Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 8
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR8 ... og rjómi H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -1 6 7 4 SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli íslenskra skipa var tæp 1.149 þúsund tonn á síðasta ári. Það er aukning um 85 þúsund tonn frá árinu 2010, sem jafngildir átta prósentum. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Verðmæti aflans jókst um 15,7% frá 2010 og nam tæpum 154 milljörðum í fyrra. Þá er ótalið verðmæti aukaafurða sem falla til við fiskvinnslu, sem var 3,7 milljarðar í fyrra og hafði aukist um 15,8% frá 2010. Uppsjávarafli nam um 61,3% af heildaraflanum, botnfiskafli 35,2%, flatfiskafli 2% og afli skel- og krabbadýra tæpu einu prósenti. - þj Fiskveiðar á síðasta ári: Heildaraflinn jókst um 8% Á SJÓ Mesta aukningin á síðasta ári var í loðnuafla. Þrefalt meira veiddist af loðnu en árið 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR NEYTENDUR Mjólkurbúið Kú er fyrsta vinnslustöðin á Íslandi sem uppfyllir reglur um fram- leiðslu á lífrænum ostum. Vottunar stofan Tún afhenti Kú vottorðið formlega í gær. Með vottuninni er staðfest að innihald og framleiðslan byggi á lífrænum hráefnum, sem haldið er aðgreindum frá öðrum hrá- efnum á öllum stigum. Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri segir mikilvægt að fyrirtæki svari sívaxandi eftirspurn eftir lífrænum afurðum. Kú hóf fram- leiðslu árið 2010 og framleiðir nú átta tegundir af mygluostum. - sv Fær lífræna vottun frá Túni: Kú framleiðir nú lífræna osta DANMÖRK Stríð um tolla er í upp- siglingu milli Danmerkur og Noregs, að því er segir á frétta- vefnum Business.dk. Norðmenn hækkuðu án viðvör- unar tolla á blóminu hortensíu um 72 prósent í júlí sem kemur sér illa fyrir danska garðyrkju- bændur. Viðskiptaráðherra Danmerkur hótar að fjalla um málið á vett- vangi Evrópusambandsins á þeirri forsendu að verndarstefna Norðmanna sé að aukast þrátt fyrir loforð um hið gagnstæða. Ráðherrann, Pia Olsen Dyhr, hefur rætt við norska ráðherra án árangurs. Norskir bændur eru einnig sagðir hafa reynt að fá settan sérstakan toll á osta upp á 262 prósent. - ibs Verndarstefnan aukin: Stríð um tolla í uppsiglingu 1 Hvað á stór hluti leikskólakenn- ara að hafa lokið háskólaprófi samkvæmt lögum? 2 Eftir hvern er ljóðabókin Eldhús ömmu Rún? 3 Hvernig fór leikur FH-ÍBV? SVÖR 1. 2/3, 2. Sigmund Erni Rúnarsson, 3. 2-0 fyrir FH VEISTU SVARIÐ? BYGGÐAMÁL Með því að skilgreina Akureyri sem borg yrði hlutverk hennar og ábyrgð skýrari gagnvart ríkinu og öðrum sveitarfélögum. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, stjórnarformaður Byggðastofnunar. Engin ákvæði eru í lögum sem til- greina hvaða skilyrði bæjarfélag þarf að uppfylla til að fá borgartitil. Þóroddur sendi bæjarfulltrúum Akureyrarbæjar nýverið fyrirspurn um álit þeirra á þessari mögulegu breytingu. „Þetta gæti einfaldað ákveðin mál, til dæmis innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Þóroddur. „Þetta mundi skýra betur þjónustuhlutverk sjúkra hússins í samhengi við hvernig heilbrigðis- kerfi á að byggja upp sem er nógu stórt fyrir landshlutann.“ Gagnvart ríkinu segir Þóroddur að borgartitill gæti skýrt hví Akureyri fær hluti sem önnur bæjarfélög fá ekki sem og ábyrgðarhlutverk hennar vegna þess. Engin fordæmi eru fyrir þessu hér á landi og telur Þóroddur að nóg sé að bæjaryfirvöld ákveði að breyta skilgreiningunni. „Ef þau lýsa því yfir að bærinn verði borg frá ára- mótum, þá verður það bara þannig.“ Reykjavík var skilgreind sem borg árið 1962, en þá voru íbúarnir um 75 þúsund. Akureyri er fjórði stærsti bær landsins, með átján þúsund íbúa, og sá stærsti utan höfuðborgar- svæðisins. Íbúafjöldi Kópavogs er næstmestur á eftir Reykjavík, en þar búa rúmlega 31 þúsund íbúar. Ný- verið kom sú hugmynd upp að Kópa- vogur yrði skilgreindur sem borg í ljósi íbúafjöldans. Þóroddur segir það ekki duga til. „Kópavogur getur verið öflugt og gott samfélag, en hefur ekki mikið þjónustuhlutverk út fyrir bæjar- mörkin,“ segir hann. „Reykjavík er lítil í alþjóðlegu samhengi, en sinnir því sem hún á að sinna sem höfuð- borg. Því verður Kópavogur aldrei borg, sama hvað hann er stór.“ Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjar- stjóri á Akureyri, kallar málið orða- leik. „Mér finnst þetta ekki skipta neinu máli,“ segir hann. „Vissulega er eðlilegt að hugmyndin komi upp og hún rædd, en okkur hefur liðið ágæt- lega sem bær í 150 ár og líður senni- lega ágætlega í önnur eins.“ Akureyri vikublað greindi frá því í gær að Jón Gnarr borgarstjóri, sem staddur var á Akureyri í tilefni afmælishátíðar bæjarins, hefði tekið afar vel í hugmyndina. „Mér finnst það löngu tímabært að Akureyri breytist úr bæ í borg og styð það heils hugar,“ sagði borgarstjórinn. sunna@frettabladid.is Akureyrarborg fengi skýrara hlutverk gagnvart ríkinu Ef Akureyri yrði skilgreind sem borg yrði hlutverk hennar skýrara gagnvart ríkinu, segir stjórnarformaður Byggðastofnunar. Ekkert í lögum sem skilgreinir slíkt. Skiptir engu máli, segir bæjarstjóri. ÚR BÆ Í BORG? Bæjarstjóra Akureyrar finnst ekki skipta nokkru máli hvort Akureyri er bær eða borg. MYND/RAGNAR HÓLM RAGNARSSON Akureyrarbær varð 150 ára á miðvikudag og var mikið um dýrðir í bænum þann dag. Formlegri afmælishátíð lýkur á sunnudag, en afmælisnefnd bæjarins hefur skipulagt hátíðarhöld í einhverri mynd út allt árið. Sigríður Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri afmælisársins, segir ótrúlegt hversu margir hafi komið að hátíðarhöldunum. „Það er gríðarlegur fjöldi fólks sem leggur fram mikla sjálfboðavinnu í tilefni afmælisins,“ segir Sigríður. „Og við erum auðvitað afskaplega ánægð með hvernig þetta hefur gengið.“ Afmælisnefndin fékk þrjátíu milljónir til umráða fyrir allt árið og segir Sigríður allt líta út fyrir að kostnaður muni haldast innan þess ramma. 30 milljónir fyrir árslanga afmælisveislu Ef þau lýsa því yfir að bærinn verði borg frá áramótum þá verður það bara þannig. ÞÓRODDUR BJARNASON STJÓRNARFORMAÐUR BYGGÐASTOFNUNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.