haldi áfram,” segir
Sæmundur Kr. Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Hreyfils.
Álfurinn á N1:
Kaupum álf
Álfasölufólk SÁÁ verður úti um allan bæ,
allt land og alla borg næstu daga og biðjum
við fólk að taka vel á móti sölufólki. Einnig
verður hægt að kaupa álfa á bensínstöðv-
um N1 og víðar. Við hjá SÁÁ erum þakklát
öllum þann stuðning sem þau sýna sam-
tökunum en hægt er að gerast félagi í SÁÁ í
gegnum heimasíðu samtakana, www.saa.is.
Iceland Express og SÁÁ hafa gert sam-
starfssamnig um átak til stuðnings
fjölskylda ungra foreldra sem eru að
koma úr áfengis- og vímuefnameð-
ferð. Starfsfólk Iceland Express mun
selja sérstakan álf, Ferðaálfinn, í öll-
um vélum flugfélagsins í allt sumar.
Andvirði hans mun renna til barna-
og fjölskyldudeildar SÁÁ, þar sem
það nýtist til að byggja upp stuðning-
kerfi fyrir fjölskyldur ungra áfengis- og
vímuefnasjúklinga.
„Þegar við leituðum að verðugu
verkefni til að styðja ákváðum við fljót-
lega að einbeita okkur að fjölskyldu-
málum,” segir Alfa Lára Guðmunds-
dóttir, markaðsstjóri Iceland Express.
„Og þegar við kynntum okkur vanda
fjölskyldna ungra áfengis- og vímu-
efnasjúklinga sáum við strax að það
væri verðugt verkefni.”
Fjölskylduvænt flugfélag
Alfa Lára segir Iceland Express sam-
heldinn vinnustað og því vilji starfs-
fólkið taka að sér söfnunarverkefni
þannig að sem flestir starfsmanna
komi að því; vinni að því eins og ein
stór fjölskylda. Iceland Express sé
líka fjölskylduvænt flugfélag, enda er
stærsti hópur viðskiptavinanna á for-
eldraaldrinum. Það fari því vel á því að
stóra átak félagsins á þessu ári snúi að
því að styrkja fjölskyldur sem þurfa að-
stoð.
„Okkur langar til að leggja þessum
fjölskyldum lið til að hjálpa foreldr-
unum að ná bata en ekki síður svo að
börnin líði ekki að óþörfu vegna veik-
inda foreldranna,” segir Alfa Lára.
Með samkomulaginu mun SÁÁ
byggja upp stuðningskerfi fyrir unga
foreldra sem eru að koma úr meðferð.
Það mun bæði felast í uppeldisfræðslu
og -þjálfun og uppbyggingu stuðn-
ingsforeldrakerfis til að auðvelda ung-
um einstæðum foreldrum til að sinna
bata sínum.
„Þar sem mikil fjölskyldulægni er
í áfengis- og vímuefnasýki eru marg-
ir þeirra ungu foreldra sem koma úr
meðferð einnig börn alkóhólista,” seg-
ir Gunnar Smári Egilsson, formaður
SÁÁ. „Þeir geta því ekki alltaf hallað
sér að reynslunni eða sótt til eigin upp-
vaxtar heldur þurfa þeir ef til vill enn
meiri örvun og hvatningu en aðrir til
að sinna velforeldraskyldum sínum.”
Stuðningurinn mikilvægur
Gunnar Smári segir einnig mikilvægt
að ungir foreldrar fái svigrúm til að
sinna bata sínum frá alvarlegum og
lífshættulegum sjúkdómi. Sumir for-
eldrar fái hjálp til þess frá sínum fjöl-
skyldum en aðrir búi ekki svo vel. SÁÁ
vilji því byggja upp stuðningskerfi fyrir
þessa foreldra svo þeir geti fengið að-
stoð við uppeldið.
„Þetta samstarf SÁÁ við Iceland
Express er yfirgripsmesti samstarfs-
samningur sem samtökin hafa við
fyrirtæki og við berum miklar vonirtil
hans,” segir Gunnar Smári. „Stuðn-
ingur almennings og fyrirtækja hefur
alltaf verið baráttu áfengis- og vímu-
efnasjúklinga mikilvægur. Án þessa
stuðnings myndi okkur ekki takast
að byggja upp ný úrræði og mæta
þörfum sjúklinganna. Við vonum að
hugarþel og röskleiki starfsfólks Ice-
land Express verði öðrum til fyrir-
myndar.”
ICELAND EXPRESS og SÁÁ hafa gert með sér samstarfssamning sem er yfirgripsmesti samstarfssamningur
m samtökin hafa við fyrirtæki, að sögn se Gunnars Smára Egilsonar, formanns SÁÁ. Iceland Express styður ungar
skyldur, unga foreldra sem eru að koma úr áfengis- og vímuefnameðferð. fjöl
Ferðaálfurinn seldur í vélum
Iceland Express í sumar
FERÐAÁLFUR SÁÁ Flugfreyjur og –þjónar Iceland Express munu selja Ferðaálf SÁÁ í allt sumar til stuðnings
ungum fjölskyldum sem eiga í vanda vegna áfengis- og vímuefnasýki. MYND: GUNNAR GUNNARSSON
HREYFILL „Dygg aðstoð Hreyfils og bílstjóranna
er okkur mjög mikilvæg og við erum þeim þakklát
fyrir dugnaðinn og hlýjan hug.”