Fréttablaðið - 02.08.2012, Page 32
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR32
„Við ætlum að einbeita okkur að leiklist og öll börn sem koma
til okkar taka þátt,“ segir Hildur Lilja Jónsdóttir, leikskóla-
stjóri Leiklistarleikskólans Laufskála í Grafarvogi. Fjöldi
leikskóla nýtir listgreinina í kennslu en Hildur segir þau
vilja taka þetta á annað stig. „Verkefnið heitir Leiklistarleik-
skóli og við áætlum okkur tvö ár. Það er frá vorönn 2012 til
vorannar 2014 til að máta okkur áður en þetta fer inn í nám-
skrána.“
„Hjá mannfólkinu er nauðsynlegt að geta lifað sig inn í
ímyndaðar aðstæður líkt og börn gera gjarnan og læra í
gegnum leik. Þetta viljum við virkja,“ segir Hildur um áform
leikskólans. Hún segir skólann ekki stefna á að útskrifa leik-
ara framtíðar heldur efla málörvun og félagsfærni. „Þú þarft
bæði að bíða eftir að röðin komi að þér, taka tillit til félagans
og sem áhorfandi þarftu að sýna þeim sem stendur á sviðinu
virðingu. Svo er þetta fyndið og börnin hlæja með einhverj-
um sem þau hafa ekki hlegið með og skapa ný vináttutengsl,“
segir hún.
Hugmyndin fékk byr undir báða vængi skömmu eftir að
Hildur hóf störf sem leikskólastjóri í september í fyrra. „Það
var unnið mjög gott starf hér sem við erum ekkert að breyta
heldur bæta við. Starfsmannahópurinn spurði mig hvort ég
hefði nýjar hugmyndir og þá viðraði ég þessa, sem ég hef
gengið með lengi í maganum, og henni var tekið svona vel,“
segir hún. „Allir voru mjög jákvæðir og vildu hrinda þessu
í framkvæmd en það sem skiptir máli í svona verkefni er
jákvætt og opið hugarfar.“
Hafið var að innleiða leiklist í nám skólans í janúar og er
lagt upp með að setja upp fimm stærri sviðsatriði á ári. Allan
veturinn eru börnin látin koma fram en ekki endar vinnan
alltaf á sýningu. Í sumar hélt leikskólinn þemaviku þar sem
börnin léku á útisviði og nýttu náttúruna. „Við notum ekki
aðeins okkur sjálf heldur erum við með brúðuleikhús og
skuggaleikhús,“ segir hún og ræðir að spuni sé nýttur í bland
við tilbúin handrit, sögur og ævintýri en einkar vinsælt er að
leika ævintýri sem börnin þekkja.
Enginn leikaramenntaður kennari starfar við skólann en
Hildur segir nám og reynslu starfsfólksins nýtast vel. „Ég
hef ekki reynslu af leiklist sem fullorðin heldur úr æsku og
bý vel að henni sem manneskja.“ hallfridur@frettabladid.is
timamot@frettabladid.is
BJÖRN BRYNJÚLFUR BJÖRNSSON kvikmyndagerðarmaður á afmæli í dag.
„Kreppan í dag er bara barnaleikur miðað við 18. öldina.“
56
HILDUR JÓNSDÓTTIR: STÝRIR FYRSTA
ÍSLENSKA LEIKLISTARLEIKSKÓLANUM
LÆRA Í LEIK
LEIKLISTARLEIKSKÓLI Hildur Lilja Jónsdóttir er leikskólastjóri leik-
skólans Laufskála. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Elskulegur eiginmaður minn,
SVERRIR BJARNASON
lést þann 24. júlí á Hjúkrunarheimilinu Mörk.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Guðbjörg Jóhannsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS ÓLAFSSON
skipasmíðameistari frá Skagaströnd,
lést þann 23. júlí á Heilbrigðisstofnuninni
á Blönduósi. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna. Við þökkum öllu því
heilbrigðisstarfsfólki sem hlúði að honum í
veikindum hans. Blessuð sé minning hans.
Sigþrúður og fjölskylda
Hulda og fjölskylda
Ólafur og fjölskylda
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ANNA MAGNÚSDÓTTIR
frá Múlakoti í Lundarreykjadal,
síðast til heimilis að Blesastöðum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi þriðjudaginn 31. júlí. Útför hennar
verður gerð frá Hrunakirkju laugardaginn
4. ágúst kl. 11.00.
Anna Björk Matthíasdóttir Guðmundur Magnússon
Steinar Matthíasson Margrét Jóhannsdóttir
Magnús Matthíasson Þórdís Elísdóttir
Sigríður Matthíasdóttir Þorleifur Magnús Magnússon
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN BERENT SIGURÐSSON
fv. flugumferðarstjóri,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
þann 27. júlí sl. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju fimmtudaginn 9. ágúst
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Flugbjörgunarsveitina eða Karítas.
Ingunn Sigurðardóttir
Sigrún Þorsteinsdóttir Ólafur Sigurðsson
Jón Ólafur Þorsteinsson
Þorsteinn Ingi Kristjánsson
Kristín Eva Kristjánsdóttir
Arnar Berent Sigrúnarson
Katla Dimmey Þorsteinsdóttir
Daníel Berent Rink
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
ELÍN SIGRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR
Borgarbraut 65a, Borgarnesi,
áður til heimilis að Hvassafelli,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju
fimmtudaginn 9. ágúst kl. 11.00.
Gísli Þorsteinsson
Þorsteinn Gíslason Anna Bryndís Sigurðardóttir
Sigurlaug Gísladóttir
Ingibjörg María Gísladóttir
og barnabörn.
HALLDÓR JÓNSSON
ökukennari
frá Ísafirði,
lést af slysförum sunnudaginn 29. júlí.
Kveðjuathöfn verður haldin í Fossvogs-
kapellu fimmtudaginn 2. ágúst kl. 15.00.
Jarðsett verður frá Ísafjarðarkirkju
föstudaginn 10. ágúst kl. 14.00.
Sasiprapha Udomsup
Ása Sigurlaug Halldórsdóttir Einar Óskarsson
Einar Halldórsson
Gunnar Þorsteinn Halldórsson
Fríður María Halldórsdóttir Þórður Marelsson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
FJÓLA ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Laufási, Vestmannaeyjum,
Karfavogi 23,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík
hinn 31. júlí.
Gísli B. Björnsson Lena Margrét Rist
Martha Clara Björnsson Gunnar Már Hauksson
Ásta Kristín Björnsson Sverrir Guðmundsson
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
AUÐUR PÉTURSDÓTTIR
Mýrarási 3,
lést á deild 11E á Landspítalanum við
Hringbraut mánudaginn 30. júlí.
Ríkharður Sverrisson
Pétur Kristmanns Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir
Ríkharður B. Ríkharðsson
Margrét Ríkharðsdóttir
Guðlaugur Geir Kristmanns
Ríkharður Kristmanns
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR
Hörðukór 5, Kópavogi,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn
29. júlí. Jarðsett verður frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
8. ágúst klukkan 13.00.
Ólafur Þórðarson Sólveig Kristbjörg Vagnsdóttir
Ragnar Pétursson
Hlín Pétursdóttir Guðjón Rafnsson
Arnar, Elmar, Ylfa Nótt, Orri Hrafn, Jakob og Hlynur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir
afi og langafi,
GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON
verkfræðingur,
lést föstudaginn 27. júlí á Droplaugar-
stöðum. Útförin fer fram frá Neskirkju
fimmtudaginn 2. ágúst kl. 13.00.
Sigþrúður Guðmundsdóttir Birgir Guðjónsson
Kristján Guðmundsson Auður Andrésdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
HJÖRTUR HJARTARSON
fyrrverandi sóknarprestur,
Hlíðarvegi 11, Kópavogi,
lést á Landspítalanum v/Hringbraut 26. júlí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju,
þriðjudaginn 7. ágúst kl. 13.00.
Unnur Axelsdóttir
Stefanía Hjartardóttir
Sveinn Hjörtur Hjartarson Sigurveig H. Sigurðardóttir
Þórunn Ingibjörg Hjartardóttir Sveinn B. Larsson
Axel Garðar Hjartarson Rannveig Sigurðardóttir
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
LEIFUR JÓNSSON
Burknavöllum 21, Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild LSH föstudaginn
27. júlí. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði fimmtudaginn 9. ágúst kl. 15.00.
Svala Markúsdóttir
Markús B. Leifsson Karen Erna Ellertsdóttir
Egill Hrafn Markússon
Sonja Leifsdóttir Sveinn Ómar Kristinsson
Ragnhildur Laufey Sveinsdóttir
Ástkær móðir mín tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞORBJÖRG PÁLSDÓTTIR
Hjúkrunarheimilinu Mörk, Reykjavík,
áður Nýbýlavegi 48, Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk þann 29. júlí.
Hún verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 8. ágúst kl. 13.00. Sérstakar
þakkir fær starfsfólk á Hjúkrunarheimilinu Mörk
í Reykjavík fyrir góða umönnun.
Jóhann H. Jónsson Erla Stefánsdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn.