Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 43
30. júní 2012 LAUGARDAGUR6
Tollstjóri leitar að sérfræðingi í verkefnastjórnun til liðs við þá starfsmenn sem
hafa umsjón með gæða- og verkefnastjórnun hjá embættinu.
>> Þátttaka í mótun verkefnastjórnunarferlis og innleiðingu þess.
>> Gerð verkefnaskrár og umsjón með gerð verkefnaáætlunar.
>> Aðstoð við verkefnastjóra, t.a.m. við áætlanagerð og eftirfylgni.
>> Samskipti við verkefnastjóra, t.a.m. um stöðu verkefna.
>> Ráðgjöf og fræðsla á sviði verkefnastjórnunar.
>> Háskólamenntun, meistaragráða. Framhaldsmenntun á sviði verkefnastjórnunar (MPM) eða
sambærilegt nám og/eða alþjóðleg vottun á sviði verkefnastjórnunar er kostur.
>> Þekking á aðferðafræði og stöðlum verkefnastjórnunar.
>> Þekking á hugbúnaði til verkefnastjórnunar, t.a.m. MS Project og MindManager.
>> Leiðtoga- og stjórnunarfærni ásamt þjónustulund, jákvæðni og sjálfstæði.
>> Færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti, hvoru tveggja á íslensku og ensku.
>> Reynsla af verkefnastjórnun.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Rut Benediktsdóttir, forstöðumaður þjónustu- og gæða-
mála, í síma 560-0385. Umsókn merkt „Sérfræðingur í verkefnastjórnun“ skal skila rafrænt á
netfangið starf@tollur.is fyrir 16. júlí nk.
Við verndum samfélagið og tryggjum ríkinu tekjur
Traust - Samvinna - Framsækni
starf@tollur.is
Stefna Tollstjóra er að vera framsækin ríkisstofnun sem er þekkt fyrir að standa vörð um hagsmuni almennings og
atvinnulífs, veita góða og skilvirka þjónustu og hlúa að mannauði sínum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðeigandi stéttarfélags. Um starfskjör,
réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir gilda í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starf sérfræðings hjá Fæðingarorlofs-
sjóði Hvammstanga
Vinnumálastofnun leitar eftir sérfræðingi til að sinna úrvinnslu
og afgreiðslu umsókna ásamt öðrum verkefnum sem falla undir
verksvið Fæðingarorlofssjóðs.
Starfssvið
• Úrvinnsla og afgreiðsla umsókna
• Eftirlit með greiðslum í fæðingarorlofi
• Símsvörun
• Tölvuskráning
• Almenn upplýsingagjöf til umsækjenda
• Svörun fyrirspurna um fæðingarorlofsmál hvort heldur
símleiðis eða bréfleiðis
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Góð reynsla af skrifstofustörfum
• Góð tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Reynsla af vinnu innan stjórnsýslunnar er æskileg
• Samskiptahæfni og rík þjónustulund ásamt skipulags
hæfileikum, sjálfstæði og metnaði til að skila góðu starfi
Um er að ræða fullt starf frá 27. ágúst 2012. Viðkomandi starfs-
manns bíður að sinna krefjandi verkefnum með jákvæðum og
uppbyggilegum samstarfshópi.
Laun eru greidd samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist á
netfangið leo.thorleifsson@vmst.is eða til Vinnumálastofnunar/
Fæðingarorlofssjóðs, Strandgötu 1, 530 Hvammstanga, fyrir
16. júlí 2012.
Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Endurnýja þarf fyrri umsóknir sem kunna að liggja fyrir. Áhuga-
samir geta kynnt sér starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu
hennar www.vinnumalastofnun.is
Frekari upplýsingar um starfið veitir Leó Örn Þorleifsson,
forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs á ofangreindu netfangi og í
síma 582-4840.
Hópkaup er fyrirtæki sem vinnur að því að auka viðskipti
samstarfsaðila sinna með vinsælustu tilboðsaðferð landsins
í dag og er Hópkaup stærsta fyrirtækið á sínum vettvangi
á Íslandi. Vilt þú vera í sigurliðinu?
Áhugasamir sendi umsókn strax á umsokn@hopkaup.is.
Umsóknarfrestur er til 6. júlí.
Hæfniskröfur:
Hressleiki
Hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugi á markaðsmálum
Sjálfstæði
Söluhæfileikar
Suðurlandsbraut 22 - 108 Reykjavík - hopkaup.is - Sími 520 1030í krafti fjöldans
Ert þú sniðug/ur, hress og hefur áhuga á markaðsmálum?
Við getum kennt þér að selja, en við getum ekki kennt þér að vera hress.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Hópkaup auglýsir
eftir viðskiptastjórai tastjóra
Hjúkrunardeildarstjóri
Sunnuhlíð hjúkrunarheimili óskar eftir að ráða deildarstjóra á
hjúkrunardeild. Deildin skiptist niður í þrjár einingar og er ein
einingin sérstaklega fyrir minnisskerta.
Á deildinni er einn deildarstjóri og tveir aðstoðardeildarstjórar.
Gerð er krafa um viðurkennt hjúkrunarpróf og leyfi frá Land-
læknisembættinu til að stunda hjúkrun. Nám í stjórnun og/
eða öldrunarhjúkrun er æskilegt sem og starfsreynsla í hjúkrun.
Starfið veitist á bilinu 15. ágúst – 1.september eða eftir
samkomulagi.
Upplýsingar um starfið veita:
Dagmar Huld Matthíasdóttir, hjúkrunarforstjóri
Sími 560-4163, dagmar@sunnuhlid.is og
María Fjóla Harðardóttir, deildarstjóri
Sími 560-4161, maria@sunnuhlid.is
Mikilvægt er a viðkomandi sé íslenskumælandi.
Þarf að geta unnið sjálfstætt og vera vanur allri
fínsmíði úr ryðfríu og svörtu stáli. Gott væri að
meðmæli og ferilskrá fylgi starfsumsókninni.
Um framtíðarstarf er að ræða og lágmarksaldur
er 24 ára. Áhugasamir senda umsókn á
netfangið skh@internet.is
Okkur vantar vana stálsmiði til starfa.