Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 79
30. júní 2012 LAUGARDAGUR36
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
Að eiga lítil systkini getur komið sér vel. Þau má kúga til að dýfa fætinum í
vatnið áður en maður fer sjálfur ofan í og
hóta ofbeldi ef þau taka ekki á sig sökina
fyrir að borða síðustu tertusneiðina. Þessar
elskur bogna auðveldlega undan valdi sem
er beitt í krafti andlegra yfirburða. Þetta
lærði ég af biturri reynslu, enda alinn upp í
stöðugum ótta við þrjú ógnvænleg og risa-
vaxin systkini.
LITLU systkinin eru sem sagt neydd til að
stökkva á handsprengjuna fyrir þau eldri
og þannig notuð sem mannlegir skildir. Svo
við höldum áfram með þessa ósmekklegu
vísun í stríðsrekstur, þá eru fjölmörg
dæmi til um að slíkir skildir séu notaðir
í bardögum – þar sem óbreyttum borg-
urum er komið fyrir í fremstu víglínu til
að veita æðri mönnum skjól. Borgararnir
eru oftast neyddir til að taka að sér þetta
óeigingjarna hlutverk en tilgang-
urinn hefur einnig áróðursgildi
þar sem tala látinna óbreyttra
borgara vex óhjákvæmilega
við aðgerðina. Þannig er höfð-
að til samvisku óvinarins og
reynt að letja hann í árásum
sínum.
MANNLEGIR skildir hafa
einnig verið nýttir í íslenskum
áróðursstríðum með eftirtekt-
arverðum árangri. Sjómönnum
var att út á vígvöllinn í byrjun júní til að
mótmæla meintri tekjuskerðingu á meðan
kvótagreifarnir dyttuðu að höllum sínum
og keyptu nýjar handa erfingjunum. Í vik-
unni settu svo stjórnarmenn Vinnslustöðv-
arinnar í Vestmannaeyjum upp mannlegan
skjöld til að verjast árásum ríkisstjórnar-
innar. 41 starfsmanni var fórnað og gott ef
nýjasti dallurinn var ekki settur á sölu-
skrá. Stjórnvöld fengu þau skilaboð að
aðgerðirnar væru upp á líf og dauða; nauð-
synlegar til að halda fyrirtækinu gangandi.
ÞEGAR aðgerðirnar voru kynntar láð-
ist stjórnendum vinnslustöðvarinnar að
nefna að til stendur að greiða eigendum
850 milljónir í arð, sem var samþykkt á
fimmtudagskvöld. Það er 350 milljónum
meira en í fyrra. Sem sagt, á tveimur árum
hefur Vinnslustöðin skilað eigendum sínum
1.350 milljónum króna í arð. Ef við mynd-
um skipta arðinum í hundraðkalla myndi
staflinn skaga 27 kílómetra til himins. Við
þyrftum að stafla 32 Burj Khalifa-turnum,
sem er hæsta bygging heims, hverjum ofan
á annan til að koma fyrir síðasta hundrað-
kallinum. Hallgrímskirkjuturnarnir þyrftu
hins vegar að vera 362.
GUÐ blessi þessa menn. Fyrir þau sem vita
ekki hvað arður er, þá lítur hann út eins og
grænu tölurnar í einkabankanum þínum.
Í þessu tilviki er þó um að ræða talsvert
fleiri núll en þú munt nokkurn tíma sjá.
Mannlegir skildir í Eyjum
Vertu úti
Ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins
Taktu þátt í ljósmyndakeppni Fréttablaðsins um útivist.
Sendu inn mynd sem tengist útivist með einum eða
öðrum hætti og þú getur unnið miða fyrir tvo til
Evrópu!
Skilafrestur á mynd er til klukkan tólf á hádegi þann
4. júlí. Vinningsmyndin verður á forsíðu helgarblaðsins
þann 7. júlí og sigurvegarinn fær að auki tvo flugmiða
til einhvers af áfangastöðum WOW Air. Annað og
þriðja sæti fá miða fyrir tvo í Borgarleikhúsið.
Sendu inn mynd á ljosmyndakeppni@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. sæti, 6. karlkyn, 8. hvers vegna, 9.
rangl, 11. stöðug hreyfing, 12. ofan
á brauð, 14. gildra, 16. nudd, 17.
viljugur, 18. orga, 20. í röð, 21. and-
streymi.
LÓÐRÉTT
1. skrifa, 3. eftir hádegi, 4. olnboga-
rými, 5. löng, 7. kálsoð, 10. kviksyndi,
13. gifti, 15. hófdýr, 16. nálægt, 19.
tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sess, 6. kk, 8. hví, 9. ráf,
11. ið, 12. álegg, 14. snara, 16. nú, 17.
fús, 18. æpa, 20. mn, 21. raun.
LÓÐRÉTT: 1. skrá, 3. eh, 4. svigrúm,
5. síð, 7. kálsúpa, 10. fen, 13. gaf, 15.
asni, 16. nær, 19. au.
Við fórum
í útilegu í
vor! Með
fellihýsi!
Ok!
Við fórum sko á Sel-
foss, Hvolsvöll, Vík í
Mýrdal, Kirkjubæjar-
klaustur, Skaftafell
og enduðum á
Höfn í Hornafirði!
Næs!
Svo eftir Höfn tókum
við austfirðina eins og
þeir leggja sig! Nes-
kaupstað, Borgarfjörð
eystri, Egilsstaði …
Við eigum
sko
Mözdu!
Hversu langt
ætli það sé að
vatninu? 15-20
metrar? ... Það
gæti gengið!
Hún
er blá!
Ég trúi ekki að ég sé
að labba nakinn um
húsið!
Ég er svo
villtur!
Ég er svo mikill
rokkari!
Ég er svo
búinn að
vera.
Halló?
þetta er
ég! Fríða
frænka!
Einhver
heima?
Þetta er
frábært,
en í hreinskilni
sagt á ég erfitt
með að halda
í við þessa
nútímatækni.
Mamma!
Krakkinn
er inni í
herberginu
mínu!
Mamma!
Krakkinn er
að rústa öllu!
Mamma!
Þaggaðu
niður í
krakkanum!
Af hverju má ég aldrei
leika við hana?