Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2012, Qupperneq 53

Fréttablaðið - 14.07.2012, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR 14. júlí 2012 33 Nanna Gunnarsdóttir útskrifaðist nýlega úr Rose Bruford College of Theatre and Performance í London. Þar nam hún evr- ópsk leikhúsfræði. „Það er aðallega leik- list en við lærum einnig dálítið um leik- stjórn, leikmyndagerð, leikhönnun og fleira sem tengist leikhúsi.“ Aðaláherslan er á nýsköpun og hópavinnu. Á sunnudagskvöld býður Nanna Íslend- ingum að sjá útskriftarverk sitt úr skólan- um. Það ber heitið „Þetta er Brad heimur“ eða á ensku „It‘s a Brad World“. Nanna segist byggja sýninguna á list popplista- mannsins Roy Lichtensteins: „Ég skoða hvernig ég get fært listrænt ferli Lichten- steins yfir á leiksviðið og gert sýningu úr því. Ég notast meðal annars við skugga- myndir. Lichtenstein vann mikið upp úr því sem taldist til lélegrar listar í sam- félaginu og það er það sem ég er búin að vera að gera; skoða lélega list,“ segir hún og hlær. „Sýningin er byggð á popp-kúltúr í sápuóperustíl.“ Titillinn er dálítið sérstakur en hann er einnig vísun í Lichtenstein og teikni- myndamálverk hans. „Næstum því alltaf þegar hann sýnir kvenpersónur í málverk- um sínum sem eru voðalega kvenlegar og ósjálfbjarga, þá er alltaf talað um Brad. Hann er svona staðalímynd karlmannsins sem kemur og bjargar málunum,“ segir Nanna og hlær. Leikararnir sem taka þátt í sýningunni á sunnudaginn eru hinir sömu og léku í verkinu úti í London. Auk þeirra verður einn heiðursgestur. „Já, hann kemur frá Kostaríka,“ segir Nanna og brosir. „Hann er mættur til landsins. Hann fer með stórt hlutverk í sýningunni en segir ekki mikið.“ Nanna hugsaði sýninguna fyrir vini og vandamenn sem höfðu ekki tækifæri til að sjá sýninguna úti í London og einnig fyrir hverja þá sem hafa áhuga á leik- list og nýsköpun í þeim geira. Aðeins ein sýning er á dagskrá á Íslandi en ef það verður mjög góð aðsókn segist hún geta bætt við aukasýningu sama kvöld. Leikar- arnir verða aftur á móti aðeins á landinu í fimm daga og því er tíminn naumur. Leik- sýningin er um það bil hálftími í flutn- ingi og Nanna vonast til að sjá sem flesta í Gaflaraleikhúsinu á sunnudaginn klukkan átta. halla@365.is Byggja á popp-kúltúr í sápuóperustíl NÝÚTSKRIFUÐ Sýning Nönnu og félaga er byggð á popp- kúltúr og er í sápuóperustíl. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ➜ Opið hús 13.00 Bærinn Krókur á Garðaholti í Garðabæ er opinn á sunnudögum í sumar. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Hann er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu á Garða- holti og stutt frá Garðakirkju. Aðgangur er ókeypis. ➜ Leikrit 20.00 Verkið Brad World eða Brad Heimur verður sýnt í Gaflaraleikhúsinu. Verkið er útskriftarverk Nönnu Gunnars úr Rose Bruford College of Theatre and Performance í London. Fögnuður verður haldin á Faktorý á Smiðjustíg að sýningu lokinni. ➜ Tónlist 14.00 Magnús Einarsson, Karl Pétur Smith og Tómas Tómasson leika tónlist úr ýmsum áttum á veitingastaðnum Víkinni, Sjóminjasafninu Grandagarði 8. Leikið verður úti á sólpallinum ef veður leyfir og aðgangseyrir er enginn. 16.00 Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari spila Bach, Tchaikovsky og Chausson á Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er kr. 1.000. 16.00 Andrea Jónsdóttir leikur lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. 17.00 Kári Þormar, organisti Dómkirkj- unnar í Reykjavík, spilar á tónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgríms- kirkju. Fjölbreytt efnisskrá og miðaverð kr. 2.500. Frítt er fyrir Listavini. ➜ Leiðsögn 13.00 Sigurjón Pétursson sér um leiðsögn á ensku um ljósmyndasýningu sína, Aðventa á Fjöllum, í Þjóðminja- safni Íslands. Aðgangur er ókeypis. 14.00 Farið verður með leiðsögn um uppgraftarsvæðið á Alþingisreit í miðbæ Reykjavíkur. Lagt verður af stað frá Aðal- stræti framan við Landnámssýninguna. 14.00 Sigurjón Pétursson leiðir gesti um ljósmyndasýningu sína, Aðventa á Fjöllum, í Þjóðminjasafni Íslands. Aðgangur er ókeypis. ➜ Markaðir 17.00 Arnar Eggert Thoroddsen, tón- listarmógúll, selur vínylplötur og geisla- diska í garðinum að Auðarstræti 13. Um 10.000 gripir af öllum toga og verð frá 100 krónum upp í 500 krónur. Opið til 17. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. „Þetta gel er bara snilld! Ég hef notað það í mörg ár, bæði eitt og líka blandað við Make Up. Húðin fær aukinn ljóma. Elska þetta gel og nota það daglega. Mæli algjölega með því!“ Ásdís Oddgeirsdóttir „Þetta er vara sem er alveg ómissandi. Hef alltaf verið í vand- ræðum með að nota meik því ég er með svo þurra húð. Eftir að ég kynntist Sensai Bronzing gelinu var öllu mínu meiki hent og nota ég gelið eingöngu og á hverjum degi. Þetta er sko mitt uppáhalds.“ Guðrún Viðarsdóttir „Bronzing gelið frá Kanebo er án efa ein mesta snilldar uppfinning í húðvörum sem framleidd hefur verið fyrir konur og karla. Það er göldrum líkast því þetta hefur svo margslungna eiginleika s.s. þetta „Natural Glow“, raka, fallegan lit og hæfi- lega þekju. Yfir sumartímann er þetta nóg eitt og sér og yfir veturinn er þetta „lifesaver“ fyrir okkur þegar húðin er orðin föl og litlaus. Einn af mörgum kostum er að gelið smitast ekki í föt og þess vegna er óhætt að setja það á háls og bringu. Segi það og skrifa, get ekki verið án þess. Love it! “ Sif Davíðsdóttir „Bronzing gelið er ómissandi eins og maskarinn! Gefur full- kominn lit og er svo léttur farði á húðina. Mér líður allavega ekki eins og ég sé með grímu eins og oft þegar ég reyni að setja á mig meik! Mér finnst húðin alltaf í góðu jafnvægi því gelið gefur svo mikinn raka. Það er nauðsynlegt þegar maður til dæmis flýgur mikið eins og ég, þar sem ég vinn sem flugfreyja á sumrin og bý í Noregi og flakka mikið á milli til Íslands.“ Birna Ósk Sigurbjartsdóttir Sensai Bronzing gelið frá Kanebo er framleitt úr 70% vatni og hinu einstaka Koishimaru silki. Það sveipar húðina frískandi raka og gegnsæjum lit sem heldur húðinni rakri og geislandi fallegri. BRONZING GEL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.