Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 81

Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 81
30. júní 2012 LAUGARDAGUR38 38 menning@frettabladid.is Myndlist ★★★ ★★ Vídeóverk í Reykjavík Melissa Dubbin, Aaron S. Davids- son, Wooloo, Sigrún Sigurðardótt- ir, Kolbeinn Hugi Höskuldsson Nýlistasafnið, Listasafn ASÍ, Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi Í Reykjavík má í dag sjá víd- eóverk á nokkrum stöðum. Í Nýlistasafninu er vídeó hluti af sýningu Melissu Dubbin og Aarons S. Davidsson; Volumes for Sound, sem aftur er hluti af Independent People, myndlistar- hluta Listahátíðar í Reykjavík. Í vídeóinu liggur korn ofan á hátal- ara og hoppar þar og skoppar. Ekkert sérstaklega frumlegt, en er ágætur hluti af heildarkonsept- inu í sýningunni sem hverfist um hljóð, hljóðskúlptúra og tilrauna- tónlist. Í gryfjunni í Listasafni ASÍ er til sýnis eins konar heimild- armynd eftir Wooloo-hópinn en list hans snýst um samfélagsleg- ar tilraunir, þátttökulist og sam- vinnu við listsköpun. Í myndinni er fylgst með þeim reyna að sann- færa íbúa í Horbelev í Danmörku um að hætta að horfa á sjónvarp- ið en sameinast þess í stað um að búa til risastóran skúlptúr í bænum úr sjónvarpstækjun- um. Þetta er skemmtileg mynd og verkefni, og framsetningin í safninu er látlaus og þægileg. Það að listamennirnir hafi fengið sjónvarp frá safnstjóranum til að sýna myndina í, bætir samt engu við þessa sýningu. Hafnarhúsið hýsir verkefni Kling og Bang gallerísins The Demented Diamond of Kling & Bang´s Confected Video Archive, sem er einnig hluti af Independ- ent People. Þar er um að ræða sífellt stækkandi safn myndbanda eftir listamenn sem tengjast, og hafa tengst, Kling og Bang gall- eríinu á Hverfisgötu með ein- hverjum hætti í gegnum árin – eins konar vídeólistasafn. Til viðbótar býður Kling og Bang upp á nokkrar stuttar (tveggja vikna langar) einkasýningar innan sinn- ar sýningar. Sirra Sigrún Sigurð- ardóttir reið á vaðið með Tre- mors þar sem hún endurskapaði Suðurlandskjálftann árið 2008 með leikurum og litríkum jarð- skjálftaritamyndum sem mynd- uðu afar skemmtilegan samleik. Sirra sækir þarna aðeins til Þor- valdar Þorsteinssonar (The Most Real Death o.fl.) og Bill Viola til dæmis. Fólkið talar um reynslu sína, leikur og hristist eins og það sé statt á jarðaskjálftasvæð- inu á dimmum bakgrunni. Leik- list og myndlist fer ekki alltaf vel saman, en Sirra er þarna samt á áhugaverðum slóðum að tækla samtíma sinn. Nú er það Kolbeinn Hugi Hösk- uldsson sem ræður ríkjum í „klikkaða demantinum“ og er sýn- ingin sett upp með sama hætti og sýning Sirru, en það er greinilega ætlast til þess að listamennirnir í þessum stuttu einkasýningum notfæri sér sömu sviðsmyndina, þó það henti kannski misvel. Verk Kolbeins heitir Abstrakt að handan. Þetta eru fimm vídeó af mismunandi strendingum/krist- öllum sem snúast og endurkasta ljósi sem að þeim er beint. Með þessu hljómar hljóðmynd með bjöguðum röddum og strengjum og minnir um margt á einhvers konar geimveruraddir eins og við þekkjum þær úr Aliens-myndun- um eða Signs og fleiri slíkum, ef hljóðminnið er ekki að svíkja mig. Þetta er heillandi hljóðmynd og kristallarnir eru það líka. Sýning- in hefði ekki versnað við að fækka kristöllunum, og líklega hefði inn- setningin notið sín betur í meiri myrkvun. Ferningslaga kristall- inn heillaði mig mest, ásamt auð- vitað hljóðmyndinni. Nú er eins og maður sjái strendinga út um allt – Harpan, Ólafur Elíasson, Þjóðleikhúsið og nú síðast verk Ragnars Nikulás- sonar á Hlemmi. Verk Kolbeins er þó meiri tilvísun í einhvern hand- anheim, ofurhetju/geimveruheim jafnvel, heldur en í Ólaf Elíasson eða íslenska náttúru, enda spyr hann í sýningarskrá: Við leitum svara hjá kristöllunum en hverj- um leita þeir svara hjá? Þóroddur Bjarnason Niðurstaða: Flott hljóðmynd og blikandi kristallar vekja upp hugsanir um handanheima. Vídeókristallar ABSTRAKT AÐ HANDAN Fimm vídeó af mismunandi strendingum Kolbeins Huga Höskuldssonar er að sjá í Hafnarhúsi um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tíu ungir dansarar frumflytja tvö nútíma- dansverk á tveimur sýningum í Gaflara- leikhúsinu á miðvikudagskvöld. Dansflokkurinn Undúla sýnir á miðvikudag tvö nútímadansverk í Gaflaraleikhúsinu sem Unnur Elísabet Gunnarsdóttir samdi í samstarfi við flokk- inn. Hann skipa tíu ungar konur sem allar eiga það sameiginlegt að hafa mikla ástríðu fyrir dansi og hafa stundað nám við Listdansskóla Íslands. „Við erum allar vanar að dansa saman og höfum haft Unni fyrir kennara í Listdansskólanum,“ segir Þórey Birgisdóttir, ein dansaranna tíu. Hún segir verkin tvö gjörólík þeim verkefnum sem þær hafa tekist á við áður. „Unnur er búin að kynna okkur fyrir mörg- um nýjum hlutum. Í þessum verkum höfum við allar okkar eigin karaktera, sem eru nokkurs konar ýktar útgáfur af okkur sjálfum. Svo erum við ekki bara að dansa, heldur lærðum við allar að syngja á finnsku og fleira. Ég vil nú ekki segja mikið meira frá því svo ég eyðileggi ekki hið óvænta fyrir áhorfendum.“ Verkin sem sýnd verða heita Hringrás og Heim- sóknartími, en hvort þeirra tekur um 40 mínútur í flutningi. Hið fyrrnefnda fjallar um tíu konur sem eru lokaðar inni í húsi einhvers staðar í heiminum og hvað þær gera til að stytta sér stundir í húsinu. Hitt verkið fjallar um hvernig allt fer í hringi í líf- inu, frá því við fæðumst og þar til við deyjum, hring eftir hring. „Það er mjög skemmtilegt að dansa þessi verk. Það er létt yfir Heimsóknartíma – okkur finnst það mjög fyndið – en það er meiri dramatík og alvara í Hringrás,“ segir Þórey. „En þau eru bæði lífleg og skemmtileg. Það hefur verið hápunktur dagsins hjá mér að mæta á æfingar að undanförnu og ég held það sama gildi um stelpurnar líka.“ Sýningarnar á miðvikudag verða tvær, klukkan 19.30 og 21.30. Miðarnir eru seldir við innganginn og er verð þeirra 1.000 krónur. holmfridur@frettabladid.is Tíu konur lokaðar inni í húsi í ónefndu landi LIFANDI VERK Dansflokkinn Undúlu skipa tíu ungar konur, þær Anna Kristín Gunnarsdóttir, Bryndís Snæfríður Gunnarsdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Gunnhildur Eva Guðjohnsen Gunnarsdóttir, Indy Alda Saouda Yansane, Sigríður Ólöf Valdimarsdóttir, Snæfríður Ingvarsdóttir, Snæfríður Sól Gunnars- dóttir, Þórey Birgisdóttir og Þórhildur Jensdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BJÖRN STEINAR SÓLBERGSSON organisti leikur á tveimur tónleikum í Hall- grímskirkju um helgina. Annars vegar á hádegistónleikum Alþjóðlegs orgelsumars á laugardaginn en einnig á aðaltónleikum vikunnar sem fram fara á sunnudaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.