Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2012, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 09.05.2012, Qupperneq 62
9. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR22 22 menning@frettabladid.is MAXÍMÚS MÚSÍKÚS BJARGAR BALLETTINUM Þriðja bókin um músina tónelsku er komin út, en sögurnar um Maxa hafa verið fluttar á fjölmörgum tónleikum og bækurnar um hann hafa komið út á ensku, þýsku, kóresku og færeysku. Höfundarnir, Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson, eru tónlistarmenn og leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Geisladiskur fylgir bókinni. Sigrún Eðvaldsdóttir er ein- leikari á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar Íslands annað kvöld í Hörpu í hinum fræga fiðlukonsert númer 1 eftir Sjostakovitsj. „Þetta leggst alveg rosalega vel í mig. Ég er að deyja úr tilhlökkun,“ segir Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðlu- leikari sem leikur einn glæsileg- asta fiðlukonsert 20. aldarinnar á tónleikum Sinfóníunnar annað kvöld. Það er fiðlukonsert númer 1 eftir Dímítríj Sjostakovitsj. Hún kveðst aldrei hafa spilað hann áður og reyndar hafi hún verið mjög hrædd við hann. „Þetta ferli var erfitt fyrir mig því hann er svo frægur og stór þessi konsert. Hvenær ég byrj- aði að æfa? Þetta er mikil samvis- kuspurning! Ég byrjaði ábyggi- lega alltof seint, eins og venjulega – en ég er bara þannig. Ég fór til Kína síðasta sumar og var ekkert mikið að skoða konsertinn þar. Svo kom haustið og ég reyndi að grípa í hann hér og þar. Í desember var ég orðin pínu stressuð og þá pantaði ég mér sumarbústað yfir helgi. Ég varð einhvern veginn að vera ein með konsertinum og það var dálítið gott að vera alein í myrkrinu með Sjostakovitsj – samt sá ekki högg á vatni. Í mars var mér hætt að lítast á blikuna, þá var svo mikið að gera í Tectonics tónlistarhátíðinni í Hörpu. En svo, sem betur fer, varð apríl góður við mig og þá gerðust hlutirnir. Ég fór til Grænlands um páskana að spila með dönskum félögum mínum og maður gæti haldið að það væri óheppilegt fyrir svona ferli en það varð bara svona líka sniðugt fyrir mig, því bæði varð ég fyrir sterkum áhrifum af umhverfinu og svo var ég dugleg að æfa mig meðan félagarnir fóru í siglingar og fleiri skoðunarferð- ir. Þá fór allt að smella í konsert- inum.“ Sigrún hlær dátt þegar hún er spurð hvort henni hafi ekki verið kalt á puttunum í Grænlandi. „Ég var með æðislegar lúffur,“ svarar hún. „Nei, ég hugsaði bara til tón- skáldsins því það getur verið svo ofboðslega kalt í Rússlandi á vet- urna. En nú er vorið komið og það er dásamlegt.“ Sigrún kveðst hafa passað sig á að hlusta ekki of mikið á Igor Oistrakh flytja fiðlukonsertinn á æfingaferlinu til að falla ekki í þá gryfju að reyna að herma eftir honum. „Þó er Oistrakh uppáhalds fiðluleikarinn minn og Sjostako- wits samdi konsertinn fyrir hann,“ tekur hún fram. „Tónlist er orðin svo aðgengileg á YouTube og þá fara allir að spila eins. Það er slæm þróun. Mér finnst svo mikilsvert að hver og einn túlki tónverk á sinn hátt. Þannig vil ég gera hlutina.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 19.30 á morgun í Hörpu og auk fiðlukonsertsins verður Sinfónía númer 2 eftir Jean Sibelius á dag- skrá, sú vinsælasta af þeim sjö sem hann samdi. Hljómsveitar- stjóri er hinn finnski Pietari Inkin sem vakti gríðarlega hrifningu er hann stjórnaði hér á tónleikum 2010. Hann er aðalstjórnandi sin- fóníuhljómsveitar Nýja-Sjálands og fékk fjórar stjörnur í Financial Times fyrir túlkun sína á 2. sinfón- íu Sibeliusar. gun@frettabladid.is ER AÐ DEYJA ÚR TILHLÖKKUN Í HÖRPU Sigrún Eðvaldsdóttir æfði konsertinn meðal annars alein í sumarbústað í skammdeginu og á Grænlandi í apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Iso la B io r ísm jólk in f æs t í ö llum he lstu m atv öru ver slu nu m um lan d a llt Rísmjólk úr hágæða ítölskum lífrænum hýðishrísgrjónum Isola Bio rísmjólkin er einstaklega bragðgóð og hentar vel í þeytinginn, út á grautinn, í baksturinn og að sjálfsögðu ein og sér, ísköld! hrein með kalki með vanillu með kókos með möndlu rísrjómi fernur - góðar í nestisboxið! Án sykurs Allar án sykurs/sýróps/sætuefna nema möndlu- og súkkulaði sem eru sættar með lífrænu agave.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.