Fréttablaðið - 02.08.2012, Síða 34
FÓLK|FATAHREINSUN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
■ Aldrei skyldi reyna að nudda bletti úr viðkvæmum fatnaði. Það
getur skemmt efnið og skilið eftir sig enn verri blett. Þerrið að-
eins blettinn og komið flíkinni sem fyrst í hreinsun.
■ Hellið ekki hvítvíni eða salti á rauðvínblett. Þetta gerir starfsfólki
fatahreinsana bara erfiðara fyrir og getur jafnvel orðið til þess að
bletturinn náist ekki úr.
■ Þegar farið er með föt í hreinsun ætti alltaf að benda starfsfólki
fatahreinsunarinnar á bletti því þeir eru meðhöndlaðir sérstak-
lega. Annars gætu þeir farið fram hjá starfsfólkinu.
■ Hátískufatnaður er oft framleiddur úr afar viðkvæmum efnum
og skyldi varast að setja á sig svitalyktareyði og ilmvatn eftir
að farið er í slíkan fatnað. Berið svitalyktareyðinn á áður en
farið er í fötin og leyfið honum að þorna. Annars er hætt við að
fatnaðurinn skemmist.
■ Það er ekki hægt að ná öllum blettum úr fötum. Sum efni eru
þannig að liturinn dofnar ef svæðið er mikið meðhöndlað. Því
lengur sem dregst að fara með óhreina flík í hreinsun því meiri
líkur eru á að erfitt sé að ná blettum úr.
BENDIÐ Á BLETTINA
Ekki er mælt með því að hella hvítvíni eða salti á
rauðvínsbletti líkt og margir halda. Best er að fara
með fötin beint í hreinsun.
Fatahreinsunin Snögg hefur þjónað Reykvíkingum í rúmlega 45 ár og hefur alla tíð verið staðsett í
verslunarkjarnanum Suðurveri, Stiga-
hlíð 45-47. Persónuleg þjónusta hefur
alla tíð verið einkenni hennar enda
er viðskiptavinurinn ætíð í forgrunni,
segir Jónína Shipp, framkvæmdastjóri
fatahreinsunarinnar. „Eigendurnir vinna
á gólfinu og eru í nánu sambandi við
viðskiptavini sína alla daga. Við erum
með gott gæðaeftirlit sem skiptir miklu
máli enda erum við oft að hreinsa uppá-
haldsflíkur viðskiptavina sem jafnvel
kosta mikla fjármuni. Það er því óhætt
að segja að við séum með puttana í
nánast flestum verkefnum og reynum
þannig að fylgja öllu eftir. Þannig sjáum
við til þess að allir viðskiptavinir okkar
séu glaðir og ánægðir.“
Jónína segir Snögg veita alhliða
hreinsunarþjónustu varðandi fatnað en
auk þess hreinsa þau ýmislegt annað
eins og rúmteppi, gardínur, sængur og
svefnpoka. „Síðan hefur færst mjög í
vöxt skyrtuþvottur undanfarin ár sem
karlmenn nýta sér mjög mikið enda
þægileg og góð þjónusta.“
Undanfarin ár hefur Snögg veitt
mörgum fyrirtækjum þá þjónustu að
sækja óhrein föt frá starfsmönnum,
hreinsa þau og skila þeim aftur til baka
til fyrirtækjanna. „Þessi þjónusta hefur
vaxið mikið hjá okkur og mælst mjög
vel fyrir. Það mætti þó vera meiri vakn-
ing meðal fólks því þegar viðskipta-
vinir kynnast þessari þjónustu þá er
vart snúið aftur. Þannig eru flíkurnar
sóttar í vinnuna í stað þess að renna
við hjá okkur eftir vinnu þegar tíminn
er naumur. Þessi þjónusta á við allt sem
við tökum að okkur, svo sem jakkaföt,
skyrtur, kjóla, rúmteppi og fleira.“
Fatahreinsun hefur verið stunduð
í fjölskyldu Jónínu í marga áratugi.
Langafi hennar stofnaði efnalaugina
Úðafoss árið 1933. Móðir hennar rak
einnig fatahreinsun og síðar meir
Jónína og systir hennar. „Það má segja
að fatahreinsun sé í ættinni. Það er eitt-
hvað sem fær okkur til að hreinsa fyrir
aðra og þjóna öðru fólki. Þekkingin og
þjónustulundin er eitthvað sem við
erum alin upp við frá blautu barns-
beini.“
Snögg er opin alla virka daga frá kl. 8
til 18. Jónína segir marga nýta sér fyrstu
klukkustund dagsins til að koma með föt
í hreinsun. „Við bjóðumst líka til þess
að koma heim til fólks og taka niður og
setja upp gardínur ef fólk treystir sér
ekki til þess. Liðlegheitin eru framar
öllu hjá okkur og það skilar sér langt.“
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á
Facebook-síðu fatahreinsunarinnar.
LIÐLEGHEITIN ERU
FRAMAR ÖLLU
SNÖGG FATAHREINSUN KYNNIR Persónuleg og góð þjónusta er einkenni
fatahreinsunarinnar Snögg. Fyrirtækið veitir alhliða hreinsunarþjónustu.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
„Eigendurnir vinna á
gólfinu og eru í nánu
sambandi við viðskipta-
vini sína alla daga,“
segir Jónína Shipp fram-
kvæmdastjóri.
MYND/DANÍEL
OPNUNARTÍMI
Fatahreinsunin
Snögg er staðsett
í verslunarkjarn-
anum Suðurveri í
Reykjavík.
Opið er alla virka
daga milli kl. 8-18.
Nú á dögum eru margar þvotta-vélar með sérstaka stillingu fyrir viðkvæman þvott.
Margir freistast því til að skella
hvaða flík sem er í vélina og spara
sér þannig ferð í fatahreinsun. Engu
að síður gerast mistökin enn og því
er ágætt að meta það hverju sinni
hvort áhættan sé þess virði.
Hver hefur ekki heyrt söguna um
Stubb og stóru bræðurna Pétur og
Óla? Þeir eldri fengu nýjar flíkur sem
fóru í þvottavélina og pössuðu þá
bara á hann litla Stubb. Foreldrar
þeirra hefðu kannski átt að splæsa í
hreinsun í þetta skiptið.
■ Flíkur sem hafa tilfinningalegt gildi
eða kostuðu morð fjár ættu ekki
að fara í þvottavélina, ef ekki er
víst að þær þoli það. Brúðarkjólar,
smóking og þjóðbúningar ættu
aldrei að veltast um í vélinni enda
líklega ekki í stöðugri notkun.
Það er vel þess virði að greiða
fyrir hreinsun á þessum hátíðar-
klæðnaði.
■ Það sama gildir um ullarjakka og
vetrarkápur. Þegar að því kemur
að þessar flíkur þurfa þvott er
skynsamlegra að láta fagmenn í
efnalaugum sjá um hreinsunina.
Nema auðvitað þið eigið lítinn
Stubb sem langar í ullarkápu.
■ Silkiföt ættu alltaf að fara í hreins-
un nema ef ykkur er annaðhvort
sama um fötin eða vitið nákvæm-
lega hvað þið eruð að gera. Silkiföt
eru yfirleitt dýr svo gott er að
hugsa vel um hvað skal gera.
■ Ullarfatnaður er vandmeðfarinn
í þvotti. Ef þið eruð ekki viss um
hvernig á að bera sig að skuluð
þið leita ykkur hjálpar eða fara
með flíkina í hreinsun. Ull þæfist
gjarnan í þvottavélinni.
■ Föt sem keypt eru notuð eru oft
ekki með þvottamiða. Chanel-
dragtir skuluð þið bara setja beint
í fatahreinsun en bómullarboli er
örugglega í lagi að skutla í þvotta-
vélina með blandaða þvottinum.
■ Vart þarf að minnast á skinn
og feld en þetta ætti aldrei að
laumast í þvottavélina undir
neinum kringumstæðum.
■ Einhverjir hugsa þá með sér að
lausnin sé einfaldlega að þvo ofur-
viðkvæman þvott í höndunum
og taka þannig enga áhættu. En
athugið að handþvottur getur
reynst vandasamur. Oft er erfitt
að ná þvottaefninu úr fötunum og
þau safna þá gjarnan í sig stöðu-
orku og límast við líkamann þegar
þau hafa þornað.
■ Þegar allt kemur til alls er best að
meta hvert tilvik fyrir sig, reikna
dæmið út frá hvað flíkin kostaði
og hvaða tilfinningagildi hún
hefur. Er áhættan þess virði?
■ halla@365.is
VAFASAMIR GESTIR Í ÞVOTTAVÉLINA
HUGSIÐ YKKUR TVISVAR UM Vissulega þola margar flíkur að fara í þvottavél þrátt fyrir að mælt sé með að fara með hana í
hreinsun. Vert er þó að hugsa sig vel um áður en nýju kasmírpeysunni er skellt í vélina ásamt skítugu sokkunum.
LÁN Í ÓLÁNI
Stubbur datt aldeilis
í lukkupottinn þegar
mamma hans setti ný
föt eldri bræðranna í
þvottavélina.
VERÐMÆTUR HÁ-
TÍÐARKLÆÐNAÐUR
Handsaumaður hátíðar-
klæðnaður er afar verð-
mætur og ætti aldrei
að fara í þvottavél.
Kjólföt og smókingar
eru ekki í stöðugri
notkun og vel þess
virði að greiða fyrir
hreinsun á þessum
flíkum þegar þess
þarf.