Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 4
30. júní 2012 LAUGARDAGUR4
GENGIÐ 29.06.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,568
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,44 126,04
195,69 196,65
157,79 158,67
21,225 21,349
20,936 21,060
17,974 18,080
1,5770 1,5862
190,26 191,40
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
BRUSSEL, AP Leiðtogar ríkjanna á
Evrusvæðinu hafa komist að sam-
komulagi um lausn á vandræðun-
um með gjaldmiðilinn. Einnig hafa
langtímamarkmið verið sett. Leið-
togarnir funduðu í Brussel í gær.
Leiðtogar evruríkjanna sautján
samþykktu að veita úr björgunar-
sjóðum beint til evrópskra banka í
vandræðum, í stað þess að lána rík-
isstjórnum til að bjarga bönkunum.
Björgunarsjóðir verða einnig
notaðir til að skapa stöðugleika
um evrópsk ríkisskuldabréf. Þau
ríki sem tekið hafa til í ríkisrekstri
sínum geta fengið fé úr björgun-
arsjóðinum án þess að skuldbinda
sig mikið. Evrópuríkin samþykktu
jafnframt að binda fastari hnúta um
fjármál sín, gjaldmiðla og stjórn-
völd. Þannig verður hægt að skapa
nýtt og stærra efnahagslegt sam-
band í framtíðinni.
Ávöxtunarkröfur á ríkisskulda-
bréf Spánverja og Ítala lækkuðu
vegna samkomulagsins í gær.
Þrátt fyrir jákvæð viðbrögð í gær
ríkja enn áhyggjur yfir ástandinu
í Evrópu. Flest úrræðin sem sam-
þykkt voru verða mánuði að taka
gildi og 500 milljarða evra innspýt-
ingin gæti reynst of lítil. - bþh
Samkomulag náðist um lausnir á vandamálum Evruríkja í Brussel í gær:
Bankar fá fé beint úr neyðarsjóðum
MÁLIN RÆDD Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, á tali við Mario Draghi,
bankastjóra Evrópubankans, og Mario
Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
NORDICPHOTOS/AFP
MÓTMÆLT Ungur drengur tók þátt í
mótmælum í Sýrlandi í gær. Hann hafði
málað kinnar sínar í litum andspyrnu-
hreyfingarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
SÝRLAND, AP Hersveitir Assads
Sýrlandsforseta létu sprengj-
um rigna yfir uppreisnarmenn
í úthverfum höfuðborgarinnar
Damascus í gær. Tólf eru sagðir
hafa fallið í sprengjuregninu.
Vikan hefur verið sérlega
blóðug í Sýrlandi, að sögn and-
spyrnumanna. Erfitt er fyrir
blaða- og fréttafólk að henda
reiður á hversu margir hafa
fallið vegna gríðarlegra tak-
markana sem stjórnvöld setja á
fréttaflutning af átökunum.
Tvær andspyrnuhreyfingar
sem taka saman upplýsingar um
mannfall í átökunum segja að
meira en 125 manns hafi fallið
síðasta fimmtudag.
Uppreisnarmenn eru farnir að
sækja í sig veðrið með öflugri
vopnum. Þeim beita þeir í öfl-
ugri andspyrnu gegn stjórnar-
hernum. - bþh
Átökin í Sýrlandi blóðug:
Sprengjuregn í
Damascus
EVE Online kominn til Kína
Íslenski tölvuleikurinn EVE Online
kom út í sérstakri forútgáfu í Kína á
fimmtudag. Útgáfan er liður í sam-
starfi CCP, sem gefur út tölvuleikinn,
og TianCity, eins stærsta framleiðanda
og dreifingaraðila tölvuleikja í Kína.
Almenn útgáfa kemur út síðar á árinu.
VIÐSKIPTI
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
32°
30°
29°
22°
27°
32°
21°
21°
26°
19°
32°
33°
33°
17°
22°
21°
22°
Á MORGUN
víða hægviðri
MÁNUDAGUR
víða hægviðri
7
7
6
810
11
11
14
12
10
4
5
3
3
2
610
4
3
5 4
2
14
13
13
11
10
10
11
13
12
10
KJÖRVEÐUR Sum-
arblíða V-til á land-
inu í dag en svalara
A-til og dálítil
væta. Hægviðri að
mestu alla helgina.
Á morgun verða
skúrir á V-helmingi
landsins en þurrt
A-til. Úrkoma á
V- og N-landi á
mánudag en styttir
upp að mestu fram
á þriðjudag.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
VIÐSKIPTI Modum Energy og sjóð-
ir í rekstri Stefnis, sjóðastýringa-
fyrirtækis í eigu Arion banka,
hafa gert kauptilboð í 66,6 pró-
senta hlut Alterra Power, sem
hét áður Magma Energy, í HS
Orku. Tilboðið er lagt fram í sam-
starfi við Arion banka sem verð-
ur þó ekki beinn eignaraðili gangi
áformin upp. Til stendur að fjölga
í hluthafahópnum gangi
samningsviðræður vel
og stefnt er að því að
skrá HS Orku á hluta-
bréfamarkað ef af kaup-
unum verður.
Unnið hefur verið að
málinu frá því í janú-
ar og búið er að undir-
rita viljayfirlýsingu við
Alterra um að báðir aðil-
ar hafi áhuga á að ganga
frá sölunni. Umfang til-
boðsins fæst ekki upp-
gefið en stefnt er að því
að ljúka kaupunum í síð-
asta lagi í haust. Miðað
við það gengi sem var á
síðustu viðskiptum með
hluti í HS Orku er virði hlutarins
um 28 milljarðar króna.
Modum Energy var stofn-
að í febrúar síðastliðnum. Fyrir
félaginu fara Alexander K. Guð-
mundsson og Eldur Ólafsson. Alex-
ander var forstjóri Geysis Green
Energy, sem var um nokkurt skeið
stærsti eigandi HS Orku, þar til í
janúar 2012. Að sögn hans hefur
verið unnið að hugmyndinni um
að kaupa hlut Alterra síðan þá.
„Hugmyndin fæðist á Íslandi. Við
höfum verið að vinna að þessu
nokkuð lengi. Þetta er upphafið að
ákveðinni vegferð en það er mikil
vinna eftir.“
Kaup Alterra á HS Orku voru á
sínum tíma afar umdeild. Meðal
annars var sett í gang ferli, undir
forystu Steingríms J. Sigfússonar
þáverandi fjármálaráðherra, til að
reyna að tryggja að meirihluti fyr-
irtækisins héldist í opinberri eigu.
Það ferli skilaði þó engri niður-
stöðu og Alterra eignað-
ist það nánast að fullu.
Fyrir rúmu ári var
síðan tilkynnt að Jarð-
varmi slhf., félag fjór-
tán lífeyrissjóða, hefði
keypt 25 prósenta hlut í
HS Orku af Alterra fyrir
8,1 milljarð króna. Kaup-
þing voru gerð á geng-
inu 4,63 krónur á hlut,
sem var nokkuð undir
áætluðu matsvirði HS
Orku. Ástæðan var sú að
Alterra hafði greitt hluta
fjárfestingar sinnar í HS
Orku með aflandskrón-
um og naut Jarðvarmi
þess afsláttar í kaup-
unum. Auk þess fékk Jarðvarmi
kauprétt á nýjum hlutum á geng-
inu 5,35 krónur á hlut. Þann rétt
nýtti félagið sér í febrúar síðast-
liðnum. Jarðvarmi á nú 33,4 pró-
senta hlut og hefur greitt samtals
12,8 milljarða króna fyrir. Miðað
við gengið á síðustu viðskiptum
með bréf í HS Orku er virði þess
hlutar, sem Modus Energy og
Stefnir ætla sér að kaupa, því 27,9
milljarðar króna.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur stjórn Jarðvarma
verið gerð grein fyrir að tilboð-
Íslenskur fjárfestahópur
vill hlut Alterra í HS Orku
Fyrrverandi forstjóri Geysis Green Energy fer fyrir hóp fjárfesta sem vill kaupa 66,6 prósenta hlut Alterra í
HS Orku. Miðað við síðustu viðskipti í HS Orku er virði hlutarins um 28 milljarðar. Stefnt er að skráningu.
KOMINN AFTUR Geysir Green Energy seldi Alterra, sem þá hét Magma, hlut sinn
í HS Orku í maí 2010. Þá var Alexander K. Guðmundsson (annar frá hægri) for-
stjóri Geysis. Hann leiðir nú hóp sem vill kaupa meirihluta í fyrirtækinu af Ross
Beaty (í miðjunni). FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þegar Jarðvarmi slhf. jók við hlut sinn í HS Orku í febrúar síðastliðnum
var það fyrst og síðast gert vegna þess að stjórnendur fyrirtækisins voru
vongóðir um að samkomulag myndi nást við Norðurál um orkusölu til
álvers í Helguvík, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þá var hlutafé HS
orku aukið og var það gert til að búa fyrirtækið undir framkvæmdir sem það
þarf að ráðast í vegna Helguvíkur. Norðurál hefur hug á að byggja álver í
Helguvík í fjórum áföngum. 150 MW af orku þarf í hvern áfanga og Norðurál
hefur lýst því yfir að álverið verði ekki klárað nema búið sé að tryggja orku
fyrir tvo áfanga, alls 300 MW. Viðræður milli Jarðvarma og Norðuráls um
lendingu í málinu hafa staðið yfir um nokkurt skeið.
Álver í Helguvík mun auka virði HS Orku
VERSLUN Verð vörukörfu ASÍ hefur
hækkað í öllum mældum verslun-
um nema Krónunni síðan í mars.
Vörukarfan hækkaði mest í Sam-
kaup-Strax eða um 4,4 prósent.
Karfan hækkaði í öllum versl-
unum um 1,4 til 4,4 prósent. Krón-
an var eina verslunin þar sem
vörukarfan lækkaði í verði, um
0,1 prósent.
Meðal lágvöruverðsverslana
hækkaði verð körfunnar mest í
Bónus eða um 3,2 prósent. Verðið í
Nettó hækkaði um 2,2 prósent.
- bþh
Verðmunur á vörukörfu ASÍ:
Bara Krónan
hefur lækkað
ið hefði verið á leiðinni. Hún er
jákvæð gagnvart því. Jarðvarmi
hefur ítrekað lýst því yfir að vilji
sé til þess hjá eigendum félagsins
að skrá HS Orku á markað. Í til-
kynningu frá Modus-hópnum sem
send var út í gær kom fram sami
vilji til að skrá HS Orku „í kaup-
höll á næstu misserum og mun
almenningi þannig gefast kostur
á að eignast hluti í HS Orku“.
thordur@frettabladid.is
Hugmyndin
fæðist á
Íslandi. Við
höfum verið
að vinna að
þessu nokkuð
lengi.
ALEXANDER K.
GUÐMUNDSSON
FORSVARSMAÐUR
MODUM ENERGY