Fréttablaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 60
1. september 2012 LAUGARDAGUR14
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR/
SNYRTIFRÆÐINGAR
40-50% framtíðarstaða laus hjá
lækningafyrirtæki nú þegar
Nauðsynlegt er að viðkomandi sé ekki bundinn öðru starfi svo
hann geti tekið þátt í skiptimöguleikum. Mjög sjálfstætt reyk-
laust starf m.a. með börn. Ferill sem greinir í tímaröð menntun,
starfsreynslu og fjarvistir ásamt upplýsingum um tölvureynslu
(nauðsynleg), persónu- og fjölskylduhagi, launakröfur, hvers
vegna hlutastarf henti og meðmælendur auk valupplýsinga svo
sem veikindaupplýs. óskast strax á starfsumsokn@gmail.com.
Sölufulltrúi
Útgáfufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir
sölufulltrúa í fullt starf. Um er að ræða sölu- og
kynningastarf fyrir verk sem fyrirtækið gefur út.
Fyrirtækið gefur jafnframt út fjöldann allan af ýmis
konar ritum.
Krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi.
Reynsla af sölu og kynningarmálum æskileg en ekki
skilyrði. Árangurstengd laun.
Umsóknir skulu sendar á netfangið box@frett.is
fyrir 7. september. nk.
Auglýsing um úthlutun styrkja
Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir eftir umsókn-
um um styrki til sjóðsins, en næsta úthlutun styrkja
fer fram á degi frímerkisins þann 9. október 2012.
Frímerkja- og póstsögusjóður var stofnaður árið
1986 og gilda um hann reglur nr. 453/2001. Tilgang-
ur sjóðsins er að efla og styrkja störf og rannsóknir
á sviði frímerkjafræða og póstsögu og hvers konar
kynningar- og fræðslustarfsemi til örvunar á frí-
merkjasöfnun, svo sem með bóka- og blaðaútgáfu.
Eins getur sjóðurinn styrkt sýningar og minjasöfn,
sem tengjast frímerkjum og póstsögu. Styrki má
veita félagasamtökum, einstaklingum og stofnunum.
Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð um í
hvaða skyni sótt er um styrk.
Umsóknir um styrki skal senda til stjórnar sjóðsins
og berist til Veru Sveinbjörnsdóttur, innanríkis-
ráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 30. september næstkomandi.
Reykjavík, 28. ágúst 2012
Stjórn Frímerkja- og póstsögusjóðs
Verkstjóri óskast
Óskum eftir að ráða verkstjóra til starfa í frystihúsi
Nesfisks í Garði.
Við leitum að duglegum og skipulögðum einstaklingi.
Upplýsingar um starfið veitir Ævar Jónasson, sími
895 7967. Umsóknir sendast á: aevar@nesfiskur.is
Ég er fertug, gift kona og móðir með hreyfihöml-
un sem þarfnast aðstoðar við flestar athafnir
daglegs lífs og óska eftir persónulegri aðstoða-
manneskju á aldrinum 20-40 ára til starfa.
Um er að ræða hlutastarf í vaktavinnu frá mánu-
degi til föstudags.
Umsækjandi þarf að geta byrjað strax.
Æskilegt er að umsækjandi hafi bílpróf þar sem
ég hef eigin bíl til umráða.
Viðkomandi þarf einnig að vera barngóður.
Fyrirspurnir, umsóknir og ferilskrá ásamt
meðmælum má senda á netfangið:
asdisjenna@simnet.is en einnig er hægt að
hringja í síma 775-7377.
Ásdís Jenna Ástráðsdóttir
HEILSURÁÐGJAFI