Fréttablaðið - 01.06.2012, Síða 25
HEIMAGERÐUR ÍS Í SÓLINNI
Það er auðvelt að búa til heimagerðan ís. Þeytið 6 eggja-
rauður, 1 bolla púðursykur og 1 tsk. vanilludropa vel sam-
an. Þeytið 1/2 lítra af rjóma og blandið við. Ísinn má svo
bragðbæta með súkkulaði. Frystið í álformi og njótið.
Matreiðslumaðurinn Kristján Þór Hlöðversson er með þáttinn Eld-að með Holta á sjónvarpsstöð-
inni ÍNN þar sem hann matreiðir skemmti-
lega og litríka rétti úr Holta kjúklingum frá
Reykjagarði. Næstu föstudaga mun hann
bæta um betur með girnilegum kjúklinga-
réttum á forsíðu Fólks. Hér er hann með
uppskrift að kryddlegnum kjúklingabring-
um, tilvöldum til að skella á grillið.
„Bringurnar eru látnar liggja í leginum
í þrjá tíma og grillaðar ásamt chilli-papr-
ikum, vorlauk og kartöflum sem skornar
eru í skífur. Með öllu er svo heimagerð
köld sósa.“
Þættirnir eru á dagskrá ÍNN á föstu-
dagskvöldum klukkan 21.30 og endur-
sýndir yfir helgina. Einnig er hægt að
horfa á þá á heimasíðu ÍNN, www.inntv.
is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Matreiðslumaðurinn og sjónvarpskokkurinn, Kristján Þór
Hlöðversson, sem er með matreiðsluþáttinn Eldað með Holta á ÍNN, gefur
kjúklingauppskriftir á forsíðu Fólks næstu föstudaga.
HRÁEFNI
4 Holta kjúklinga-
bringur
3 bökunarkartöflur
3 chilli-paprikur
4 búnt vorlaukur
1/2 dl púðursykur
1/4 dl dijon-sinnep
1/4 dl sojasósa
1/4 dl olía
KRYDDLÖGUR
Púðursykri, dijon-sinn-
epi, sojasósu og olíu
blandað saman. Kjúk-
lingabringurnar látnar
liggja í leginum í sirka
þrjá tíma.
KÖLD SÓSA
150 ml 10% sýrður
rjómi
1 geiri hvítlaukur -
maukaður
1 búnt vorlaukur - smátt
saxaður
2 tsk. sojasósa
3 tsk. hrásykur
nýmalaður pipar
AÐFERÐ
Kjúklingurinn settur
á grillið. Kartöflurnar,
chilli-paprikan og vor-
laukurinn eru pensluð
með olíu og krydduð
með salti og pipar. Borið
fram með sósunni.
KRYDDLEGNAR KJÚKLINGABRINGUR
GÓMSÆTT Á
GRILLIÐ
Rétturinn bráðnar í
munni. Uppskriftin er
hér að neðan.
MYND/RUTH ÁSGEIRSDÓTTIR
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu
með nöfnum sínum
og brúðkaupsdegi ísaumuðum.
Íslensk
kennslubók í
matreiðslu fylgir.
MIKIÐ ÚRVAL
BRÚÐARGJAFA
FOR THE WAY IT´S MADE
Gildir um KitchenAid
hrærivélar.