Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 35
FÓLK|HELGIN
„Þetta var ekki eingöngu hagstæðara
heldur fannst okkur líka ótrúlega þægi-
legt að vera með fjölskylduna inni á
venjulegu heimili,“ segir Birna Guðrún
Baldursdóttir iðjuþjálfi en hún bjó ásamt
fjölskyldu sinni í þrjár vikur í heima-
húsi í bænum Olv-Olen í Belgíu síðasta
sumar. Belgíska fjölskyldan bjó á meðan
í húsinu þeirra á Akureyri.
Þrátt fyrir talsverðan undirbúning segir
Birna fyrirhöfnina við skiptin vel þess
virði. Eftir að hafa reynt íbúðaskipti
einu sinni ætla þau örugglega að gera
það aftur.
HREINGERÐU VEL
„Það þarf að undirbúa heimilið, þrífa og
tæma nokkrar hillur og skúffur í fata-
skápnum. Við fórum reyndar offari í
hreingerningunni og skrúbbuðum með
tannbursta í hornin. Svo þrifum við svo
svakalega húsið þeirra að við brutum
klósettburstann,“ segir hún hlæjandi og
ætlar ekki að stressa sig eins á þrifunum
næst. „Eins þurftum við að útbúa upp-
lýsingar um heimilið, hvar rafmagnstafl-
an var staðsett og útvega tengilið sem
gestirnir geta hringt í ef eitthvað kemur
upp á. Sá þarf einnig að hafa auka lykil
að húsinu.
BÍLLINN Í LAGI
Tryggingar á bílnum þurfa að vera í lagi
og svo gæti verið sniðugt að setja há-
mark á kílómetrafjölda sem keyra má
á fjölskyldubílnum,“ bendir Birna á en
belgíska fjölskyldan hafði keyrt duglega
um landið meðan á dvöl þeirra stóð.
„Þau voru líka mjög hrifin af Íslandi,“
segir hún sposk.
Birna segir undirbúninginn líka hafa
orðið til þess að þau drifu í ýmsum
framkvæmdum sem setið höfðu á hak-
anum. Til dæmis máluðu þau grindverk-
ið og skiptu um eldhússtóla. „Þannig var
líka mjög gaman að koma heim aftur. Svo
beið okkar skondinn glaðningur í fryst-
inum heima en báðar fjölskyldur eiga
að skilja eitthvað matarkyns eftir í ís-
skápnum. Belgarnir höfðu útbúið gúll-
as úr hangikjöti handa okkur, sem var
ansi spes.“
GÓÐ SAMSKIPTI
Birna segir einnig að skynsamlegt sé
að vera í reglulegu tölvupóstsambandi
við skiptifjölskylduna áður og kynnast
aðeins. Misjafnt sé hversu mikið fólk er
til í að koma til móts við óskir.
„Við vorum svo heppin að þau voru
þaulvön íbúðaskiptum og reyndust
okkur frábærlega. Til dæmis redduðu
þau reiðhjólum handa okkur öllum og
líka barnapíu einn dagspart. Svo höfðu
þau fengið nágrannastelpu til að koma
í heimsókn með froska til að sýna
strákunum. Upplýsingarnar sem þau
gáfu okkur um afþreyingu í nágrenn-
inu reyndust okkur líka mjög vel og
við gerðum ýmislegt sem okkur hefði
annars ekki dottið í hug.“
SKEMMTILEGT ÆVINTÝRI
„Svona fyrirkomulag getur verið púslu-
spil og leit að skiptifjölskyldu sem
passar getur leitt mann á aðrar slóðir
en maður ætlar í upphafi. Við hefðum
til dæmis aldrei farið til Olv-Olen nema
vegna þess að þau pössuðu okkur
alveg. Fyrir vikið varð ferðalagið bara
skemmtilegra og uppfullt af ævintýr-
um,“ segir Birna.
Birna og Rögnvaldur skráðu sig
á síðuna www.intervac.com. þá má
einnig benda á www.homeexchange.
com og www.homeswapping.com.
■ heida@365.is
BRAUT KLÓSETT-
BURSTANN
ÍBÚÐASKIPTI Hjónin Birna Guðrún Baldursdóttir og Rögnvaldur Bragi
Rögnvaldsson segja íbúðaskipti hentugan kost fyrir fjölskyldufólk.
Í GARÐINUM
„HEIMA“ Birna Guðrún
með Styrmi í fanginu og
Kormákur gæðir sér á
grillsteik. Henni fannst
þægilegt að vera með
fjölskylduna inni á venju-
legu heimili.
ALLIR FENGU HJÓL
Rögnvaldur með
Rökkva, 13 ára, Kormáki,
7 ára, og Styrmi, 3 ára, í
hjólaferð.
KVEÐJUSKREYTING
Strákarnir kreyttu krítar-
töflurnar vel á belgíska
heimilinu sínu í kveðju-
skyni.
Kosningadagur er ákveðinn hátíðisdagur í huga margra. Áður fyrr
tíðkaðist að fólk klæddi sig upp á þegar það fór að kjósa og svo
voru haldin kaffiboð um daginn og jafnvel haldið á kosningavöku
um kvöldið. Unnur Arngrímsdóttir segir allt verða miklu virðu-
legra ef fólk klæðir sig í betri fötin en að því miður tíðkist það ekki
lengur hjá flestum að gera það. „Foreldrar mínir báru alltaf mikla
virðingu fyrir kjördegi og fóru vel klædd til að kjósa. Það var alltaf
spenna í loftinu því ég veit að þau kusu ekki alltaf það sama,“ segir
hún.
Unnur sjálf segist alltaf fylgjast vel með kosningamálum. „Mín
skoðun er að allir eigi að kjósa og nýta sinn kosningarétt. Hver
og einn þarf að vera búinn að kynna sér um hvað málið snýst og
mynda sér ákveðna skoðun. Ég hlakka alltaf til að fara á kjörstað,
sýna mig og sjá aðra og finna spennuna í loftinu. Þegar ég er komin
í betri fötin á annað borð langar mig að ganga um borgina mína í
fallegu veðri og njóta þess að vera með kosningarétt.“
■ lilja.bjork@365.is
FER Í SPARIFÖTIN
Á KJÖRDAG
Áður fyrr mætti fólk prúðbúið á kjörstað en færri
halda í þá hefð í dag. Unnur Arngrímsdóttir er ein
af þeim sem klæðir sig upp í tilefni kosninga.
GLÆSILEG Unnur Arngrímsdóttir er glæsileg kona. Hún heldur í þá hefð að klæða
sig upp á á kjördag og spóka sig í borginni af því tilefni. MYND/GVA
gríptu
með þ
ér
betra
tyggjó
ÞREFA
LT
gríptu
með þ
ér
betra
tyggjó
ÞREFA
LT
Nýtt Mentos tyggjó FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir