Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 83
30. júní 2012 LAUGARDAGUR40
lifsstill@frettabladid.is
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Það var fjölmennt er búningageymsla Þjóðleikhússins opn-
aði dyrnar í þeirri von að grynnka á safni sínu fyrir flutn-
inga í sumar. Það kenndi ýmissa grasa í geymslunni og
margir gullmolar sem fengust gefins. Áhugaleikhús lands-
ins voru meðal þeirra sem mættu til að tæma herðatré og
troðfylla poka.
GRAMSAÐ Í
GEYMSLUNNI
BLEIKUR PELS Guðbjört og Linda Björt mátuðu föt fyrir Leik-
félag Reyðarfjarðar.
MEÐ TROÐFULLT FANGIÐ Þessar dömur nældu sér í búninga fyrir Leikfélag Vest-
mannaeyja.
TÆMAST Tóm herðatré í hrúgum.
EINBEITNI Jóakim og Katla úr Sirkus Ísland fundu sitthvað
fallegt.
HAMAGANGUR Margir sáu hag sinn í að kíkja í búninga-
geymsluna.
BLEIKIR SILKIKJÓLAR Það kenndi ýmissa grasa í geymslunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
REYNIR FYRIR SÉR Í LEIKLIST Victoria‘s Secret-fyrirsætan Anne
V fer með hlutverk í kvikmyndinni Lullaby ásamt Amy Adams, Garrett Hed-
lund og Jennifer Hudson. Þetta er fyrsta kvikmyndahlutverk fyrirsætunnar.
G rasið strýkst við sólbrúnt hör-undið á stinnum kroppnum og
þessi ókunnugi maður sem liggur
við hlið þér horfir djúpt í augu þín
er þú grípur um …
Fantasíur eru skemmtilegt fyr-
irbæri. Flestallir fantasera á ein-
hverjum tímapunkti í lífinu en
margir eru hræddir við það, oftar
en ekki af því að þeir halda að
fantasíur og kynferðisleg hegðun
fari saman en svo þarf alls ekki að
vera. Sumar fantasíur eiga heima
í einkarými heilans og þeirra eini
tilgangur er að gera okkur kyn-
ferðislega æst og auðvelda full-
nægingu í kynlífi. Sumar fantasí-
ur langar okkur að framkvæma
en þá er mikilvægt að beita heil-
brigðri skynsemi til að geta greint
á milli þeirra sem hægt er að
framkvæma og þeirra sem er það
ekki. Það er heldur ekki verra að
eiga skilningsríkan og samstarfs-
fúsan bólfélaga.
Fólk fantaserar um alls konar,
bæði vini og kunningja; fyrrver-
andi og núverandi; frægt fólk og
stjórnmálamenn og jafnvel ofur-
hetjur. Fantasían getur gerst hvar
sem er og hvenær sem er. Oftar
en ekki er lagt mikið upp úr lík-
amlegu atgervi elskhugans og
umhverfinu í kring. Þá geta sumar
fantasíur snúið að „einum snögg-
um“ og bólfélaginn verið fleiri
en einn. Ef þig vantar fantasíu
þá mæli ég með að lesa erótíska
smásögu sem æsir þig og gera svo
söguna að þinni í huganum.
Þó fantasíur séu hinn eðlilegasti
hlutur þá virðist fólk eiga erfitt með
að tala um þær, og veistu hvað? Það
er allt í lagi. Fantasíur geta nefni-
lega verið einkamál og ekki eru
þær allar til þess fallnar að deila
með öðrum. Því máttu eiga fjöldann
allan af fantasíum til að verma þér
og það er þitt að velja hvort þú deil-
ir þeim, einni eða öllum, með elsk-
huganum. Þú getur upplifað þig
ögn berskjaldaða þegar þú byrjar
að deila fantasíunni þinni enda ertu
að segja frá hugsunum kynlífslog-
ans og að klæmast. Það getur því
verið ágætt að byrja smátt og þá á
því að segja „dónalegu“ orðin upp-
hátt þegar þið kelið. Byrjaðu á því
að hrósa: „Mér finnst svo gott þegar
þú nuddar/sleikir snípinn.“ Svo til
að kanna hvort stemning sé fyrir
fantasíunni þinni þá getur þú spurt
bólfélagann: „Ég var að hugsa um
(það sem þig langar að prufa), er
það eitthvað sem þú værir til í að
prufa?“ Virkjaðu ímyndunaraflið
og kveiktu á kynlönguninni. Þegar
þú hefur komist yfir þennan hól
halda þér engin bönd.
Fantasíur í kynlífi
EÐLILEGAR
FANTASÍUR Fantasíur
eru eðlilegar og það
þarf ekki að segja frá
þeim öllum.
Nánari dagskrá má finna inn á www.hvolsvöllur.is
Ræsing Reykjavík kl. 7.00
Ræsing Selfoss kl. 8.30
Ræsing Hella kl. 9.30
Fornvélafélag Íslands
verður með hópakstur,
sýningu, vélaleiki og
rúntar með gesti.
Götugrillið verður á sínum stað
Kveikt upp í kolunum kl. 18:00 Takið
daginn frá
Leikir fyrir börnin,
Hjólafærni, Dr. Bæk,
Sveitamarkaðurinn og margt fleira.
Skráning er hafin inn á
www.hvolsvollur.is
Ljósmyndasýning 860+