Fréttablaðið - 02.08.2012, Síða 54
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR46
bio@frettabladid.is
46
Killer Joe var frumsýnd
í kvikmyndahúsum í gær.
Myndin skartar Matthew
McConaughey í aðalhlut-
verki og er frá leikstjóra
The Exorcist.
Spennumyndin Killer Joe skartar
Emile Hirsch, Matthew McCo-
naughey og Juno Temple í aðalhlut-
verkum og segir frá Chris Smith
sem ræður leigumorðingja til að
myrða móður sína svo hann komist
yfir líftryggingu hennar.
Chris skuldar glæpa manninum
Digger Soames háar fjárhæðir
og getur ekki greitt skuldir sínar.
Hann ákveður því að ráða lögreglu-
manninn og leigu morðingjann
Killer Joe Cooper til að myrða
móður sína svo hann komist yfir
líftryggingu hennar. Chris hefur
þó ekki heldur efni á að greiða
Killer Joe fyrirframgreiðsluna
sem Joe setur sem skilyrði og verða
þeir ásáttir um að Joe taki Dottie,
systur Chris, í gíslingu sem eins
konar tryggingu fyrir að upphæðin
verði greidd að verkinu loknu. Með
Joe og Dottie tekst þó undarleg vin-
átta og verður lögreglu maðurinn
Illt ráðabrugg smákrimma
LEGGJA Á RÁÐIN Emile Hirsch og Matthew McConaughey í hlutverkum sínum sem smákrimminn Chris Smith og leigumorðing-
inn Killer Joe Cooper.
■ Matthew McConaughey lék í fjórum kvikmyndum sem koma út á þessu
ári og í tveimur sem frumsýndar verða á næsta ári. Hann lék meðal
annars í myndunum The Paperboy, Mud, Magic Mike og True Detectives
sem komu út í Bandaríkjunum í ár. Næsta ár koma myndirnar The Dallas
Buyer‘s Clu og Thunder Run út.
■ McConaughey er hrifinn af því að ganga um berfættur og tekur gjarnan
að sér hlutverk þar sem hann fær að vera skólaus.
■ Leikstjórinn William Friedkin sá kvikmyndina Citizen Kane eftir Orson
Welles þegar hann var strákur og vakti hún áhuga hans á kvikmyndagerð.
■ Friedkin hlaut heimsfrægð í kjölfar The French Connection sem sló í gegn
árið 1971 og skartaði meðal annars Gene Hackman og Fernando Rey.
VILL HELST VERA BERFÆTTUR
Jason Statham og James Franco
munu að öllum líkindum leiða
saman hesta sína í kvikmyndinni
Homefront sem byggð er á hand-
riti Sylvester Stallone.
Framleiðslufyrirtækið Millenni-
um Films mun framleiða mynd-
ina ásamt Stallone og mun Gary
Flender leikstýra verkinu. Home-
front segir frá fyrrum fíkniefna-
lögreglumanni sem leikinn er af
Statham, sem ákveður að segja
skilið við fyrra líferni og taka
því rólega. Hann flyst í bæ þar
sem stórglæpamaðurinn Gator,
leikinn af Franco, heldur til og
brátt færist hiti í leikinn.
Flender hefur áður leikstýrt
kvikmyndum á borð við Runaway
Jury og Things to Do in Denver
When You‘re Dead. Franco og
Statham hafa báðir verið iðnir við
kolann undanfarið og mun Stat-
ham einnig hafa tekið að sér hlut-
verk í Expendables 2, Parker og
Hummingbird sem allar eru vænt-
anlegar innan skamms. Franco fer
með hlutverk í Oz: The Great And
Powerful, The Iceman, Lovelace
og Spring Breakers.
Statham og Franco leika saman
ÁFRAM Í HASARNUM Jason Statham fer með hlutverk í kvikmynd byggðri á handriti
eftir Sylvester Stallone. James Franco leikur á móti honum. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Emma Stone fer með
hlutverk í næstu kvikmynd leik-
stjórans Cameron Crowe. Stone
er önnum kafin um þessar
mundir og mun leika í kvikmynd
Crowe áður en hún fer í tökur á
framhaldsmynd The Amazing
Spiderman.
Crowe er þekktur fyrir að
leikstýra fallegum og ljúfum
kvikmyndum á borð við Jerry
Maguire, Almost Famous og We
Bought a Zoo. Hann leikstýrði
einnig myndunum Vanilla Sky
og Elizabethtown sem skartaði
Orlando Bloom og Kirsten Dunst
í forgrunni.
Stone sló í gegn í kvik myndinni
Superbad og hefur á síðustu
árum fest sig í sessi sem ein vin-
sælasta leikkona Bandaríkjanna
enda er hún með eindæmum geð-
þekk og skemmtileg.
Vinsæl leikkona
VINSÆL Emma Stone mun leika í
næstu kvikmynd leikstjórans Cameron
Crowe. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Rashida Jones skrifar
handritið og fer með annað aðal-
hlutverkið í rómantísku gam-
anmyndinni Celeste and Jesse
Forever. Mótleikari hennar er
gamanleikarinn Andy Samberg
og Lee Toland Krieger leikstýrir
myndinni.
Jones, sem skrifaði handritið
ásamt Will McCormack, segist
hafa sótt innblásturinn til vina
sinna sem hafa margir verið í
samböndum frá unglingsaldri
og eiga erfitt með að skilja við
æskuástina. „Þetta var nánast
eins og menningarlegt fyrir-
bæri. Fólk kynnist í mennta-
skóla og trúir því að það muni
eyða ævinni saman. En svo tekur
lífið við og fólk breytist en maður
getur ekki hugsað sér að hætta
saman,“ sagði Jones um kjarna
myndarinnar.
Sótti innblásturinn
til vinapara sinna
SKRIFAÐI HANDRIT Rashida Jones
skrifaði handritið og leikur aðalhlut-
verkið í gamanmyndinni Celeste and
Jesse Forever. NORDICPHOTOS/GETTY
eins konar draumaprins fyrir Dot-
tie. Á meðan virðist ráðabrugg
Chris þó ætla úr böndunum verði
ekki tíman lega í taumana gripið.
Leikstjóri myndarinnar er
William Friedkin sem er líklega
þekktastur fyrir kvikmyndirn-
ar The French Connection, The
Exorcist og Rules Of Engagement.
Hann vann handrit myndarinnar
í samstarfi við leikskáldið Tracy
Letts, en myndin er byggð á sam-
nefndu leikriti Letts frá árinu 1993.
Þeir höfðu áður unnið saman við
gerð hrollvekjunnar Bug sem kom
út 2009 og er byggð á samnefndu
leikverki Letts. Killer Joe hefur
fengið ágæta dóma og voru 75 pró-
sent ritaðra ummæla á vefsíðunni
Rottentomatoes.com góð.
Matthew McConaughey þykir
standa sig vel sem ógeðfelldur
sadisti með herramannslegt yfir-
bragð og vilja sumir meina að þetta
sé besti leikur hans til þessa. Aðrir
gagnrýnendur segja söguþráðinn
missa marks og að persónurnar
séu lítið annað en lágkúrulegar og
að myndin sé í besta falli drama-
tískari og lengri útgáfa af sjón-
varpsþættinum The Jerry Sprin-
ger Show. sara@frettabladid.is
EFTIRLÝSTUR Leikarinn Cuba Gooding Jr. er eftirlýstur af lögreglunni í New Orleans eftir að hafa kýlt
barþjón tvisvar í andlitið. Atvikið átti sér stað snemma á þriðjudagsmorgni. Konan sem varð fyrir árásinni segir
Gooding Jr. hafa veist að henni þegar hún bað hann um að róa sig niður eftir rifrildi við aðdáanda.
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS