Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 30. júní 2012 15
Ný útboð í auglýsingu hjá
Reykjavíkurborg:
• Gufunesbær, aðkoma, útboð nr. 12855.
• Göngu- og hjólastígar. Höfðatún – Engjateigur,
útboð nr. 12871.
• Betri hverfi 2012 – Austurhluti, útboð nr. 12872.
• Fram Úlfarsárdalur. Ferging grasvalla, útboð
nr. 12873.
• Betri hverfi 2012 – Vesturhluti, útboð nr. 12876.
Allar nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod.
Jafnréttissjóður auglýsir hér með eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að efla kynjarannsóknir og
stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og
framgangi jafnréttis.
Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir
til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.
Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna
til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu
ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.
Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til
umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna
sem þegar er lokið.
Einungis verður tekið við umsóknum á þar til
gerðum eyðublöðum.
Þau má finna á vef forsætisráðuneytis
(forsaetisraduneyti.is/jafnrett issjodur).
Umsóknarfrestur er til 1. september 2012 en
úthlutað verður úr sjóðnum 24. október 2012.
Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr.
513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs.
Reykjavík 30. júní 2012
Bjarnarflag
Útboð nr. 20082
Skrifstofuhús
Breytingar og endurbætur
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í endurbætur
á skrifstofuhúsi Landsvirkjunar í Bjarnarflagi
samkvæmt útboðsgögnum nr. 20082.
Verkið felst í endurbótum á innveggjum, raflögnum,
lýsingu, gólfefnum og málun.
Helstu magntölur eru:
Innihurðir: 10 stk
Loftræsilagnir: 15 m
Hreinlætistæki: 7 stk
Endurnýjun lampa: 119 stk
Nýr gólfdúkur: 240 fm
Málun innanhúss: 1900 fm
Málun utanhúss: 620 fm
Vettvangsskoðun verður á verkstað 13. júlí n.k.
kl:13:00.
Verkinu skal að fullu lokið 10. desember 2012.
Útboðsgögn verða afhent í móttöku Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, gegn óafturkræfu
gjaldi að upphæð kr. 5.000 fyrir hvert eintak, frá og
með miðvikudeginum 4. júli 2012.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir klukkan 12:00
þriðjudaginn 31. júlí 2012. Tilboð verða opnuð og
lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska kl 14:00 þann 31. júlí 2012.
Klafastaðir Launaflsvirki SVC
Byggingarvirki
Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, byggingu og
fullnaðarfrágang húss fyrir Launaflsvirki SVC sem verður byggt
á Klafastöðum í Hvalfjarðarsveit í samræmi við útboðsgögn
KLA-02.
Verkið felur í sér jarðvinnu og byggingu óeinangraðs stál-
grindarhúss yfir rofa-, SVC- og spennarými auk byggingu
staðsteypts einangraðs stjórnhúss. Húsin verða sambyggð
á einni hæð en til viðbótar eru tvö tæknirými fyrir blásara
loftræsikerfis. Stálgrindarhúsið verður um 2.300 m2 að
grunnfleti og stjórnhúsið verður um 230 m2 að grunnfleti.
Helstu verkliðir eru:
• Gröftur og fylling fyrir húsi, lögnum, plönum
og aðkomuvegi.
• Leggja jarðskautskerfi í steypu og jörð.
• Steypa sökkla stálgrindarhúss, steypa upp stjórnhús og
steypa undirstöður undir háspennubúnað og spenni.
• Reisa stálgrindarhús yfir rofa-, SVC- og spennarými og
klæða með málmklæðningum.
• Leggja lagna-, loftræsi- og rafkerfi fyrir húsið.
• Fullnaðarfrágangur utan- og innanhúss.
• Fullnaðarfrágangur lóðar.
Helstu magntölur eru:
• Fylling 4.000 m3
• Mót 6.000 m2
• Steypa .400 m3
• Járnbending 140.000 kg
• Stálvirki 200.000 kg
• Málmklæðning 5.500 m2
• Malarslitlag 3.500 m2
• Malbikuð plön 1.400 m2
Verkinu skal að fullu lokið 22. febrúar 2013.
Væntanlegum bjóðendum er bent á að kynna sér grunn-
kröfur Landsnets til birgja sem finna má á heimasíðu fyrir-
tækisins, www.landsnet.is.
Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í móttöku Landsnets,
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 3. júlí
2012.
Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112
Reykjavík fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. júlí 2012 þar sem
þau verða opnuð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Útboð KLA-02
15288 - Fullbúið húsnæði óskast
á leigu fyrir Lögregluna á
höfuðborgar svæðinu
Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu húsnæði fyrir
nýja hverfastöð, Lögreglustöð 4, fyrir Lögregluna á
höfuðborgarsvæðinu. Miðað er við að húsnæðið verði
tekið á leigu til 15–25 ára, fullbúið til notkunar, án
lauss búnaðar. Leigutilboð skal í fyrsta lagi m.v. 15 ára
leigutíma, í öðru lagi 20 ára leigutíma og í þriðja lagi 25
ára leigutíma.
Þjónustusvæði stöðvarinnar er austan og norðan
Elliðaár þ.m.t. Mosfellsbær og nálægar sveitir. Gerð
er krafa um staðsetningu austan Höfðabakka, sunn-
an Lágafells í Mosfellsbæ og norðan Norðlingaholts.
Stöðin þarf að vera staðsett sem næst Suðurlands- og
Vesturlandsvegi. Æskilegt er að húsnæðið sé sem
mest á einni hæð. Til staðar þarf að vera gott aðgengi
og næg bílastæði. Æskilegur afhendingartími er 6-9
mánuðir en gæti verið allt að 12 mánuðir eftir un-
dirskrift leigusamnings, en þannig er gefinn kostur á
að um nýbyggingu verði að ræða ef það er talið gefa
hagstæðustu lausn.
Húsrýmisþörf Lögreglustöðvar 4 er áætluð um 700
fermetrar.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið
verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu
Ríkiskaupa www.rikiskaup.is mánudaginn 2. júlí, 2012.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 15288 skulu sendar á
netfangið: www.utbod@rikiskaup.is og verða svör birt
á vef Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 9. júlí, 2012, en svar-
frestur er til og með 11. júlí, 2012.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og
staðsetning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til
Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en
þriðjudaginn 24. júlí, 2012.
Bjarnarflag
Útboð nr. 20089, BJA-01
Boranir 2012-2013
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í borun á allt
að 3 háhitaholum á Norðausturlandi samkvæmt
útboðsgögnum nr. 20089, BJA-01.
Verkið skiptist í tvo verkáfanga. Verkáfangi 1 felur í
sér borun á tveimur háhitaholum, annarri beinni og
hinni stefnuboraðri og verkáfangi 2 felur í sér borun
á einni beinni háhitaholu til viðbótar. Fyrirvari er
gerður í útboðsgögnum um gerð verksamnings um
þriðju háhitaholuna.
Verkið felst í borun á allt að 2500 m djúpum
háhitaholum, stefnuboruðum eða beinum sem
áætlað er að bora á árunum 2012–2013.
Útboðsgögn verða afhent í móttöku Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með
þriðjudeginum 3. júlí 2012 gegn óafturkræfu gjaldi
að upphæð kr. 5.000.- fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila í móttöku Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir klukkan 12:00
þriðjudaginn 14. ágúst 2012, þar sem þau verða
opnuð sama dag klukkan 14:00 og lesin upp að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Til leigu