Fréttablaðið - 09.05.2012, Side 43
15maí 2012
Líkamsræktin Bjarg ehf
Íslensk erfðagreining
Skinney - Þinganes ehf
Bókhaldsstofan
Kirkjugarðar Reykjavíkur
F.Í.B.
Flúðafiskur
B.J. Vinnuvélar ehf
Kristbjörg Elí ehf
Topp Útlit ehf
Ísaga ehf
Spölur ehf
BOAT BUILDER
www.seigla.is
„Alkóhólismi er í öllum fjölskyld-
um,” segir séra Solveig Lára, prestur
á Mörðuvöllum, en hún þekkir alkó-
hólisma vel, bæði úr eigin fjölskyldu
og í starfi sínu sem sóknarprestur.
Vandi fólks er af mörgum toga.
Þegar fólk leitar til Solveigar út af
hjónabandserfiðleikum þá segir hún
að oft sé ástæða til að skoða barnæsk-
una, ekki síst ef fólk eigi erfitt með að
tjá sig eða sýna tilfinningar.
„Oft kemur í ljós þegar farið er að
skoða barnæskuna að fólk hefur búið
við alkóhólisma alla bernsku sína og
það mótar samskiptin þegar kemur
fram á fullorðinsár. Óöryggi og ótti
við að sýna tilfinningar er meðal þess
sem einkennir þau sem hafa alist upp
við alkóhólisma,“ útskýrir hún.
Lyft grettistaki
Solveig Lára er fædd árið1956. Á ár-
unum milli 1960 og 1970 var áfengi
meðhöndlað öðruvísi en það er í
dag. Þegar hún lítur til baka þá finnst
henni að áfengi hafi stundum verið
misnotað án þess að það væri skil-
greint sem vandamál. Í dag telur
hún að fólk hafi opnari augu og sjái
betur þegar einhver á í erfiðleikum
með fíkn sína. Þarna telur hún að
SÁÁ hafi unnið vel og í rauninni lyft
grettistaki við að opna augu fólks fyr-
ir sjúkdómnum alkóhólisma.
Solveig Lára segir að augu fólks
hafi farið að opnast þegar Silunga-
pollur var opnaður en Íslendingar
voru þá að byrja að fara í meðferð.
„Það var nýtt í þá daga. Um þetta
leyti var byrjað að tala um alkóhól-
isma sem sjúkdóm. Karlarnir fóru
yfirleitt á Freeport en konurnar á
Silungapoll. Þetta var svolítið kynja-
skipt í þá daga. Það var viðurkennd-
ara að karlarnir mættu drekka með-
an konurnar voru að laumupokast
með þetta,“ segir hún.
Styrkleikamerki
Möguleikarnir fyrir fólk til að fara í
áfengismeðferð og á tólf spora fundi
hafa aukist í seinni tíð að mati Sol-
veigar Láru. Fólk sækir fundi þó að
það fari ekki beint í meðferð. „Þetta er
opnara og ekki eins mikil skömm og
áður. Nú þykir ekki eins mikil skömm
að því að fara í meðferð eins og áður
var. Það þykir ekki skömm að hætta
að drekka eða fara á tólf spora fundi
heldur þvert á móti þykir það sýna
styrkleikamerki. Hugarfarið hefur
gjörbreyst að þessu leyti,“ segir hún.
Fíkniefnaneysla er að mati Sol-
veigar Láru erfiðari viðfangs en áfeng-
isfíknog telur hún að ástæðan sé sú
að þau sem fari út í eiturlyfjaneyslu
eigi ekki eins afturkvæmt og þau sem
eru í áfengisneyslu. Fíkniefnin hafa
meiri og varanlegri skemmdir í för
með sér. „Hinsvegar finnst mér virð-
ingin fyrir þeim sem fara í meðferð
vera sú sama. Við virðum þau mik-
ils sem fara í meðferð í dag og það er
ótrúlega flott öll sú vinna sem unnin
er með fólki.“ Fíknir af öllu tagi eru
algengar í samfélaginu og þær eru
viðfangsefni sálgæslunnar alla daga,
líka matarfíkn og spilafíkn. „Úrræð-
in eru sem betur fer betri en þau
voru. Þau sem berjast við matarfíkn
eða spilafíkn eiga auðveldara með
að blekkja maka sinn og þau sem í
kringum þau eru og vefja inn í lyga-
vef, en þegar um áfengis- eða eitur-
lyfjafíkn er að ræða,“ segir hún.
Sjálfsmyndin í rusli
Alkóhólistinn stjórnar öllum í kring-
um sig beint eða óbeint. Solveig Lára
segir að allt á heimilinu standi og falli
með hegðun hans. „Öll hegðun alkó-
hólistans hefur áhrif á fjölskyldu-
meðlimi, maka og börn. Börnin búa
við mikið óöryggi og sjálfsmyndin fer
í rusl þegar þau vita aldrei hvað bíður
þeirra þegar heim er komið. Félags-
lega einangrast þau því þau geta
ekki boðið öðrum heim til sín vegna
óöryggisins. Svo eru skapsveiflur og
annað sem tengist neyslunni sem
gerir þetta svo erfitt.
Í meðferð og starfi með alkóhól-
istum er mikilvægt að vinna með fjöl-
skyldurnar. Þegar alkóhólistinn fer í
meðferð og fjölskyldan verður eftir í
hegðunarmynstrinu sem hefur skap-
ast í neyslunni þá kemur ójafnvægi í
fjölskylduna og enginn veit hvernig
hann á að haga sér þegar nýtt ástand
hefur skapast. Þetta hefur gríðarleg
áhrif á alla fjölskyldumeðlimi, hvort
sem það eru ung börn, unglingar
eða börn sem eru farin að heiman,
að ekki sé talað um foreldra, afa og
ömmur og aðrar kynslóðir. „Þetta
hefur allsstaðar áhrif,“ segir Solveig
Lára.
Opna augu fólks
Allir í fjölskyldunni verða að opna
augu sín fyrir ástandinu, leita sér
hjálpar, tala saman og tala um líð-
an sína. „Það er lykillinn að allri
úrvinnslu tilfinninga. Það er lykill-
inn að því að geta lifað við svona
ástand þannig að líðan fólks innan
heimilisins stjórnist ekki af því hvort
alkóhólistinn sé að drekka eða ekki.
Fjölskyldan þarf að hjúpa sig vernd
gagnvart því að láta aðra stjórna líð-
an sinni. Fjölskyldan þarf að koma
sér út úr meðvirkniástandinu. Þetta
er vítahringur semþarf að komast
út úr og hjálpa fólki að opna augu
sín svo að það sjái leið út úr þessari
líðan. Það er afar mikilvægt,“ segir
hún.
Hvað litlu börnin varðar þá er
mikil ábyrgð á herðum þess foreldris
sem ekki er í neyslu að skapa börn-
unum öryggi. Ef hjónin eru með
mjög lítil börn og annað foreldrið er
alkóhólisti þá er mikilvægt að sá eða
sú sem ekki er í neyslu vinni með
sjálft sig til að geta unnið með öryggi
barnanna. „Það er það mikilvægasta.
Eins og stundum er sagt í flugvélun-
um; settu grímuna fyrst á sjálfa þig
og aðstoðaðu svo barnið. Til að geta
skapað barninu öryggi í uppeldinu
þá verðum við að vinna með okkur
sjálf.“
Solveig Lára þjónaði sem prestur í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi í sautj-
án ár og hefur nú verið prestur úti á
landi í tólf ár. Hún segir að alkóhól-
ismi sé allsstaðar en lítil reynsla sé
komin á það hvaða áhrif kreppan
hafi. Það á sjálfsagt eftir að koma í ljós
þegar frá líður en nú er of snemmt að
leggja mát á það hvaða áhrif kreppan
hefur haft á þessi mál. -ghs
SÉRA SOLVEIG LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR, prestur á Möðruvöllum, þekkir alkóhólisma bæði úr eigin
lskyldu og ekki síður starfi úr sínu því að hún vinnur við sálgæslu alla daga. Þar kemur alkóhólismi oft við
gu og sömuleiðis fíknir af ýmsu tagi.
Lykilatriðiað tala um líðan sína
SÉRA SOLVEIG LÁRA
GUÐMUNDSDÓTTIR
Á MÖÐRUVÖLLUM
„Til að geta skapað barninu
öryggi í uppeldinu þá verðum
við að vinna með okkur sjálf.“
fjö
sö
10
Á
ST
Æ
ÐU
R F
YR
IR Þ
VÍ AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ KAUPA ÁLFIN
N10