Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 2
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR2
DÓMSMÁL Par sem ákært er fyrir
að skipuleggja inn flutning á
tæpu kílói af kókaíni til landsins
í þremur hlutum játaði hluta
sakarinnar við þingfestingu
ákærunnar í Héraðsdómi Reykja-
ness í gær.
Miklir fagnaðarfundir urðu
með parinu þegar það náði saman
í dómsalnum og kysstist það inni-
lega og ítrekað á meðan beðið var
eftir dómaranum. Konan situr
í varðhaldi í Kvennafangelsinu
í Kópavogi en manninum var
nýverið sleppt úr varðhaldi og
hann úrskurðaður í farbann.
Konan, Giovanna Soffía Gabrí-
ella Spanó, játaði að hafa fengið
móður sína til að flytja hingað
570 grömm af kókaíni sem falið
var í ferðatösku. Móðirin er ekki
ákærð í málinu. Konan neitar
aftur á móti að bera ábyrgð á
innflutningi á 350 grömmum af
kókaíni frá Spáni og tilraun til að
smygla 140 grömmum frá Dan-
mörku.
Maðurinn, Magnús Björn Har-
aldsson, játar sök í síðastnefnda
liðnum en neitar hinum tveimur.
Burðardýrin í Spánarmálinu
mættu ekki í héraðsdóm í gær.
Steinar Aubertsson, sem var
eftirlýstur vegna málsins og
var handtekinn í Hollandi fyrir
tveimur vikum, er væntan legur
til landsins á næstunni. Búist
er við að þá verði gefin út fram-
haldsákæra á hendur honum og
honum þannig bætt inn í málið.
- sh
Fagnaðarfundir urðu með ákærðu pari í Héraðsdómi Reykjaness í gær:
Kossaflens í eins kílós kókaínmáli
ÚR DÓMSSAL Parið ýmist neitaði eða játaði sök eftir ákæruliðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Guðmundur Páll Ólafsson,
náttúrufræðingur og rithöf-
undur, er látinn. Hann var 71
árs, fæddur
2. júní 1941.
Guðmund-
ur lærði
meðal ann-
ars köfun,
myndlist og
líffræði og
lauk B.Sc.
gráðu frá
ríkisháskól-
anum í Ohio.
Seinna lærði hann bæði ljós-
myndun og sjávarlíffræði í
Stokkhólmi. Þá stundaði hann
listnám í Ohio.
Hann starfaði sem skóla-
stjóri og kennari á ferli sínum.
Hann starfaði jafnframt við
köfun, trésmíðar, veiðar,
hönnun og teikningar. Þá
starfaði hann í seinni tíð sem
rithöfundur, náttúru fræðingur
og ljósmyndari. Hann hlaut
íslensku bókmenntaverðlaunin
fyrir bókina Hálendið í nátt-
úru Íslands, og var einnig til-
nefndur til verðlaunanna fyrir
Perlur í náttúru Íslands og
Ströndin í náttúru Íslands.
Guðmundur
Páll látinn
GUÐMUNDUR PÁLL
ÓLAFSSON
MENNING Bænastarf múslíma hefst
í Ými um helgina, en Menningar-
setur múslíma á Íslandi er þar
með aðstöðu. Karlakór Reykja-
víkur reisti Ými, en fjárfestar
keyptu það fyrir nokkru á um 270
milljónir.
Í fréttum Stöðvar 2 kom fram
að fjárfestarnir hefðu verið gagn-
rýndir fyrir að þiggja fjárstyrki
frá Sádi-Arabíu. Þeim hefur verið
brigslað um tengsl við hryðju-
verkasamtök. Formaður íslamskra
fjárfesta á Íslandi, Hussein Alda-
oudi, sagði við fréttastofu Stöðvar
2 að hann vildi sýna hlutlaust og
íslenskt íslam. „Boð skapur minn
til þeirra sem hafa efasemdir um
mig er að ég vil bara þjóna samfé-
laginu, annað ekki.“ - kóp
Ýmir fær nýtt hlutverk:
Bænastarf hefst
um helgina
ÝMISHÚSIÐ Menningarsetur múslíma á
Íslandi er með aðstöðu í húsinu.
SVÍÞJÓÐ Konum með spilafíkn
fjölgar í Svíþjóð, samkvæmt nýrri
könnun sænsku lýðheilsustofnun-
arinnar. Konur eru nú helmingur
nýrra spilafíkla. Algengast er
að konur á aldrinum 45 til 64 ára
glími við vanda vegna spilafíknar.
Fram kemur í sænskum fjöl-
miðlum að þar sem konur séu oft
einar við spil sé meiri hætta á að
þær missi tökin. Tegund spila-
mennskunnar skiptir einnig
máli. Hættan á að verða spila-
fíkill er sögð mikil ef spilað er í
spila kössum og vissum spilum á
netinu. Áfengisvandi er einnig
áhættuþáttur. Þeim sem drekka
mikið er hættara við að verða
spilafíklar. - ibs
Ný könnun í Svíþjóð:
Fleiri konur
háðar spilum
SJÁVARÚTVEGUR Síldarvinnslan í Neskaupstað
(SVN) hefur undirritað kaupsamning um kaup
á útgerðarfélaginu Bergi-Hugin í Vestmann a-
eyjum. Kaupverðið er trúnaðarmál, en kaupin
eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Bergur-Huginn var í eigu Magnúsar Krist-
jánssonar, útgerðarmanns í Eyjum. Í yfir-
lýsingu frá honum segir að með sölunni ljúki
útgerðarsögu hans, sem staðið hafi óslitið
síðustu fjörutíu ár í Vestmanneyjum.
Bergur-Huginn gerir út tvo togbáta og hefur
yfir að ráða aflaheimildum sem nema tæpum
5.000 þorskígildistonnum. Hjá félaginu starfa
35 manns, flestir til sjós, en fyrirtækið rekur
ekki landvinnslu. Fyrir á SVN tvo togbáta.
Gunnþór Ingvason, fram-
kvæmdastjóri SVN, segir að
einu skipi af fjórum verði
lagt í hagræðingarskyni.
„Við teljum að við þurfum
að fækka um skip í hagræð-
ingarskyni til að fá það út
úr rekstrinum sem þarf til
að borga af skuldbindingum
og auknum álögum. Veiði-
leyfagjald mun hækka og
það er aukin krafa á okkur
um aukna hagræðingu til að geta staðið undir
skuldbindingum.“
Gunnþór segir lítið hægt að segja á þessu
stigi um hvaða áhrif kaupin hafi á starfsemina
í Eyjum. „Fyrirtækið Bergur-Huginn verður
rekið áfram sem fyrirtæki í útgerð í Vest-
mannaeyjum.“ - kóp
Síldarvinnslan í Neskaupstað kaupir Berg-Hugin í Vestmannaeyjum:
Einu skipi verður lagt í hagræðingarskyni
BERGEY Eftir kaupin á Síldarvinnslan fjögur skip, þar
með talið Bergey. Fækkað verður um eitt skip.
MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
GUNNÞÓR
INGVASON
BANDARÍKIN Ríkisútgjöld Banda-
ríkjanna hafa aukist um 1,4%
undir stjórn Baracks Obama. Það
er minnsta aukning á einu kjör-
tímabili nokkurs forseta síðan
Eisenhower lét af störfum árið
1961. Þetta kemur fram í Forbes.
Til samanburðar jukust
útgjöldin hjá George W. Bush um
7,3% á fyrra kjörtímabili og 8,1%
á því síðara og hjá Ronald Reagan
um 8,7% á fyrra kjörtímabili og
4,9% á því síðara. - kóp
Sparsamur Obama:
Minnsta eyðslu-
aukning frá ‘61
SPURNING DAGSINS
blús djass sönglögpopp
Er hægt að týna sér í þessum
fræðum?
„Já, en það ber ríkan ávöxt.“
Sveinn Rúnar Hauksson læknir er mikill
áhugamaður um ber og nýtingu þeirra.
Hann segir að stöku frostnætur bindi ekki
enda á berjavertíðina eins og margur
heldur.
REYKJAVÍKURBORG „Það verður for-
vitnilegt að sjá hvað kemur þarna
upp úr,“ segir Bjarni Brynjólfs-
son, upplýsingastjóri Reykjavíkur-
borgar, um söfnunarbauk sem
verið hefur í Höfða í sumar.
Reykjavíkurborg ákvað í vor
að opna Höfða fyrir almenningi
sem, frá því 5. júní í sumar, hefur
getað skoðað sig um í húsinu alla
virka daga milli klukkan ellefu og
fjögur.
„Ef við hefðum farið að inn-
heimta aðgangseyri þá hefði það
kostað heilan starfsmann sem
hefði þurft að vera þarna og
taka við honum,“ útskýrir Bjarni
ástæðu þess að ákveðið var að
sleppa gestum við að borga sig
inn en setja þess í stað upp bauk
fyrir frjáls framlög til að fá fé upp
í kostnað.
Síðasti dagur sumaropnunar-
innar er í dag. Höfði verður
opnaður klukkan ellefu að venju en
búast má við að húsinu verði lokað
fyrr en venjulega, jafnvel strax
klukkan eitt, vegna móttöku sem
þar verður eftir hádegi.
„Aðsóknin hefur verið góð,”
segir Bjarni um reynsluna af
sumaropnuninni. Hann upplýsir
að gestir hafi verið taldir í sumar
og að verið sé að taka saman þær
tölur. Jafnframt verði söfnunar-
baukurinn nú opnaður í fyrsta sinn
frá því í sumarbyrjun og talið upp
úr honum. Um er að ræða gamlan
farmiða- og fargjaldsbauk frá
Strætó. „Þeir hjá Strætó eru með
lykilinn og munu koma og opna
baukinn með viðhöfn.“
Sumaropnunin í Höfða var rædd
á síðasta fundi menningar- og
ferðamálaráðs borgarinnar. Fram
kom að jafnframt því að almenn-
ingur hefði getað skoðað húsið
hefði verið sýning á efri hæð um
byggingu Höfða og sögu norskra
húsa á Íslandi. Þá hafi í mörg ár
verið ljósmyndasýning á neðstu
hæð um leiðtogafundinn í Höfða
í október 1986. „Opnun hússins
í sumar hefur gengið afar vel og
er stefnt að því að opna það fyrir
almenningi aftur næsta sumar,“
segir menningar- og ferðamálaráð.
Áhugasamir hafa því tækifæri
til að skoða Höfða til klukkan um
það bil eitt í dag og hugsanlega
setja pening í baukinn áður en
húsið verður þeim lokað fram á
næsta sumar. gar@frettabladid.is
Peningum safnað í
strætóbauk í Höfða
Sumaropnun fyrir almenning í Höfða lýkur í dag. Til að hafa upp í kostnað
hefur verið óskað eftir frjálsum framlögum gesta í stað þess að að innheimta
aðgangseyri. Notaður er gamall farmiðabaukur frá Strætó sem geymir lykilinn.
SAFNAST ÞEGAR SAMAN KEMUR Gestir í Höfða sýnast hafa verið örlátir í sumar og
bæði íslenskir seðlar og erlendir streymt í farmiðabaukinn sem Strætó lagði til fyrir
frjáls framlög. Mikilvægt þykir að peningar séu sýnilegir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þeir hjá Strætó eru
með lykilinn og munu
koma og opna baukinn með
viðhöfn.
BJARNI BRYNJÓLFSSON
UPPLÝSINGASTJÓRI REYKJAVÍKURBORGAR