Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 42
8 • LÍFIÐ 31. ÁGÚST 2012
úðlega er farið með dýrin, þá sér-
staklega með hænur og svín. Með-
ferðin á þeim er svo svakaleg og
ég hvet fólk til að kynna sér þetta
sjálft. Sem dæmi má finna bændur
sem eru með landnámshænur, þar
sem hænurnar ganga um frjálsar og
verpa í hreiður. Ég kaupi mín egg
frá þeim í stað þess að styðja við
illa meðferð á dýrum þar sem verk-
smiðjubúskap er beitt.
Framakona og móðir
Nú rekur þú stórt fyrirtæki, Bað-
húsið . Hvernig er að vera móðir
samhliða rekstri? Tekur þú til að
mynda vinnuna með þér heim og
hver er lykillinn að góðu jafnvægi
samhliða framkvæmdastjórastöð-
unni? Ég stofnaði Baðhúsið 25 ára
gömul, fór frá því um tíma meðan
ég bjó í Kanada en hef aftur tekið
við stjórnartaumunum hér og er eini
eigandinn. Hjá mér starfa um 35-40
manns. Ég er svo heppin að fá að
vinna við áhugamál mitt og það er
sannarlega mikils virði. Þar að auki
vinnur hér svo gott og skemmtilegt
fólk þannig að það er oft gaman hjá
okkur og mikið grínað. Já, ég tek
vinnuna með mér heim á kvöldin og
í raun um helgar líka þar sem opið
er hjá okkur sjö daga vikunnar. En
það er ekki hringt í mig á kvöldin
og um helgar nema brýna nauðsyn
beri til þannig að ég stjórna þessu
mikið sjálf.
Hvað leggur þú áherslu á fyrir
konurnar sem æfa hjá þér? Hvaða
kröfur hafa þær um líkamsrækt?
Kröfurnar eru misjafnar eftir aldri
og getu hverrar og einnar. Við
leggjum áherslu á að hafa úr valið
fjölbreytt þannig að allar konur
óháð aldri og getu, geti fundið
skemmtilega heilsurækt við sitt
hæfi. Við erum til að mynda með
afró, heitt-jógatóning, sálar-
spinning, 80´s dansveislu, body
pump, body combat og lengi
mætti áfram telja. Við erum
með mjög mikið af fjölbreytt-
um nýjungum og það verður
gaman hjá okkur í vetur. Vegna
fjölda áskorana ákvað ég að
bjóða konum upp á lífsstíls-
ráðgjöf. Þetta verður einka-
ráðgjöf, þar sem komið verð-
ur inn á hreyfingu, heilsu, og
útlit.
Lífið fékk alvöru tilgang
Ef við snúum okkur að
móður hlutverkinu. Hvað
gefur það þér – hefur það
breytt þér á einhvern hátt og
hvernig þá? Það hefur breytt
mér mikið. Lífið fékk alvöru til-
gang við það að fá Ísabellu inn
í líf mitt. Þetta hlutverk á vel
við mig og svo er það auð vitað
það allra best launaða, að fá ást
og umhyggju frá barninu sínu er
engu líkt.
Hvar líður þér best? Mér líður
best heima hjá mér í rólegheit-
unum og á kósíkvöldum okkar
mæðgna en auðvitað finnst mér
líka gaman að hitta vini mína og
borða góðan mat. Það á líka mjög
vel við mig að vera úti í heimi,
ferðast og njóta lífsins lystisemda
enda vön því og mér finnst það afar
Framhald af síðu 7
Mér líður best
heima hjá mér
í rólegheit-
unum og á
kósíkvöldum
okkar mæðgna
en auðvitað
finnst mér líka
gaman að hitta
vini mína og
borða góðan
mat.
Góðar vinkonur Linda og Filippía Elísdóttir leikmynda- og búningahönnuður.
MYND/KJARTAN MÁR MAGNÚSSON
Ég hef breytt l
ífsstíl mínum til
muna
síðastliðin tvö á
r eða svo og m
eð því fæst
betra útlit og líð
an.
-WU SHU ART
HAUSTSKRÁNING
HAFIN
KUNG FU
FYRIR BÖRN
OG UNGLINGA
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
-WU SHU ARTKynning Opið hús á laugardaginn