Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 62
KYNNING − AUGLÝSING Sparneytnir bílar30. JÚNÍ 2012 LAUGARDAGUR 95
Framleiðendur Peugeot hafa verið meðvitaðir um þá ógn sem stafar af mengandi út-
blæstri í mörg ár. Þeir hafa lagt
mikla áherslu á þá þróun að ná út-
blæstri og eyðslu bíla niður. „Þetta
sést best á því að þeir eru komn-
ir með stóra flóru díselbíla sem eru
með mjög lágar eyðslutölur. Þetta
eru jafnvel stórir fjölskyldubílar
sem geta kallast grænir í dag,“ segir
Gestur Benediktsson, söluráðgjafi
hjá Bernhard, sem selur Peugeot.
„Við finnum fyrir miklum áhuga
hjá viðskiptavinum okkar á um-
hverfisvænum ferðamáta og eyðslu-
grönnum bílum. Fólk spáir mikið í
þessu þegar það skoðar nýjan bíl
og margir hugsa sér að endurnýja
gamla bílinn og fá sparneytnari bíl
í staðinn. Fólk hugsar sér þá jafnvel
að nota sparnaðinn sem af hlýst til
að borga bílalán,“ segir hann.
Fólk, og þá sérstaklega atvinnu-
bílstjórar, er tilbúið að kaupa dýr-
ari bíl ef það sér fram á sparnað í
eldsneytiskostnaði. „Það er yfirleitt
fyrsta spurning þegar fólk kemur
til okkar hvað bíllinn eyði miklu.
Stóru fjölskyldubílarnir sem eru
orðnir grænir eyða 3,5 til 5 lítrum á
hundraðið. Fólk er greinilega farið
að hugsa mikið um hversu miklu
bílarnir eyða og velur þá frekar
þá eyðslugrönnu. Eyðslugrönnu
Peugeot-bílarnir eru til í öllum
stærðum, allt frá litlum fjögurra
sæta bílum upp í stóra sjö manna
fjölskyldubíla.“
Það er þó ekki aðeins verið að
hugsa um sparnað í þessu samhengi
heldur líka umhverfið. „Þeim er allt-
af að fjölga sem hugsa um umhverf-
ið og vilja bara kaupa þá sem kallast
grænir bílar. Sumir eru að leita eftir
því að fá frítt í stæði hjá Reykjavíkur-
borg en bílar sem hafa minna en 120
grömm af koldíoxíði á hundraðið í
útblæstri kallast grænir og það þarf
ekki að greiða fyrir þá í stæði.“
Peugeot er stöðugt að þróa fram-
leiðsluna hjá sér. „Þeir ná að lækka
útblásturstölur í hverri tegund fyrir
sig um nokkur grömm á hverju ein-
asta ári. Þeir eru ekki bara að fram-
leiða bíl og hætta svo að þróa hann.
Þeir eru alltaf að leita leiða til að
bæta bílana sína. Þegar þeir ná út-
blæstrinum niður minnkar eyðslan
líka að einhverju leyti,“ segir Gestur.
Nýr bíll, Peugeot 208, er væntan-
legur í haust. Þar með verða allir
bílar í þeirri stærð frá Peugeot orðnir
grænir. „Þeir verða allir komnir með
minna en 120 í útblástur og meira að
segja verða þeir flestir komnir undir
hundrað. Bílar í þessum stærðar-
flokki eru þá með eyðslutölur upp
á þrjá til fjóra.“ Einnig eru hybrid-
bílar sem nota dísel væntanlegir. Þá
er um að ræða stærri bíla með allt
upp í 200 hestafla vélar en samt með
einungis í kringum hundrað grömm
af koldíoxíði í útblæstri og eyðslu í
kringum fjóra í blönduðum akstri.
Bernhard fagnar fimmtíu ára af-
mæli sínu á þessu ári og var að auki
kosið Fyrirtæki ársins hjá VR þann-
ig að það er mörgu hægt að fagna
þar á bæ. „Þetta er fjölskyldufyrir-
tæki sem hefur verið í eigu sömu
fjölskyldunnar í öll þessi ár. Við
leggjum gríðarlega mikla áherslu
á að þjónusta okkar viðskiptavini
vel hvort sem það er í sölu nýrra bif-
reiða, notaðra bifreiða eða þjónustu
í kringum bílana,“ segir Gestur.
Stórir „grænir“ fjölskyldubílar
Framleiðendur Peugeot eru stöðugt að þróa framleiðslu bíla sinna og eru meðvitaðir um umhverfisvernd og sparneytni. Bílar sem
hafa minna en 120 grömm af koldíoxíði á hundraðið í útblæstri kallast grænir.
Nýr Peugeot 208 er væntanlegur í haust. Þar með verða allir bílar í þessari stærð frá
Peugeot orðnir grænir.
Starfsfólk Bernhard finnur fyrir auknum áhuga viðskiptavina á sparneytnum og
umhverfisvænum bílum.
Fyrirtækið Bernhard, sem selur Peugeot og Honda, fagnar fimmtíu ára afmæli sínu í ár. Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar allan þann tíma. MYND/GVA