Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 40
6 • LÍFIÐ 31. ÁGÚST 2012 Þú lítur stórkostlega vel út Linda! Hvað gerðir þú eiginlega? Takk fyrir það. Ég hef breytt lífsstíl mínum til muna síðastliðin tvö ár eða svo og með því fæst betra útlit og líðan. Ég er dugleg að æfa, sem ég geri 3-5 sinnum í viku, og hef tamið mér holl- ara mataræði og borða mun meira af grænni fæðu. Sem dæmi fæ ég mér flesta morgna grænmetis drykk, sem mér fannst ægilega vondur til að byrja með, en hann hefur vanist mjög vel og nú bíð ég eftir að fá hann á morgnana. Enda líður mér svo vel af honum. Ég er sátt og ánægð með lífið, reyni að hugsa jákvætt og trúa á það góða og fer þannig í gegnum daginn. Ætli þetta hjálpist ekki allt að. Óhugnanleg upplifun Þú sagðir á Facebook-síðunni þinni frá fríinu ykkar mæðgna fyrr á þessu ári þegar þið mæðgur forðuðuð ykkur upp á efsta hluta á eyju í Taí- landi og biðuð átekta eftir að gefin var út flóðbylgjuviðvörun. Viltu lýsa fyrir okkur hvernig þessi reynsla var og hvernig áhrif hún hafði á þig og þína sýn á lífið og að ekki sé minnst á fallegu stúlkuna þína? Þetta var upplifun sem ég óska engum að ganga í gegnum. Þetta var ógurlega sérstakt allt saman. Við mæðgur vorum í fríi í Taílandi síðastliðna páska og vorum á leið út í bát á seinasta degi okkar, búnar að pakka og á leið út á flugvöll þegar okkur var snúið við og maður skildi bara að kallað var „tsunami, tsunami!“. Við hlið okkar voru eldri hjón, bresk, sem buðu okkur að koma með sér upp á þeirra herbergi þar sem við vorum búnar að skila af okkur her- berginu okkar. Vissulega var ég mjög hrædd þar sem við biðum í rafmagnsleysinu við magn- aða tónlist himinsins, þar sem þrumur og eldingar létu heldur betur í sér heyra. Við máttum alveg eins eiga von á því að vera að bíða eftir dauðanum og hver mínúta var heil eilífð. Lítið var um að skilaboðum væri komið til okkar sem biðum ótta slegin eftir því sem verða vildi, en fengum þó að vita eftir nokkurra klukku- tíma bið að von væri á 5-6 metra háum öldum eftir um þrjátíu mín- útur. Það var óhugnan legur tími. Við vorum föst þarna og ekki hægt að komast af staðnum sem við vorum á nema með bát. Bak við hótelið voru aðeins háir klett- ar sem ekki var hægt að klifra upp í. Mikill dýravinur Dýravernd er þér hjartans mál. Hvað leggur þú af mörkum þegar kemur að því að hjálpa dýrum á Íslandi. Ég hef alla tíð verið mikill dýravinur og átt hunda frá því ég var tíu ára gömul. Í dag eigum við þriggja ára enska cocker-tík sem heitir Stjarna og er yndisleg og blíð. Ég hef verið að starfa með hópi að bættum að- búnaði dýra á Íslandi, haldið ræðu á málþingi í Norræna húsinu og fleira. Það er skelfilegt að vita um slæman aðbúnað dýra, jafnt á Ís- landi sem annars staðar og hryllir mig þá einna helst við svokölluðum verksmiðjubúskap, þar sem ómann- Linda Pétursdóttir framkvæmdastjóri hefur í nægu að snúast þegar kemur að rekstri Baðhússins sam- hliða því að hugsa um Ísabellu dóttur sína. Linda rifjar upp hættulega páskaferð þeirra mæðgna ásamt gjör- breyttum lífsstíl. LINDA PÉTURSDÓTTIR Fyrrum ungfrú heimur, móðir og bisnesskona. STARF? Eigandi og framkvæmdastjóri Baðhússins. ALDUR? 42. HJÚSKAPARSTAÐA? Einhleyp. BÖRN? Ísabella Ása 7 ára. UPPHAFSSÍÐAN? www.badhusid.is. TÍMARITIÐ? O-magazine, Canadian House & Home, The New Yorker, INC.com. FYRIRMYNDIR ÞÍNAR? Diane Sawyer, Christiane Amanpour, Julia Morley. ÁHUGAMÁL? Heilbrigður lífsstíll, dýravernd, ferðalög. UPPÁHALDSHÖNNUÐUR? Michael Kors, Stella McCartney, Roberto Cavalli. UPPÁHALDSMATUR? Humar. FANN TILGANGINN MEÐ ÍSAB Framhald á síðu 8 Lokadagur í Firði á morgun Laugardag 2 verð 2.000 kr. 1.000 kr. OUTLET Mind Xtra fyrir konur eins og þig Lokadagur í Firði á morgun Laugardag. 1.000 • 2.000 • 3.000 3 VERÐ Ísabella Ása. Þessi mynd af okkur Bellu sofandi, va r tekin um kvöldið eftir tsunami-viðvör- unina í Taílandi, þegar við komumst loks þreyttar upp í rúm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.