Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 2
30. júní 2012 LAUGARDAGUR2
SPURNING DAGSINS
DÝRALÍF „Það er ódýrt að fara í
hvalaskoðun á Patreksfirði skal
ég segja þér,“ segir Bríet Arnar-
dóttir sem býr á Patreksfirði. Þar
geta vegfarendur hæglega séð
hnúfubaka frá götum bæjarins.
Bríet telur að um fimm skepnur
svamli um fjörðinn.
Ásthildur Sturludóttir, bæjar-
stjóri Vesturbyggðar, segir bæjar-
búa og gesti vitanlega hæstánægða
með þennan skemmtilega brag sem
dýralífið setur á mannlífið þar
vestra. „Já, já, það er bara ókeyp-
is hvalaskoðun á Patreksfirði.
Ég þarf ekki annað en að horfa
út um stofugluggann hjá mér til
þess að sjá stökkvandi hnúfubak,
það er ekki amalegt,“ segir hún.
Hún segir að þessu megi þakka að
krökkt sé af smásíld í firðinum.
Bílddælingar fara heldur ekki
varhluta af stórhvelum því þegar
blaðamaður var á ferð um Arnar-
fjörðinn sá hann tvo hnúfubaka úti
á firði.
Bríet segir að lengi hafi hnísur
sést á sunnanverðum Vestfjörðum
en það sé einungis nú hin síðustu
ár sem þessir risavöxnu hvalir
láti sjá sig. Hún segir að þeir hafi
verið tíðir í firðinum síðastlið-
ið sumar svo hver veit nema þeir
verði árlegir gestir héðan af. Hún
lét sér ekki nægja að horfa á ris-
ana frá fjöruborðinu en gerði sér
nýlega ferð út á fjörð til að líta þá
í návígi. „Þeir voru mjög gæfir,
stundum vorum við ekki nema tvo
metra frá þeim og þeir létu bara
vel af því,“ segir hún. Hún segir
enn fremur að stundum komi þeir
mjög nálægt landi svo landkrabb-
arnir fá sín tækifæri líka til að líta
risana. jse@frettabladid.is
Sér hnúfubakinn út
um stofugluggann
Fimm hnúfubakar eru á sveimi um firði á sunnanverðum Vestfjörðum. Bæjar-
stjóri Vesturbyggðar fylgist með herlegheitunum út um stofugluggann hjá sér.
RISINN Á FIRÐINUM Þarna má sjá einn hvalinn veifa sporði en það fer vel á því að bærinn Hvalsker er í baksýn mitt yfir sporð-
inum. MYND/BRÍET ARNARDÓTTIR
KOSNINGAR Ástþór Magnússon
segir að brotið hafi verið á sér
sem frambjóðanda og síðan á kjós-
endum og því séu forsetakosning-
arnar ólöglegar sem fram fara í
dag. Hann hefur sent Hæstarétti
Íslands stjórnsýslukæru.
Ástþór segist enn fremur vera
misrétti beittur þar sem meðmæla-
listar annarra frambjóðenda hafi
ekki verið rannsakaðir jafnvel þótt
bent hafi verið á að meðmælenda-
listar Þóru Arnórsdóttur hafi haft
svipað yfirbragð og listarnir hans.
Þar segir hann að ekki hafi
verið lagastoð
fyrir því að
ógilda forseta-
framboð sitt á
þeim forsend-
um sem innan-
ríkisráðuneyt-
ið gerði. Engar
sannanir liggja
fyrir um að
meðmælenda-
listar hafi verið
falsaðir, enginn hafi verið handtek-
inn vegna málsins og engar yfir-
heyrslur farið fram.
„Eftir því sem tíminn líður er
að afhjúpast meiri og meiri póli-
tískur þefur í kringum þetta mál,“
segir Ástþór. „Vinnubrögð innan-
ríkisráðuneytisins og meðferðin á
framboði mínu er á skjön við góða
stjórnsýsluhætti, meðalhófsreglu
og eðlileg vinnubrögð í réttarríki
lýðræðisþjóðfélags.“
Framboð Ástþórs Magnússonar
var ógilt í byrjun mánaðarins þar
sem innanríkisráðuneytið taldi að
ekki lægi fyrir lögboðið vottorð
yfirkjörstjórnar Norðvesturkjör-
dæmis. - jse
Ástþór Magnússon hefur sent inn stjórnsýslukæru vegna forsetakosninganna:
Segir kosningarnar ólöglegar
ÁSTÞÓR
MAGNÚSSON
Með á nótunum.........
„Þrír af hverjum fimm atvinnurekendur auglýsa ekki eftir
starfskröftum”
Það er í góðu lagi því að hér kemur reynslubolti sem hefur
áhuga á þínu fyrirtæki.
Það sem ég hef upp á að bjóða er:
• Kennsluréttindi „Diplóma“
• Raftæknifræði „Hönnun í AutoCad“
• Meistarabréf „Rafvirkjun“
• Eftirlit með verkþáttum á verkstað
• Fyrirbyggjandi eftirlit með tæknibúnaði
• Verklýsingar verkþátta <> Kostnaðarreikna verkliði
• Reynsla í stjórnun
Ég á mjög auðvelt með að umgangast annað fólk, ég er með
góða samskiptahæfileika og mikla reynslu að vinna undir álagi.
Ég hef ég líka áhuga á að prófa eitthvað alveg nýtt.
Ef þú hefur áhuga á manni með alhliða verkþekkingu.
Endilega hafðu sambandi við Stefán B. Sigtryggsson
Netfang: stefan.birgir@internet.is
Síma 615 3010 eða 778 5767
Haraldur, er þá enginn
hrossabrestur?
„Síður en svo, það er nóg af góðum
og flottum hrossum handa öllum
Íslendingum sem kunna að ríða.“
Haraldur Þórarinsson, formaður Land-
sambands hestamannafélaga á Íslandi,
sagði í Fréttablaðinu í gær að það væru
of margir hestar á Íslandi miðað við þá
sem eru að nota þá.
SAMFÉLAGSMÁL Þolendur kyn-
ferðisbrota presta um allan heim
eru í 95 prósentum tilvika konur.
Þetta kemur fram í bókinni When
Priests and Pastors Prey sem
Heimsráð kirkjunnar og kristileg
alþjóðasamtök stúdenta gefa út.
Samkvæmt rannsókn sem gerð
var við Baylor-háskólann í Texas
hafa þrjú prósent allra kvenna
sem sækja kirkju í Bandaríkj-
unum orðið fyrir kynferðislegri
áreitni eða kynferðislegu ofbeldi
af hálfu presta sinna, samkvæmt
frétt Kristilega dagblaðsins í Dan-
mörku. Með útgáfu bókarinnar
er vonast til að þögnin verði rofin
þannig að kirkjuyfirvöld fari að
taka á vandanum. - ibs
Bók um kynferðisbrot presta:
Konur oftast
þolendurnir
BRETLAND Tveir menn hafa verið
handteknir grunaðir um að hafa
verið að skipuleggja hryðju-
verkaárás á leikvang Ólympíu-
leikanna í London samkvæmt
frétt dagblaðsins Telegraph.
Handtökuskipun var gefin út
þegar lögreglunni bárust upplýs-
ingar um að tveir menn hegðuðu
sér grunsamlega nærri leikvang-
inum á mánudagskvöld. Mennirn-
ir tveir voru handteknir á heimil-
um sínum snemma á fimmtudag.
Vinur mannanna tengdi hand-
tökuna við kanóferð þeirra á ánni
Lea sem rennur í gegnum ólymp-
íusvæðið. Leikarnir hefjast eftir
tæplega mánuð í London.
Óttast árás á ólympíuleikvang:
Tveir grunaðir
um hryðjuverk
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun
hefur lokið athugun sinni á því
hvernig félagið utan um byggingu
Þorláksbúðar í Skálholti hefur ráð-
stafað styrkjum sínum. Könnunin
gefur ekki tilefni til athugasemda,
að því er segir í bréfi Ríkisendur-
skoðunar til forseta Alþingis.
Illa gekk að fá upplýsingar frá
félaginu og fengust þær skýring-
ar að lokum að bókhald hefði ekki
verið fært vegna fjárskorts. Ríkis-
endurskoðun áréttar í niðurstöðu
sinni að félagið sé bókhaldsskylt
og gagnrýnir að reikningslegt upp-
gjör hafi ekki verið tekið saman.
„Jafnframt bendir stofnunin á
nauðsyn þess að þeir aðilar sem
taka ákvörðun um að veita styrki
úr ríkissjóði hafi þessa lagaskyldu
ávallt í huga, ekki síst þegar veitt-
ir eru styrkir öðru sinni til sama
aðila,“ segir í niðurstöðunni.
Þá telur Ríkisendurskoðun
að óvissa ríki um fjárhagsstöðu
félagsins, enda eigi það von á
reikningum upp á „nokkrar millj-
ónir“ að sögn stjórnar þess og
skuldi þar að auki eina milljón frá
fyrra ári og 400 þúsund króna yfir-
drátt. - sh
Ríkisendurskoðun telur óvissu ríkja um fjárhagsstöðu félagsins um Þorláksbúð:
Engar athugasemdir við Þorláksbúð
ÞORLÁKSBÚÐ Alþingismaðurinn Árni
Johnsen hefur verið einn helst hvata-
maðurinn að byggingu Þorláksbúðar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
BANDARÍKIN, AP Gróðureldar í
Colorado Springs í Coloradofylki
í Bandaríkjunum hafa kostað að
minnsta kosti eitt mannslíf síðan
þeir kviknuðu þann 23. júní. Innan
við tíu er saknað
vegna eldanna,
sem hafa eyði-
lagt 346 heim-
ili í úthverf-
um Colorado
Springs.
Eldarnir eru
þeir skæðustu í
sögu Colorado,
og hefur Barack
Obama Bandaríkjaforseti lýst yfir
neyðarástandi í fylkinu. Herflug-
vélar og þyrlur hafa hjálpað til við
að slökkva eldana ásamt þúsundum
slökkviliðsmanna á jörðu niðri.
Íbúum á hættusvæðum hefur
verið gert að yfirgefa heimili sín.
„Í þessum húsum eru munir sem
fólk hefur eignast á löngum tíma
og nú er það allt horfið,“ sagði tals-
maður eins hverfaráðanna í Color-
ado Springs. Óvíst er um upptök
eldanna. - bþh
Gróðureldar í Colorado:
Einn hefur týnt
lífi í eldinum
BARACK OBAMA
VIÐSKIPTI BSRB gagnrýnir hug-
myndir um að stjórnendum Eim-
skips verði gert kleift að kaupa
hlut í fyrirtækinu á lægra gengi
en fengist á markaði.
Stefnt er að því að setja Eim-
skip á markað í september. BSRB
bendir á að ekki séu margir mán-
uðir síðan Eimskip gekk í gegn-
um nauðasamninga og samdi
um milljarða afskriftir, meðal
annars við lífeyrissjóðina. Þess
er krafist að hætt verði að láta
almennt launafólk standa undir
forréttindum hinna fáu. - bþh
Yfirmenn Eimskips fá afslátt:
BSRB á móti
afslætti toppa
SVÍÞJÓÐ Flokkarnir í sænsku ríkis-
stjórninni hafa komist að sam-
komulagi um að flóttamenn sem
eru í felum fái niðurgreidda lækn-
ishjálp eins og þá sem hælisleit-
endur hafa rétt á. Þetta tilkynnti
félagsmálaráðherra Svíþjóðar,
Göran Hägglund, í gær.
Tillagan verður send viðkom-
andi stofnunum til umsagnar en
markmið stjórnvalda er að umbæt-
urnar taki gildi 1. júlí 2013. Sænsk
stjórnvöld hafa sætt gagnrýni
Sameinuðu þjóðanna fyrir að hafa
ekki veitt flóttamönnum í felum
rétt til læknishjálpar. - ibs
Stjórnvöld í Svíþjóð:
Flóttamenn í
felum fái hjálp
Ríkið nýti samfélagsmiðla
Með því að nýta samfélagsmiðla á
borð við Facebook til upplýsingagjafar
og samskipta geta stjórnvöld náð til
stærri hóps en áður. Þetta er mat
starfshóps stjórnvalda sem fjallaði
um stefnu stjórnvalda um samskipta-
miðla. Bent er á að slík samskipti auki
á jákvætt viðhorf almennings.
STJÓRNSÝSLA