Fréttablaðið - 31.08.2012, Side 26

Fréttablaðið - 31.08.2012, Side 26
26 31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR Í efnahagsmálum er nánast sama hvaða þætti við mælum, flest er mælt út frá svonefndri landsframleiðslu. Það er mæli- kvarði yfir allt sem framleitt er í landinu á einu ári. Fyrir Sam- einuðu þjóðirnar halda AGS og Alþjóðabankinn sérstaka skrá um landsframleiðslu allra hundr- að níutíu og tveggja aðildarlanda þeirra. Stjórnvöld hvers lands þurfa að gefa margvíslegar upp- lýsingar um rekstrarmál hvers þjóðfélags, sem svo er unnið í skrá sem framangreindar stofn- anir sjá um að halda utan um. Nokkrar útfærslur eru á þess- ari skrá. Í skránni yfir kaupmátt- arjöfnuð eru Bandaríkin í 1. sæti. Kína í 2. sæti, Japan í 3. sæti, Þjóðverjar í 5. sæti, Bretland í 6. sæti, Noregur í 42. sæti og Dan- mörk í 43. sæti. Segja má að öll lönd sem við berum okkur venju- lega saman við séu í einhverju af 50 fyrstu sætunum. Ísland er hins vegar í sæti 137. Við erum þar á eftir Níger í 134. sæti, Malí í 129. sæti, Haíti í 126. sæti. Kúba er mikið ofar eða í 88. sæti og Kenía í 87. sæti, Angóla 85. sæti, Úganda 76. sæti, Gana 73. sæti, Líbía 67. sæti, Sýrland 64. sæti, Súdan 61. sæti. Hvað veldur því að Ísland flokkast meðal þessara landa, sem við berum okkur aldrei saman við? Þegar litið er til annarrar sam- hliða skráningar, mælingar á landsframleiðslu á mann, reynist Lúxemborg vera í 1. sæti, Nor- egur í 2. sæti, Bandaríkin í 3. sæti. Þar er Ísland í 6. sæti. Hvað getur valdið því að þjóð sem er með 6. mestu landsframleiðslu á mann, skuli vera í 137. sæti í mælingunni um kaupmáttarjöfn- uð? Af mælingunni þar sem Ísland er í 137. sæti, má nokkuð lesa út hvernig tekjur þjóðarbúsins streyma um þjóðfélagið. Hvort þær dreifast eðlilega um allar greinar samfélagsins. Hvern- ig nýting fjármagnsins er, hve marga hringi þjóðartekjurnar fara um fjármálaæðakerfi þjóð- félagsins, áður en þær fara aftur úr landi sem greiðsla fyrir inn- flutning eða aðra gjaldeyris- notkun. Þegar grannt er skoðað virðast mörg sömu einkenni vera í þjóð- félagi okkar, sem einkenna þau lönd sem eru á svipuðum stað og við í flokkun Sameinuðu þjóðanna á kaupmáttarjöfnuði landsfram- leiðslu. Engin sjáanleg stefna er hjá stjórnvöldum um að starf- rækt séu í landinu framleiðslu- fyrirtæki er sinni sem fjölbreytt- ustum þörfum þjóðfélagsins. Afleiðingar þess eru að Ísland er svo háð innflutningi að yfirleitt duga gjaldeyristekjur okkar ekki fyrir öllu sem flutt er inn. Af því leiðir að engin raunveruleg aukn- ing verður í landinu á eigin fjár- magni í umferð, til að auka starf- semi eða bæta lífsgæði. Ísland er að vísu með 6. mestu framleiðslu á mann, en hin lönd- in í kringum okkur í kaupmátt- arskránni, eru öll mikið neðar í mælingu á landsframleiðslu á mann. Þau ríki eiga það hins vegar sameiginlegt með Íslandi, að stéttir stjórnmála- og emb- ættismanna virðast ekki skilja mikilvægi þess að láta fjármagn samfélagsins hríslast sem jafn- ast um allar greinar þjóðlífs- ins og gæta þess að tryggja að í landinu sé ævinlega nægt veltu- fjármagn til alls reksturs sam- félagsins. Samnefnari virðist því í þessum löndum um elítuhegð- un, spillingu og auðssöfnun yfir- stéttanna. Við skerum okkur verulega frá hinum, með því að taka að láni erlendis það fjármagn sem til þarf til að leika þann almenna lífsstíl þeirra samfélaga sem við viljum bera okkur saman við. Eins og að framan sagði, eyðum við jafnharðan öllum gjaldeyris- tekjum sem við öflum. Það þýðir í raun að við stækkum þjóðar- köku okkar ekkert með sjálfs- aflafé. Öll stækkun er annað- hvort tilkomin vegna erlendra lána eða vegna gengisfellingar krónunnar. Raunveruleikinn er sá að sjálfsprottinn varanlegur hagvöxtur er enginn; einungis blekkingar til að láta almenning halda að efnahagsmálum sé vel stjórnað. Ég velti oft fyrir mér hvort enginn hagfræðingur sé í land- inu sem þori að setja hagsmuni samfélagsins framar hagsmun- um peningaaflanna. Áherslur undanfarinna áratuga á aukna þenslu útgjalda eru komnar svo langt út fyrir nýmyndun verð- mæta að óhjákvæmilegt er að mikil fjármunagildi tapist nú og á næstu árum. Engin ný verðmætamyndun er til, eða í vændum, sem fjármagnað getur greiðslu allra þeirra lána sem þarf að greiða. Það þarf bæði kjark og þekk- ingu til að komast heill út úr stór- viðri, hvort sem er til lands eða sjávar. Stórviðri á pólitíska vísu eru ekki betri. Sá sem á að fara fyrir hópi við slík tækifæri, en þorir ekki, eða kann ekki, að tak- ast á við erfiðleikana, hann fórn- ar ekki bara sjálfum sér, hann fórnar líka þeim sem hann átti að gæta. Þjóðin þarf að átta sig á að framtíðarheill hennar veltur á því að fólk komi niður úr skýja- borgunum og horfist í augu við raunveruleikann. Læri að skilja hann og vera ánægt með það sem við höfum, svo ekki verði þörf á að taka að láni erlenda peninga til að byggja skýjaborgir. Ísland meðal þróunarlanda? Efnahagsmál Guðbjörn Jónsson fv. ráðgjafi Öll stækkun er annað hvort tilkomin vegna erlendra lána, eða vegna gengis- fellingar krónunnar. Raunveruleikinn er sá að sjálfsprottinn varanlegur hagvöxtur er enginn; einungis blekkingar til að láta almenning halda að efnahagsmálum sé vel stjórnað. Að læsa dyrum Það er sérkennilegt en um leið sorglegt að fylgjast með enn einni tilraun andstæðinga aðild- ar Íslands að Evrópusamband- inu að stoppa ferli viðræðnanna. Þegar Alþingi samþykkti á lýð- ræðislegan hátt að hefja þessa vegferð þá litu margir á þetta sem einn möguleika af mörgum til að koma okkur út úr þeim vandræðum sem efnahagshrun- ið haustið 2008 olli okkur. Hvort það tekst á eftir að koma í ljós enda ekki búið að klára þessar viðræður. Síendurteknar full- yrðingar nei-sinna að ekki sé um neitt að semja eiga alls ekki við rök að styðjast enda höfum við Evrópusinnar margoft bent á dæmi um sérlausnir í aðildar- samningum annarra landa. Hvers vegna má ekki ganga þennan veg til enda og láta síðan þjóðina útkljá málið á lýðræðis- legan hátt? Eru andstæðingar aðildar ef til vill hræddir um að eitthvað jákvætt komi út úr ferlinu? Tímabundnir efnahagsörð- ugleikar í nokkrum ríkjum Evrópusambandsins eru not- aðir sem röksemd fyrir því að draga þurfi umsóknina til baka. Ákveðnir fjölmiðlar reyna markvisst að draga upp dóms- dagsmynd af ástandinu í Evr- ópu og reyna að koma því inn hjá landsmönnum að Evrópu- sambandið sé að hruni komið. Samt geta þessir sömu aðilar ekki svarað þeirri spurningu af hverju Evrópusambandið semur við Landhelgisgæsluna um eftirlit á Miðjarðarhafi, er á góðri leið með að skipuleggja næstu kynslóð rannsóknar- og menntaáætlana fram til ársins 2020, tekur virkan þátt í aðgerð- um gegn gróðurhúsalofttegund- um og er á vissan hátt í fram- varðasveit þeirra stofnana sem berjast gegn mansali og alþjóð- legri hryðjuverkastarfsemi. Hljómar þetta eins og félags- skapur sem er að fara að leggja upp laupana? Með þessu er ekki verið að gera lítið úr þeim miklu vand- ræðum sem nokkur ríki í Evr- ópu glíma við. En slíkir örðug- leikar eru ekki einskorðaðir við ríki Evrópusambandsins. Mörg ríki innan og utan Evrópu eiga við mikla efnahagsörðugleika að etja. Einnig má benda á að ýmis ríki Bandaríkjanna eru á viss- an hátt gjaldþrota. Svarið hjá nánast öllum þessum ríkjum er ekki að hlaupa hvert í sína átt- ina heldur reyna þau að leysa úr sínum vandræðum með sam- vinnu en ekki sundrung. Deilum Íslendinga við nokk- ur nágrannaríki okkar vegna makrílveiða hefur einnig verið beitt sem röksemd í þessari innilokunaráráttu. Vert er þó að benda á að deilan stendur einna mest við Noreg og ekki eru þeir í Evrópusambandinu! Að vísu eru Írar og svo Danir fyrir hönd Færeyinga aðilar að deilunni og þess vegna blandast ESB í málið. Deilan stendur því alls ekki við Evrópusambandið í heild sinni heldur tvö af aðildar- löndum þess. Samsæriskenning- ar um að Evrópusambandið sé á einhvern hátt í heilögu stríði við Ísland eiga því ekki nokkra stoð í veruleikanum. Og óháð aðildarviðræðunum þá þyrftum við hvort sem er að útkljá þetta deilumál á ásættanlegan hátt fyrir alla aðila. Það hentar hins vegar skamm- tíma þjóðernisöfgapólitíkusum að þyrla upp moldviðri í kring- um þetta mál og blása það upp sem allsherjarsamsæri ESB gagnvart Íslandi. Staðreyndin er hins vegar sú að aðildarvið- ræður Evrópusambandsins við umsóknarríki eru sjaldan línu- legt ferli. Nánast alltaf koma upp einhver mál sem hægja á ferlinu og báðir aðilar þurfa að hugsa upp viðeigandi lausn- ir. Dæmi um slíkar sérlausnir eru til dæmis skilgreiningar á „heimskautalandbúnaði” og „háfjallalandbúnaði” sem voru útbúnar þegar Finnar, Svíar og Austurríkismenn gengu í ESB árið 1995. Einnig má benda á landamæradeilur Slóvena og Króata sem töfðu aðildarvið- ræðurnar við Króatíu í næstum því heilt ár. Í stað þess að reyna að þvæl- ast fyrir aðildarviðræðunum og leggja stein í götu samninga- nefndar Íslands við nánast hvert einasta skref ættu stjórnmála- menn og flokkar að sameinast um að klára þetta mál með sóma. Allir aðilar eru sammála um að íslenska þjóðin muni eiga síðasta orðið í þessu máli. Af hverju að loka og læsa dyrunum þegar ekki er ljóst hvort þessi leið geti aðstoðað okkur til að komast út úr þeim vandræðum sem hrunið árið 2008 kom okkur í? ESB-aðild Andrés Pétursson formaður Evrópusamtakanna Í stað þess að reyna að þvælast fyrir að- ildarviðræðunum og leggja stein í götu samninganefndar Íslands við nánast hvert einasta skref ættu stjórnmálamenn og flokkar að sameinast um að klára þetta mál með sóma. AF NETINU Hroki og furðutal útvegsmanns Guðmundur Kristjánsson í Brimi fer mikinn í viðtali við Útvegsblaðið. Hann segir tal þeirra sem gagnrýna skipan sjávarútvegsmála byggjast á öfund, lýðskrumi og fávisku, svo nokkuð sé nefnt. Hann segir sjávarút- veg vera vel rekinn og farinn að skila hagnaði núna. Því sé fásinna að breyta nokkru. Hann nefnir þó ekki að nærri 50% gengisfelling krónunnar frá 2007 til 2009 hafi bætt afkomu útgerðarinnar stórlega. Það er sama gengis- fellingin og rýrði kaupmátt ráðstöfunartekna heimilanna um 28% að meðaltali frá 2008 til 2010. Hagnaður útvegsmanna var tap heimilanna. Vel rekinn sjávarútvegur, sagði hann? Útvegsmenn juku skuldir sjávar- útvegsfyrirtækja um nálægt 500 milljarða á áratugnum fram að hruni, en fjárfestu í greininni fyrir rétt um 90 milljarða. Hin gríðarlega aukna skuldsetning fór sem sagt að mestu í annað en endurnýjun greinarinnar, t.d. fjárfestingu í öðrum greinum, eignabrask hér og erlendis. Það þýðir væntanlega að gríðarlegt fé hafi verið dregið út úr greininni en skuldir skildar eftir. Er það góður rekstur? http://blog.pressan.is/stefano/ Stefán Ólafsson TVÆR FLOTTAR Næturóskin fjallar um rótlausa nútímakonu sem er alveg viss um að lífið sem hún lifir geti ekki orðið betra. En er það rétt? Flöskuskeyti frá P er af mörgum talin magnaðasta saga Jussis Adler-Olsen. Hún hlaut Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan árið 2010. 2.299,- KYNNINGAR- VERÐ 2.699,- 2.299,- KYNNINGAR- VERÐ 2.699,- Gildir til 10. september eða á meðan birgðir endast.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.