Fréttablaðið - 30.06.2012, Blaðsíða 6
30. júní 2012 LAUGARDAGUR6
STOFNAÐ 1971
SPEGLALAUS MYNDAVÉL
Olympus EPM1DZKIT
Speglalaus Pen myndavél með 12.3 milljón punkta
upplausn. Tvær M.ZUIKO DIGITAL linsur. 4/3‘’ Live MOS
flaga. 3“ LCD skjár. Super Wave Filter rykhreinsi kerfi.
Tvíþætt hristivörn. Full HD upptaka með steríó hljóði.
Styður SD/SDHC/SDXC kort. HDMI mini og USB tengi.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT REYKJAVÍKURSVÆÐIÐ: Hagkaup, Smáralind. VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi. Hagkaup, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Hrannarbúðin Grundarfirði. Skipavík, Stykkishólmi. VESTFIRÐIR: Verslunin Ranglátur, Tálknafirði. Fjölval, Patreksfirði. Kaupfélag
Steingrímsfjarðar, Drangsnesi. Snerpa Ísafirði. NORÐURLAND: KF Steingrímsfjarðar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. Smárabær, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Valberg, Ólafsfirði. SR Byggingavörur, Siglufirði. Hagkaup, Akureyri. Heimilistæki, Akureyri. Víkurraf,
Húsavík. AUSTURLAND: Tölvulistinn, Egilsstöðum, Kauptún, Vopnafirði. Nettó, Höfn Hornafirði. SUÐURLAND: Mosfell, Hellu. Fossraf, Selfossi. Geisli, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Tölvuþjónusta Benna, Grindavík. Heimilistæki, Reykjanesbæ. Hagkaup, Njarðvík.
TILBOÐ 89.990
LÖGREGLUMÁL Réttargæslumaður
átján ára stúlku sem kærði Egil
Einarsson og unnustu hans fyrir
nauðgun í fyrrahaust segir að sú
niðurstaða ríkissaksóknara að fella
málið niður þýði hvorki að kæra
skjólstæðings hans hafi verið röng
né að ósekju.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
sem réttargæslumaðurinn, Guðjón
Ólafur Jónsson, sendi frá sér í gær.
Í yfirlýsingunni rekur Guðjón
Ólafur nokkur atriði sem bendi til
þess að stúlkan hafi upplifað sam-
skipti sín við Egil þannig að hann
hefði brotið gegn henni.
Í fyrsta lagi hafi hún horfið í
miklum flýti af heimili Egils og
skilið þar eftir flíkur, haft sam-
band við vinkonur sínar og sagt
þeim að sér hefði verið nauðgað.
Staðfest sé að hún hafi þá verið
hágrátandi.
Þá hafi túrtappi verið fjarlægð-
ur úr leggöngum hennar á neyð-
armóttöku og fundist hafi áverk-
ar á kynfærum. Í engu sé vikið að
marblettum á handleggjum stúlk-
unnar í niðurstöðu ríkissaksókn-
ara. Stúlkan kvað þá af völdum
Egils. Enn fremur hafi hún verið
í meðferð hjá sálfræðingi, sem
Réttargæslumaður átján ára stúlku segir hana enga ábyrgð bera á mannorðsmissi Egils Einarssonar:
Kæran gegn Agli hvorki röng né að ósekju
KÆRÐUR Egill Einarsson var kærður fyrir
nauðgun en málið látið niður falla.
FLUGVÉL Samskipti við ómannaðar flug-
vélar sem notaðar eru í hernaðarskyni
eru dulkóðuð en hægt er að ná stjórn á
þeim þrátt fyrir það. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN Bandarískum tölv-
unarfræðingum tókst að hakka
sig inn í stjórnkerfi ómannaðrar
flugvélar af sömu gerð og banda-
ríska leyniþjónustan notar til
loftárása og ná þannig stjórn á
flugvélinni.
Með því tóku vísindamennirnir
áskorun bandaríska heimavarn-
arráðuneytisins, sem hafði heitið
þeim 1.000 bandaríkjadölum sem
gæti hakkað sig inn í stýrikerfi
ómannaðra flugvéla, að því er
segir í frétt BBC.
Talið er mögulegt að sams
konar tölvuárás hafi grandað
ómannaðri flugvél leyniþjónust-
unnar yfir Íran á síðasta ári. - bj
Hakkarar urðu við áskorun:
Náðu stjórn á
ómannaðri vél
NOREGUR Í Buskerud í Noregi hafa
umræður um hvar byggja skuli
nýtt sjúkrahús staðið yfir í 20 ár.
Nú hafa forstöðumenn sjúkrahúss-
ins í Drammen ákveðið að grípa til
þeirrar bráðabirgðalausnar að láta
reisa tveggja hæða hótel með 24
stofum fyrir sjúklinga, samkvæmt
frétt norska ríkisútvarpsins.
Framkvæmdin vegna hótelbygg-
ingarinnar og 70 bílastæða mun
kosta 36 milljónir norskra króna,
jafngildi um 750 milljóna íslenskra
króna. Samkvæmt áætlun á að rífa
bygginguna eftir tíu ár. Bílastæðin
verða einnig fjarlægð þá. -ibs
Deilt um sjúkrahús:
Byggja nýtt og
rífa eftir tíu ár
segi hana bera öll einkenni fórn-
arlamba kynferðisbrota.
„Þrátt fyrir niðurstöðu ríkis-
saksóknara hlýtur það að vera
kærða umhugsunarefni hvers
vegna 18 ára stúlka kýs að leita
beint á Neyðarmóttöku um
miðja nótt eftir samskipti sín við
hann og kæra hann síðar fyrir
kynferðisbrot,“ segir Guðjón
Ólafur. Stúlkan geti hins vegar
enga ábyrgð borið á mögulegum
mannorðsmissi hans. Í þeim
efnum verði Egill að líta í eigin
barm.
- sh
VIÐSKIPTI Farice ehf. hyggst
næstum þrefalda verð á þeirri
þjónustu sem fyrirtækið veitir.
Farice rekur tvo af þremur
sæstrengjum sem tengja Ísland
við umheiminn. Núgildandi
samningur fyrirtæksins við
Símann og Vodafone rennur út í
október.
Nái verðhækkun Farice fram
að ganga þýðir það umtals-
verða hækkun á verðlagningu á
internetþjónustu til neytenda á
Íslandi.
Sævar Freyr Þráinsson, for-
stjóri Símans, segir viðræður
hafa staðið síðan í janúar. Hann
segir þær enn vera í gangi og
að niðurstaða muni liggja fyrir
í sumar.
- bþh
Farice hyggst hækka verð:
Internetverð
mun hækka
SVEITARSTJÓRNIR Innri endurskoð-
un Reykjavíkurborgar ítrekar
athugasemd sína um nauðsyn
þess að settur verði á fót vett-
vangur til umræðu um siðaregl-
ur starfsmanna og borgarfull-
trúa Reykjavíkurborgar. Þetta
kemur fram í svari við fyrir-
spurn Vinstri grænna og Sjálf-
stæðismanna í borgaráði.
Fram kemur að innri endur-
skoðun telji vert að undirstrika
mikilvægi þess að aðilar séu
vakandi yfir mögulegum hags-
munatengslum í störfum sínum
og samskiptum.
Í svarinu segir að reglur um
skráningu fjárhagslegra hags-
muna séu háðar túlkunum. Því
megi velta fyrir sér hvort ferð
borgarfulltrúa Besta flokksins
í jómfrúarferð WOW falli undir
þessi ákvæði eða ekki.
- bþh
Vilja vettvang til umræðu:
Siðareglur háð-
ar túlkunum
SKIPULAGSMÁL Engin bygging
verður rifin niður eða færð til við
Austurvöll og Ingólfstorg, sam-
kvæmt tillögu sem fékk fyrstu
verðlaun í samkeppni um skipu-
lag á svæðinu. Niðurstöður sam-
keppninnar voru kynntar í gær.
Nasa mun áfram standa við
Austurvöll, en samkvæmt vinn-
ingstillögunni mun húsið verða
endurbyggt sem skemmti- og ráð-
stefnusalur.
„Þetta er tillaga sem miðar að
því að byggja markvisst upp í
miðbænum, en á forsendum þeirr-
ar byggðar sem fyrir er án þess
að rífa nokkuð eða færa nokkur
hús. Þannig að öll eldri byggð fær
að vera og njóta sín.
Það sem verður svo byggt nýtt
verður annaðhvort í beinu sam-
hengi við þau hús sem fyrir eru
eða í samhengi við sögu og anda
staðarins,“ segir Páll Hjalta-
son formaður skipulagsráðs og
formaður dómnefndar um nýja
skipulagið.
Páll segir tillöguna vera mikla
verndunartillögu.
„Húsin á Vallarstræti fá að
halda sér og það verður byggt
á milli þeirra. Þar verða skrif-
stofubyggingar og þjónusta. Á
jarðhæðinni á að vera verslun.
Svo er þessi djarfa hugmynd að
endurbyggja á lóð gamla Hótels
Íslands. Þar stóð áður hótel sem
brann árið 1944.“
Páll segir að götumyndin og
götuform muni einnig taka veru-
legum breytingum og verða í lík-
ingu við það sem var í kringum
þarsíðustu aldamót.
„Um leið er verið að endurvekja
gömlu göturnar Vallarstræti og
Veltusund. Þessar götur eru í
dag endagötur í torgi, en verða
aftur að sundum og götum í anda
Fischer sunds og Bröttugötu,“
segir Páll.
Páll segir að næsta skref sé að
eigandi lóðarinnar semji við vinn-
ingshafa um framhald og þróun
tillögunnar. Hann vonast þó eftir
að framkvæmdir geti hafist sem
fyrst.
„Ég myndi óska þess að það
væri hægt að hefja uppbyggingu á
hótelbyggingunni og Vallarstræti
tiltölulega fljótt. En skipulagsmál
eru seinleg og gerast hægt.“
Alls bárust 68 tillögur í hug-
myndasamkeppnina. Fyrstu verð-
laun hlutu ASK arkitektar en höf-
undar vinningstillögunnar voru
arkitektarnir Þorsteinn Helgason
og Gunnar Örn Sigurðsson.
katrin@frettabladid.is
Nasa fær að standa
áfram við Austurvöll
Niðurstöður hugmyndasamkeppni um uppbyggingu í miðborg Reykjavíkur
voru kynntar í gær. Samkvæmt vinningstillögunni verður ekkert hús rifið eða
fært. Nasa mun áfram standa við Austurvöll en verður gjörbreytt frá sem var.
LANDSÍMAREITURINN Gamla gatnakerfið frá þarsíðustu aldamótum verður endur-
vakið með nýja skipulaginu.
KJÖRKASSINN
Ætlar þú að kjósa í forsetakosn-
ingunum á morgun?
JÁ 87,1%
NEI 12,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér Íslendingar ganga
vel um umhverfi sitt?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
Þetta er tillaga sem
miðar að því að
byggja markvisst upp í mið-
bænum.
PÁLL HJALTASON
FORMAÐUR SKIPULAGSRÁÐS